Hallalausum fjárlögum var náð að langmestu leyti með skattahækkunum. Skattahækkanir í kjölfar hrunsins skila nú miklum tekjum vegna aukinna umsvifa og skattbyrði fyrirtækja og heimila hefur aukist. Þetta segir í grein á vef Samtaka atvinnulífsins, sem áætla að nýir fyrirtækjaskattar frá árinu 2008 skili ríkissjóði 85 milljörðum króna í viðbótartekjur á árinu 2016.
Skattabreytingarnar sem vísað er til voru gerðar í tíð ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna. Í tíð hennar hækkuðu skattar á fyrirtæki úr 15 prósentum í 20 prósent. Skattar á einstaklinga hækkuðu einnig.
Stefnt er á afgang af rekstri ríkissjóðs í fjárlagafrumvarpi 2016, þriðja árið í röð. Samtök atvinnulífsins segja afganginn svo lítinn bæði á árunum 2015 og 2016 að það virðist sem meginmarkmiðið sé aðeins að skila hallalausum fjárlögum.
Jákvæðar breytingar en ekki dregið úr þenslu
Samtök atvinnulífsins segja boðað afnám tolla og skattalækkanir á einstaklinga vera jákvæðar breytingar og mikilvægt sé að framhald verði á slíkum aðgerðum. Breytingarnar séu hins vegar þensluhvetjandi og því nauðsynlegt að draga úr útgjöldum á móti.
„Ríkisfjármálin draga ekki úr þenslu. Útgjöld ríkissjóðs að frátöldum fjármagnskostnaði og öðrum útgjöldum sem óhjákvæmilegt er að falli á ríkissjóð hafa aukist frá árinu 2012 og hafa nær aldrei verið hærra hlutfall af landsframleiðslu. Boðuðum skattalækkunum og niðurfellingu tolla er því ekki mætt með minni útgjöldum.“ Þensluáhrif frumvarpsins fyrir árið 2016 eru metin um 40 milljarðar króna af SA.
Bent er á í greininni að af ríkjum Evrópu þá greiði íslenska ríkið hæsta hlutfall landsframleiðslu í vaxtakostnað. „Þrátt fyrir lítinn afgang af ríkisrekstrinum er áætlað í fjárlagafrumvarpinu að hefja niðurgreiðslu skulda. Einnig er þar tekið fram að stefnt sé á frekari niðurgreiðslu skulda skapist til þess svigrúm við afnám hafta.
Uppsveiflur eru aldrei eilífar og nú þegar tekjur ríkissjóðs vaxa eins og raun ber vitni er nauðsynlegt að búa í haginn. Fjármálastefnu ríkissjóðs verður að haga þannig á komandi árum að næst þegar illa árar verði útgjöldin ekki í hæstu hæðum, skattprósentur við þolmörk og skuldastaðan sligandi. Nú er tími aðgerða.“