Bjarkey vill vita hvers vegna Illugi hefur ekki svarað fjölmiðlum

Screen-Shot-2015-10-08-at-16.39.01.png
Auglýsing

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dótt­ir, þing­maður Vinstri grænna, vill að Ill­ugi Gunn­ars­son mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra geri grein fyrir því hvers vegna hann hefur ekki svarað spurn­ingum fjöl­miðla um tengsl sín við fyr­ir­tækið Orku Energy og for­svars­menn þess í tæpt hálft ár, og hvernig það sam­ræm­ist upp­lýs­inga­lög­um. Þetta er meðal þess sem kemur fram í fyr­ir­spurn Bjarkeyjar til Ill­uga, sem var dreift á Alþingi í dag.

Bjarkey vill að ráð­herr­ann greini frá því hvenær hann hafi síð­ast fengið laun, lán eða „aðra fjár­hags­lega fyr­ir­greiðslu“ frá fyr­ir­tæk­inu eða for­svars­mönnum þess, og hversu háar upp­hæðir þar hafi verið um að ræða. Hún vill líka vita hvort hann hafi þegið boðs­ferðir á borð við lax­veiði­ferðir frá þeim meðan hann hefur verið ráð­herra og hvort hann hafi þegið ein­hverjar aðrar gjafir frá Orku. Þá spyr Bjarkey hvort Ill­ugi hafi „greitt götu fyr­ir­tæk­is­ins eða for­svars­manna þess með ein­hverjum hætt­i í ráð­herra­tíð sinn­i.“

Líka spurður beint í þing­inu



Ásta Guð­rún Helga­dótt­ir, þing­maður Pírata, spurði Ill­uga líka út í málið í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í morg­un. Hún spurði hann fyrst um stöðu hans gagn­vart frum­varpi sem hún hefur lagt fram og fjallar um upp­lýs­inga- og sann­leiks­skyldu ráð­herra. Svo spurði hún á hverra vegum Ill­ugi hefði verið í Kína árið 2013, hver hefði greitt veiði­leyfi í Vatns­dalsá árið 2013 og hver væru tengsl ráð­herr­ans við Orku Energy.

Ill­ugi svar­aði því til að heim­sóknin til Kína hefði verið vinnu­heim­sókn ráð­herra, emb­ætt­is­manna, rekt­ora þriggja háskóla og for­stöðu­manns Rannís. „Hitt er alveg hár­rétt að á sama tíma voru í Pek­ing full­trúar frá fyr­ir­tæk­inu Orku Energy, sem um hefur verið rætt hér, og einn full­trúi frá fyr­ir­tæk­inu Mar­el.“ Þá sagði hann að hann hefði í sínum fórum kvittun fyrir greiðslum sínum fyrir veiði­ferð í Vatns­dalsá og kostnað við hana.

Auglýsing

Hefur ekki íhugað stöðu sína



Illugi seg­ist ekki hafa íhugað stöðu sína vegna Orku Energy-­máls­ins, að því er fram kom í við­tali við hann á RÚV fyrr í dag. „Það ­þyrfti þá að vera hægt að segja að ég hefði með ein­hverjum hætti veitt þessu fyr­ir­tæki óeðli­lega fyr­ir­greiðslu, það hefur ekki verið með nokkum hætti sýnt fram á eða bent á.“

Ill­ugi vildi fyrst ekki ræða málið við frétta­stofu RÚV, vegna þess að hann hefur þegar farið í við­tal í Frétta­blað­inu sem verður birt á morg­un. Hann sagði við RÚV að þar ræddi hann ítar­lega um málið og gæti rætt við aðra fjöl­miðla í kjöl­far­ið. Svo mán­uðum skiptir hefur Ill­ugi ekki viljað tala við fjöl­miðla um málið þrátt fyrir ítrek­aðar fyr­ir­spurn­ir.

Ill­ugi seg­ist þó skilja umræð­una en segir jafn­framt að það væri mjög und­ar­legt ef hann væri að íhuga stöðu sína, því þá hefðu aðrir ráð­herrar sem hefðu átt sams­konar sam­vinnu við fyr­ir­tækið átt að gera slíkt hið sama. Frétta­maður RÚV benti þá á að hann sé fjár­hags­lega háður stjórn­ar­for­manni fyr­ir­tæks­ins, og í því liggi mun­ur­inn. Ill­ug­i ­neit­aði því að vera fjár­hags­lega háður þrátt fyrir að stjórn­ar­for­maður fyr­ir­tæk­is­ins hafi keypt af honum íbúð og leigi Ill­uga hana til baka.

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None