„Það er mjög ánægjulegt að hafa náð samningum“

15809575118_986cb22779_b.jpg
Auglýsing

Nýir samn­ingar Íslands og Evr­ópu­sam­bands­ins um við­skipti með land­bún­að­ar­vörur náð­ust á samn­inga­fundi sem staðið hefur sl tvo daga í Reykja­vík. Samn­ing­arnir munu stuðla að auknu vöru­úr­vali og lægra vöru­verði á Íslandi til hags­bóta fyrir neyt­end­ur. Jafn­framt fela samn­ing­arnir í sér veru­leg ný tæki­færi fyrir útflytj­end­ur. Vonir standa til að samn­ing­arnir geti tekið gildi í árs­lok 2016 eða byrjun árs 2017, að feng­inni stað­fest­ingu stofn­ana ESB og Íslands.

„Það er mjög ánægju­legt að hafa náð samn­ingum um gagn­kvæma nið­ur­fell­ingu tolla sem mun hafa mjög jákvæðar áhrif fyrir neyt­endur og mikil sókn­ar­færi til auk­ins útflutn­ings,“ segir Sig­urður Ingi Jóhanns­son sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra.

Samningarnir undirritaðir. Samn­ing­arnir und­ir­rit­að­ir.

Auglýsing

Samn­ing­arnir fela í sér að Ísland fellir niður tolla á yfir 340 nýjum toll­skrár­núm­erum og lækkar tolla á yfir 20 öðrum, að því er segir í til­kynn­ingu. Almennt gerir ESB slíkt hið sama. Nið­ur­staðan felur í sér að allir tollar á unnar land­bún­að­ar­vörur eru felldir niður nema á jógúrt. Sem dæmi munu tollar falla niður á súkkulaði, pizzum, pasta,  bök­un­ar­vörum o.fl. Auk þessa eru tollar felldir niður eða lækk­aðir á óunnum land­bún­að­ar­vörum eins og t.d. villi­bráð, frönskum kart­öfl­um, úti­rækt­uðu græn­meti o.fl.

Jafn­framt er sam­komu­lag um að báðir aðilar auki veru­lega toll­frjálsra inn­flutn­ings­kvóta m.a. fyrir ýmsar kjöt­teg­undir og osta sem munu koma til fram­kvæmda á til­teknum aðlög­un­ar­tíma. Á móti fær Ísland veru­lega hækkun toll­frjálsra inn­flutn­ings­kvóta fyrir skyr, smjör og lamba­kjöt auk nýrra kvóta fyrir ali­fugla- og svína­kjöt og ost.

Sam­hliða var lokið samn­ingi milli Íslands og ESB um gagn­kvæma við­ur­kenn­ingu á heitum afurða sem vísa til upp­runa. Í meg­in­at­riðum felur samn­ing­ur­inn í sér að íslensk stjórn­völd skuld­binda sig til að vernda á yfir­ráða­svæði sínu heiti afurða sem vísa til upp­runa og njóta verndar innan ESB.

„Þetta er fagn­að­ar­efni fyrir íslenska neyt­endur sem munu sjá þess stað í lækk­uðu mat­vöru­verði og útflytj­endur sem munu vafa­laust nýta sér þá mögu­leika sem í þessum samn­ingum felast,“ segir Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra í til­kynn­ingu.

Form­legar við­ræður hófust árið 2012. Nýjum samn­ingum er ætlað að koma í stað samn­inga frá 2001 um við­skipti með unnar land­bún­að­ar­vörur og 2007 um við­skipti með óunnar land­bún­að­ar­vör­ur.

Samn­ing­arnir munu nú fara í lög­fræði­lega yfir­ferð og loka­frá­gang og verða lagðir fyrir til form­legs sam­þykkis ESB og íslenskra stjórn­valda.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None