Páll Magnússon um mál Illuga: Sjaldan hefur spilling birst jafn hrein og kristaltær

pallmagg-1.jpg
Auglýsing

„Nú er liðið eitt sumar síðan upp­lýst var að mennta­mála­ráð­herra bað um og fékk per­sónu­legan fjár­stuðn­ing frá aðila sem hann síðan veitti póli­tíska fyr­ir­greiðslu vegna við­skipta­hags­muna í Kína. Póli­tísk spill­ing verður ekki aug­ljós­ari en þetta.“

Þetta skrifar Páll Magn­ús­son, fyrr­ver­andi útvarps­stjóri, í aðsendri grein í Frétta­blað­inu í dag. Í grein­inni kallar Páll eftir afsögn Ill­uga úr starfi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, en síð­ast­liðið vor var upp­lýst að Ill­ugi seldi íbúð­ina sína á Rán­ar­götu til stjórn­ar­for­manns Orku Energy vegna fjár­hags­erf­ið­leika og leigir hana nú út. Málið kom upp í fjöl­miðlum í kjöl­far þátt­töku Orku Energy í ferð Ill­uga til Kína, en Ill­ugi vann ráð­gjafa­störf fyrir fyr­ir­tækið þegar hann var utan þings.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Páll kallar eftir afsögn Ill­uga og sakar hann um póli­tíska spill­ingu. Það gerði hann einnig í maí síð­ast­liðn­um.

Auglýsing

Páll hætti sem útvarps­stjóri nokkrum mán­uðum eftir að Ill­ugi varð mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, en ráðu­neyti hans fer með mál­efni RÚV. Ástæðan var sú að ákveðið hafði verið að aug­lýsa stöðu útvarps­stjóra lausa til umsókn­ar.

Segir málið slæmt fyrir flokk­inn



Í grein­inni, sem ber yfir­skrift­ina „Er ráð­herr­ann ekki á föru­m?“, segir Páll að sjálf skil­grein­ingin sem OECD og fleiri alþjóð­legar stofn­anir noti á fyr­ir­bær­inu „spill­ingu“ feli í sér verk­lýs­ingu á því sem ráð­herran gerði. „Mis­notkun stjórn­valds eða póli­tískra ráða­manna á valdi sínu og áhrifum fyrir ólög­mæt­an, venju­lega leyni­legan, per­sónu­legan ávinn­ing,“ er sú lýs­ing sem Páll vísar til. Hann telur að ef Ill­ugi segir ekki sjálfur af sér þá hljóti for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins að vísa honum veg­inn. Aðstæður í dag séu ekki gæfu­legar flokkn­um.

„Við þetta bæt­ist síðan að ráð­herr­ann sagði opin­ber­lega og vís­vit­andi ósatt þegar hann hélt því fram í við­tali við Frétta­blaðið 9. apríl sl. að teng­ing hans við þennan aðila væri frá þeim tíma þegar hann var utan þings og að hann hefði engra fjár­hags­legra hags­muna að gæta gagn­vart honum leng­ur. Hvorttveggja var og er ósatt,“ segir í grein­inni. Auk þess hafi fjöl­mið­ill­inn Stundin þrá­spurt ráð­herran um málið en engin svör feng­ið.

„Þögn ráð­herr­ans er skilj­an­leg. Honum væri þó hollt að minn­ast þeirrar meg­in­reglu að ráð­herrar á Vest­ur­löndum geta yfir­leitt ekki þagað neitt í hel nema sjálfa sig. Og þótt ráð­herr­anum hafi tek­ist að koma sér undan því að svara fjöl­miðlum allan þennan tíma, svo und­ar­legt sem það nú er og má heita mikil lít­il­þægni af þeirra hálfu, þá kemst hann varla undan því að svara fyrir málið á Alþingi eða Lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem stendur fyrir dyr­um. Nema þá að þessar stofn­anir legg­ist í sam­ræmda með­virkni með ráð­herr­anum og spyrji einskis.“

„Hjá­kát­leg þögn“



Páll telur „hjá­kát­lega þögn“ ríkja um málið hjá þeim sem tíð­ast skrifa um sam­fé­lags­mál í dag­blöð og net­miðla. „Ekki hefur heyrst hósti né stuna frá þessum ann­ars sískrif­andi 5-6 ein­stak­ling­um. Þó hefur póli­tísk spill­ing á Íslandi sjaldan birst jafn hrein og krist­al­tær og í ofan­greindu til­viki. Sumir þess­ara skrif­finna görg­uðu sig t.d. hása mán­uðum saman út af máli Hönnu Birnu. Hún gat þó að ákveðnu marki afsakað sig með mis­tök­um, dóm­greind­ar­leysi, reynslu­leysi og mis­vitrum aðstoð­ar­mönnum og ráð­gjöf­um. Engu slíku er til að dreifa í máli mennta­mála­ráð­herra. Þar stendur spill­ingin ein og hrein og hefur ekk­ert skjól af mis­tökum eða dóm­greind­ar­leysi; þetta var úthugs­aður og ein­beittur ásetn­ingur ráð­herra um póli­tískan greiða fyrir per­sónu­leg­an. Samt heyr­ist ekki múkk í hinni málglöðu intelli­g­ens­íu. Það er svo sem í góðu sam­ræmi við þau marg­tuggðu vís­dóms­orð Lax­ness að Íslend­ingar „… leysi vand­ræði sín með því að stunda orð­hein­g­ils­hátt og deila um tit­línga­skít sem ekki kemur mál­inu við; en verði skelfíngu lostnir og setji hljóða hvenær sem komið er að kjarna máls.“ Páll spyr hvort þetta sé vegna kunn­inga­skapar eða vin­áttu við „hinn geð­þekka og kúltíver­aða ráð­herra, sem sækir sömu konserta og kaffi­hús - og spilar auk þess fal­lega á píanó­?“.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None