InDefence: Kröfuhafar eru að fá ódýra leið út úr höftum sem skerðir lífskjör almennings

17980682404_6f264aa63c_z.jpg
Auglýsing

InDefence-hóp­ur­inn segir að tals­verð hætta sé að svig­rúm til að aflétta höftum á almenn­ing verði lítið næstu árin, að stöð­ug­leika­skil­yrðin séu ódýr leið fyrir kröfu­hafa slita­búa föllnu bank­anna úr gjald­eyr­is­höftum og að greiðsla stöð­ug­leika­skil­yrða muni skerða lífs­kjör almenn­ings. Þetta er meðal þess sem fram kemur í bréfi hóps­ins sem sent var til efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis í gær og Kjarn­inn hefur undir hönd­um.

InDefence, sem vakti fyrst athygli fyrir bar­áttu sína í Ices­a­ve-­mál­inu, hefur látið sig mál sem tengj­ast losun fjár­magns­hafta varða und­an­farin miss­eri. Hóp­ur­inn hefur gagn­rýnt það sam­komu­lag sem stjórn­völd gerðu við kröfu­hafa Glitn­is, Kaup­þings og Lands­bank­ans um greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags og sagt það gefa þeim gríð­ar­háan afslátt af stöð­ug­leika­skatti, sem ann­ars myndi falla á slitabú föllnu bank­anna.

Segja greiðslu stöð­ug­leika­skil­yrða skerða lífs­kjör á Íslandi



Í bréfi InDefence segir að til­lögur um stöð­ug­leika­fram­lag geri ráð fyrir að slita­búin greiði 334 millj­arða króna, sem svari til 15 pró­sent skatts á eignir slita­bú­anna. Það sé tals­vert undir þeim 39 pró­sentum sem stöð­ug­leika­skatt­ur­inn mydni skila. „Það stefnir því í að kröfu­höfum slita­bú­anna verði tryggð útganga úr gjald­eyr­is­höft­unum með mjög lágum til­kostn­að­i.“

InDefence segir að ólikt því sem myndi ger­ast við álagn­ingu stöð­ug­leika­skatts muni erlendir kröfu­hafar fá að taka yfir 500 millj­arða króna út úr íslensku hag­kerfi á næstu árum. „Þar sem lífs­kjör almenn­ings eru bein­tengd gjald­eyr­is­öflun þjóð­ar­innar er ljóst stöð­ug­leika­skil­yrðin munu skerða lífs­kjör hér­lend­is. Hér er um veru­legar upp­hæðir að ræða, sem svara til nán­ast alls vöru­út­flutn­ings frá Íslandi árið 2014, nálægt tvö­földu virði Lands­virkj­unar skv. mati fjár­mála­ráð­herra í árs­byrjun 2013 og 50 sinnum hærri upp­hæðar en líf­eyr­is­sjóð­unum var leyft að fara með úr landi á þessu ári. Það er því rangt að full­yrða að stöð­ug­leika­skatt­ur­inn og stöð­ug­leika­fram­lagið séu jafn­gildar leiðir út frá hags­munum heim­ila lands­ins.“

Auglýsing

Hóp­ur­inn telur að hags­munir almenn­ings séu ekki settir í for­gang í þeirri lausn sem nú er unnið að varð­andi losun hafta. Hún feli í sér að erlendum kröfu­höfum verði hleypt úr höftum án þess að búið sé að tryggja með nokkrum hætti aflétt­ingu hafta á almenn­ing. „InDefence-hóp­ur­inn ótt­ast að tals­verð hætta sé á því að svig­rúm til að aflétta höftum á almenn­ing verði lítið næstu árum, bæði vegna auk­innar neyslu en einnig vegna mik­illar fjár­fest­ing­ar­þörf líf­eyr­is­sjóða erlend­is.

Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn var­aði við þess­ari hættu í síð­ustu stöðu­skýrslu sjóðs­ins um Ísland en þar er bent á að það séu komnar miklar vænt­ingar um hratt afnám gjald­eyr­is­hafta á almenn­ing. Á sama tíma sýni greiðslu­jafn­að­ar­grein­ing sjóðs­ins að svig­rúmið til aflétt­ingar sé tak­markað m.a. vegna mik­illa launa­hækk­ana á vinnu­mark­aði. Það liggur því fyrir við­vörun frá IMF um greiðslu­jöfnuð þjóð­ar­innar og eykur það enn á mik­il­vægi þess að Seðla­bank­inn skoði þennan þátt af fullri alvöru sam­hliða mati á stöð­ug­leika­fram­lög­un­um.“

Fund­uðu með Má Guð­munds­syni



Í lok síð­asta mán­aðar sendi InDefence Seðla­banka Íslands bréf og krafð­ist þess að bank­inn birti sam­stundis stöð­ug­leika­skil­yrðin sem slita­búin ættu að mæta. Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri svar­aði bréfi hóps­ins skömmu síðar og sagði að skil­yrðin hefðu þegar verið birt og að nauða­samn­ings­drög sem slita­búin hefðu lagt fram upp­fylltu þau í stórum drátt­um. Í kjöl­far svar­bréfs­ins fund­aði Már með full­trúum hóps­ins. Sá fundur fór fram síð­ast­lið­inn föstu­dag.

Í bréfi InDefence til efna­hags- og við­skipta­nefndar segir að á þeim fundi hafi verið rætt „al­mennt um birt­ingu upp­lýs­inga og m.a. beðið um að greiðslu­jafn­að­ar­grein­ing­in, sem notuð verður við stöð­ug­leika­mat Seðla­bank­ans, verði birt. Á fund­inum kom hins vegar fram að slík grein­ing lægi ekki fyr­ir.“

Í kjöl­farið hafi InDefence beðið Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn um að fram­kvæma slíka grein­ingu og að hann búist við því að slík grein­ing verði upp­færð á næstu vik­um.  Hóp­ur­inn mun einnig ítreka beiðni sína til Seðla­bank­ans og biðja þar að auki um að gerð verði lang­tíma greiðslu­jafn­að­ar­grein­ing.

Í bréf­inu stend­ur: að InDefence hóp­ur­inn lýsi yfir miklum von­brigðum með vinnu­brögð Seðla­banka Íslands í mál­inu. „Ekki hefur verið staðið við lof­orð um opið og gagn­sætt ferli og er það mat hóps­ins að ekki megi ganga frá stöð­ug­leikamati fyrr en greiðslu­jafn­að­ar­grein­ing liggur fyr­ir. Án slíkrar grein­ingar verður ekki séð að staðið sé við lof­orð stjórn­valda um að heim­ilin verði sett í for­gang. Við hvetjum Efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis ein­dregið til að biðja Seðla­banka Íslands um slíka grein­ingu, svo að þing­menn geti betur metið afleið­ingar þeirra aðgerða sem fel­ast í stöð­ug­leika­fram­lögum og stöð­ug­leika­skatt­i.“

Seðla­banki Íslands ætl­aði að opin­bera mat á til­lögum um aðgerðir og greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags sem upp­fylla ætti stt stöð­ug­leika­skil­yrði stjórn­valda á kynn­ing­ar­fundi í dag. Fund­inum var hins vegar frestað á síð­ustu stundu. Í til­kynn­ingu frá Seðla­bank­anum sagði að tíma­setn­ingin hefði reyn­st „ó­heppi­leg í ljósi þess að ekki hefur tek­ist að ljúka því sam­ráðs- og kynn­ing­ar­ferli sem reiknað var með að yrði lokið áður en ritið yrði birt.“

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None