Stoðir ferðaþjónustunnar of veikar fyrir frekari vöxt

14563792783_bbd331cd9e_z.jpg
Auglýsing

Stýri­hópur um fram­tíð ferða­þjón­ustu á Íslandi telur und­ir­stöður ferða­þjón­ustu á Íslandi vera of veikar til þess að hægt sé að móta fram­tíð­ar­stefnu grein­ar­inn­ar. Stýri­hóp­ur­inn, sem starfað hefur á vegum iðn­að­ar- og við­skipta­ráðu­neyt­is­ins og Sam­taka ferða­þjón­ust­unn­ar, skil­aði nið­ur­stöðum sínum í dag.

Til þess að treysta stoðir ferða­þjón­ustu­iðn­aðar hér á landi verður sett á fót Stjórn­stöð ferða­mála. Hluverk hennar verður að sam­hæfa aðgerðir og útfæra leiðir í sam­vinnu við opin­berar stofn­anir og hags­muna­að­ila í ferða­þjón­ustu. Stjórn­stöð­inni er ætlað að starfa í fimm ár eða til árs­loka 2020.

Í skýrslu stýri­hóps­ins, sem kall­ast Veg­vísir í ferða­þjón­ustu, er fjallað um flókið lagaum­hverfi, óljósa ábyrgð og óskýrt skipu­lag grein­ar­inn­ar. Um gjald­töku á ferða­manna­stöðum er lagt til að „heim­ildir til inn­heimtu þjón­ustu­gjalda verði nýttar á áfanga­stöðum þar sem við á, þannig að greitt verði fyrir virð­is­auk­andi þjón­ust­u“. Skýrslan segir jafn­framt brýnt að hugað verði að nátt­úru- og minja­vernd og er lagt til að Fram­kvæmda­sjóður ferða­manna­staða fái breytt hlut­verk til að fjár­magna upp­bygg­ingu áfanga­staða.

Auglýsing

Stýri­hópur verk­efn­is­ins var skip­aður Ragn­heiði Elínu Árna­dótt­ur, iðn­að­ar- og við­skipta­ráð­herra sem einnig var for­mað­ur, Grími Sæmund­sen, for­stjóra og for­manni Sam­taka ferða­þjón­ust­unn­ar, Helgu Árna­dótt­ur, fram­kvæmda­stjóra Sam­taka ferða­þjón­ust­unn­ar, og Ólöfu Ýrr Atla­dótt­ur, ferða­mála­stjóra.

Í verk­efna­hóp sátu ráð­gjaf­arnir Guð­finna S. Bjarna­dóttir og Vil­hjálmur Krist­jáns­son frá LC Ráð­gjöf, Helga Har­alds­dóttir og Bryn­hildur Pálm­ars­dóttir frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, Hel­ena Karls­dóttir frá Ferða­mála­stofu og Þor­geir Páls­son og Vil­borg Helga Júl­í­us­dóttir ráð­gjaf­ar, til­nefnd af Sam­tökum ferða­þjón­ust­unn­ar.

Lagt er til að heimildir til gjaldtöku fyrir virðisaukandi þjónustu verði nýttar. Auk þess verður hlutverki Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða breytt til að fjarmagna uppbyggingu áfangastaða. Lagt er til að heim­ildir til gjald­töku fyrir virð­is­auk­andi þjón­ustu verði nýtt­ar. Auk þess verður hlut­verki Fram­kvæmda­sjóðs ferða­manna­staða breytt til að fjar­magna upp­bygg­ingu áfanga­staða.

Stjórn­stöð á að ein­falda starfs­um­hverfið



Í tíu manna stjórn Stjórn­stöðvar ferða­mála munu fjórir ráð­herrar helstu mála­flokk­anna sem tengj­ast ferða­þjón­ust­unni ásamt fjórum full­trúum grein­ar­innar og tveimur full­trúum sveit­ar­fé­laga. Stjórn­stöðin á að sam­hæfa aðgerðir og útfæra leiðir í sam­vinnu við alla þá sem koma að ferða­þjón­ust­unni, jafnt meðal hins opin­bera, einka­að­ila eða hags­muna­að­ila.

For­sæt­is­ráð­herra mun skipa í stórn stjórn­stöðv­ar­innar en iðn­að­ar- og við­skipa­ráð­herra verður for­mað­ur. Auk inn­an­rík­is­ráð­herra munu fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra skipa ráð­herra­sætin þrjú. Hörður Þór­halls­son hefur verið ráð­inn fram­kvæmda­stjóri Stjórn­stöðvar ferða­mála til að fylgja eftir Veg­vísi í ferða­þjón­ustu sem kynntur var í dag.

Sam­kvæmt spá sem birt er í skýrsl­unni eru áætl­aðar gjald­eyr­is­tekjur þjóð­ar­bús­ins af ferða­þjón­ustu í heild sinni árið 2015 verða um 350 millj­arðar króna. Árið 2020 er gert ráð fyr­ir, ef vel tekst til, að tekj­urnar nemi 620 millj­örðum og meira en 1.000 millj­örðum árið 2030. Í skýrsl­unni er þetta sett í sam­hengi við áætl­aðar heild­ar­gjald­eyr­is­tekjur þjóð­ar­bús­ins 2015 sem verða um 1.140 millj­arðar króna.

Stýri­hóp­ur­inn leggur því áherslu á að til þess að ferða­þjón­ustu­iðn­að­ur­inn geti vaxið á Íslandi verði að ein­falda starfs­um­hverfi grein­ar­inn­ar. Mark­mið og mæli­kvarðar á árangri í ferða­þjón­ustu, eins og stýri­hóp­ur­inn setur þau fram eru: jákvæð upp­lifun ferða­manna, aukin arð­semi, aukin dreif­ing ferða­manna og jákvæð við­horf til grein­ar­inn­ar. Um alla þessa þætti vantar mæl­an­leg gögn svo gagna­öflun hefur verið gerð að for­gangs­máli á næsta ári. „Þannig fáist þau grunn­við­mið sem þarf til að setja tölu­leg mark­mið í fram­hald­inu og fylgja þeim eft­ir,“ segir í skýrsl­unni.

Áherslu­þætt­irnir sjö sem til­greindir eru í Veg­vísi í ferða­þjón­ustu og verða lyk­il­þættir í starf­semi stjórn­stöðv­ar­innar til 2020 eru: Sam­hæf­ing, jákvæðu upp­lifun ferða­manna, áreið­an­leg gögn, nátt­úru­vernd, hæfni og gæði, aukin arð­semi og dreif­ing ferða­manna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None