Sjö ár frá því að neyðarlög voru sett og Geir H. Haarde bað guð að blessa Ísland

geirneydarloeg.jpg
Auglýsing

Sjö ár eru í dag frá ávarpi Geirs H. Haar­de, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, í sjón­varpi á RÚV. Hann lauk ávarpi sínu á orðum sem eru þrykkt í minni íslensku þjóð­ar­inn­ar. „Guð blessi Ísland“. Flestir Íslend­ingar muna vafa­lítið hvar þeir voru staddir þegar Geir birt­ist á sjón­varps­skján­um.

https://www.youtu­be.com/watch?v=pQA2kK_M­FjA&feat­ure=yout­u.be

Neyð­ar­lög voru sam­þykkt á Alþingi sem mið­uðu að því að við­halda fjár­mála­kerfi lands­ins og koma í veg fyrir upp­þot vegna fyr­ir­sjá­an­legs falls bank­anna. Fjár­mála­eft­ir­litið fékk heim­ildir til þess að fram­kvæma neyð­ar­lögin með því að skipta bönk­unum upp og tókst að við­halda svo til hnökra­lausri fjár­mála­þjón­ustu þrátt fyrir að bank­arn­ir, Glitn­ir, Kaup­þing og Lands­bank­inn, féllu eins og spila­borg dag­ana 7. til 9. októ­ber. End­ur­reistu bank­arnir byggja á grunni þess­arar aðgerð­ar, Arion banki á grunni inn­lendrar starf­semi Kaup­þings, Íslands­banki á grunni inn­lendrar starf­semi Glitn­is, og Lands­bank­inn á grunni gamla Lands­bank­ans. Íslenska ríkið á Lands­bank­ann nán­ast að fullu, 13 pró­sent í Arion banka og 5 pró­sent í Íslands­banka.

Auglýsing

Þegar þetta gekk yfir hélt krónan áfram að falla stjórn­laust og end­aði með því að fjár­magns­höftum var komið á í nóv­em­ber 2008. Þau eru enn fyrir hendi, og vinna stjórn­völd að því að rýmka þau og afnema.

Ávarp Geirs í heild sinni má sjá á vef for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins hér.

Verið að skrifa lokakafl­ann



Um þessar mundir er verið að skrifa lokakafl­ann í sögu yfir­töku, og síðar end­ur­reisn­ar, íslenska rík­is­ins á banka­kerf­inu. Stjórn­völd kynntu í byrjun júní­mán­aðar áætlun um losun fjár­magns­hafta sem fól meðal ann­ars í sér að leggja á 39 pró­sent stöð­ug­leika­skatt á slitabú Glitn­is, Kaup­þings og Lands­bank­ans. Skatt­ur­inn átti að skila rík­inu um 850 millj­örðum króna. Á kynn­ing­unni var ekki gert grein fyrir því að þegar hafði verið samið við öll slita­búin um að greiða svo­kallað stöð­ug­leika­fram­lag til að sleppa við álagn­ingu skatts­ins. Und­an­farnar vikur hafa kröfu­hafar bank­anna þriggja sam­þykkt þessa ráð­stöfun á kröfu­hafa­fundum og sam­kvæmt kynn­ingum slita­stjórna þeirra mun heild­ar­um­fang stöð­ug­leika­fram­lags Glitn­is, Kaup­þings og Lands­bank­ans vera 334 millj­arðar króna.

Seðla­banki Íslands á þó enn eftir að veita slita­bú­unum und­an­þágu frá fjár­magns­höftum til að þau geti lokið gerð nauða­samn­inga sinna. Tak­ist það ekki fyrir ára­mót mun stöð­ug­leika­skatt­ur­inn verða lagður á. Seðla­bank­inn hefur þegar sagt að nauða­samn­ings­drög bank­anna upp­fylli " í stórum stórum dráttum skil­yrði um stöð­ug­leika í geng­is- og pen­inga­mál­um“ og tryggja fjár­mála­legan stöð­ug­leika í íslensku hag­kerfi.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None