Tími fyrir aðgerðir, en ekki þjóðrembu

Auglýsing

Tvær vikur eru í dag liðnar frá því að ráð­herra­nefnd um mál­efni flótta­fólks og inn­flytj­enda var sett á stofn. Tvær vikur þar sem ekk­ert hefur komið frá nefnd­inni annað en að hún sé að skoða mál­in, á meðan flótta­manna­krísan heldur áfram að stig­magn­ast.

Und­an­farna daga hafa ráð­herrar í rík­is­stjórn Íslands hins vegar fundið sér til­efni til þess að hnýta í Evr­ópu­sam­bandið og klykkja út með frösum um full­veldi Íslands í við­tölum þar sem rætt er um þessa risa­vöxnu og aðkallandi flótta­manna­krísu sem nú á sér stað í heim­in­um.

Síð­ast í morgun tal­aði Eygló Harð­ar­dóttir um það að stjórn­völdum hugn­ist ekki að láta Evr­ópu­sam­bandið mið­stýra því hversu mörgum flótta­mönnum Ísland eigi að taka við. Það hversu mörgum flótta­mönnum yrði tekið við yrði vera ákveðið á for­sendum Íslands „sem full­valda rík­is“. Um helg­ina tal­aði Bjarni Bene­dikts­son um að það væri ekki boð­legt að stilla þjóðum upp við vegg með þessum hætti, íslensk stjórn­völd myndu ekki láta undan hót­un­um. Nálgun Evr­ópu­sam­bands­ins væri ekki „boð­leg nálgun við full­valda þjóð.“ Í gær­kvöldi tal­aði Gunnar Bragi Sveins­son um að Evr­ópu­sam­bandið gæti ekk­ert stillt okkur upp við vegg, Ísland muni taka ákvörðun í flótta­manna­málum á eigin for­send­um.

Auglýsing

Evr­ópu­sam­bandið hefur vissu­lega gert mörg mis­tök og að mörgu leyti með­höndlað þessa krísu illa. Það fer ekk­ert á milli mála. Það má alveg gagn­rýna það eins og svo margt annað í tengslum við krís­una.

En það er ósmekk­legt að not­færa sér ástandið sem ríkir til að minna á skoð­anir sínar á Evr­ópu­sam­band­inu og full­veldi Íslands. Ekki nóg með það heldur er það líka ótrú­lega langt frá því að vera aðal­at­riði í mál­inu, er ein­göngu til þess fallið að drepa mál­inu á dreif og draga athygl­ina frá því sem ekki er verið að gera á Ísland­i. Það velk­ist nefni­lega eng­inn í vafa um skoð­anir ráð­herr­anna á Evr­ópu­sam­band­inu almennt eða um mik­il­vægi full­veldis Íslands. Þeir þreyt­ast aldrei á að tala um skoð­anir sín­ar, en nú er bara ekki tím­inn til þess að minna á þær.

Vand­inn er núna



Nú ætti nefni­lega að vera tími aðgerða, ekki þess að slá ein­hverjar póli­tískar full­veld­iskeil­ur. Því eins og Bjarni Bene­dikts­son sagði líka, og rétti­lega, í við­tölum helg­ar­innar er verið að fást við neyð­ar­á­stand í flótta­manna­mál­um. Það er ein hliðin á pen­ingnum og hin er lang­tíma­stefnu­mótun Íslands og mögu­legar breyt­ingar á henni. Neyð er aftur á móti þess eðl­is­ að það verður að takast á við hana núna. Svo er hægt að halda áfram að vinna í mál­unum til langs tíma lit­ið.

Íslenskur almenn­ingur hefur verið alveg skýr um það að hann vill axla sína ábyrgð og taka á móti fólki í vanda. Níu­tíu pró­sent vilja taka á móti flótta­fólki. Það ætti að vera aðal­at­riðið í því sem íslenskir stjórn­mála­leið­togar hafa að segja þessa dag­ana hvað þeir ætla að gera til þess að þjóna vilja almenn­ings og sið­ferð­is­legum skyldum sín­um. Og ef þeir vilja endi­lega sýna full­veldi sitt og sjálf­stæði í verki er það ekki best gert með tali, heldur með því að drífa í að taka þessar umtöl­uðu ákvarð­anir og grípa til aðgerða.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiLeiðari
None