Karolina Fund: Iceland Writers Retreat Alumni Award

karolina fund iceland writers retreat
Auglýsing

Rit­list­ar­búð­irnar „The Iceland Writers Retr­eat“ er röð menn­ing­ar­legra ferða og rit­list­ar­nám­skeiða undir for­ystu róm­aðra höf­unda hvaðanæva úr heim­in­um, segir Eliza Reid for­seta­frú um hugð­ar­efnið sitt. „Hóp­fjár­mögn­un­ar­verk­efn­inu á Karol­ina Fund er ætlað til að gera okkur kleift að veita ein­stak­lingi, á grund­velli þarfa og verð­leika, tæki­færi til fyrir sækja ráð­stefn­una í Reykja­vík í apríl 2017.“



Út á hvað gengur The Iceland Writers Retr­eat?

Ráð­stefnan er árlegur við­burður sem sam­anstendur af ritsmiðj­um, menn­ing­ar­ferðum og les­efni sem ætlað er til að kynna gesti fyrir hinum ríka bók­mennta­arfi Íslend­inga. Gest­irnir koma alls­staðar að úr heim­inum og sækja m.a. fimm 90 mín­útna ritsmiðjur með að hámarki 15 þátt­tak­end­um, fara í bók­mennta­göngu­ferð­ir, mæta í ýmsar mót­tökur og máls­verði, fara í heils­dags­ferð upp í sveit undir for­ystu íslensks rit­höf­undar og eyða kvöld­stund á bar þar sem verður boðið upp á tón­list og upp­lestur íslenskra lista­manna.

Auglýsing

Hverju eru þið að safna fyr­ir?

Við erum að safna fyrir því að geta boðið þátt­tak­endum að sækja ráð­stefn­una án end­ur­gjalds. Þau verð­laun verða veitt á grund­velli verð­leika og fjár­hags­legrar stöðu. Árið 2016 gátum við fengið konu frá Suð­ur­-Afr­íku og aðra frá Los Ang­eles til að sækja ráð­stefn­una. Hér má lesa um eina reynslu af ráð­stefn­unni. Einnig má finna fleiri sögur á heima­síðu okkar.

Ég get einnig minnst á – svona almennt – að við munum halda upp­lestur með mik­il­virkum höf­und­um, sem verður frítt inn á og opinn öll­um. Árið 2016 höldum við fleiri opna við­burði og von­umst til að geta bætt enn frekar í árið 2017. Við von­umst eftir að fá nokkra heima­menn til að vinna með okkur að þessum opnu við­burðum í sjálf­boða­starfi og fá í stað­inn að taka þátt í allri ráð­stefn­unni. Svo ef les­andi hefur áhuga á að ger­ast sjálf­boða­liði þá má hann endi­lega hafa sam­band. Sú sem sér um sjálf­boða­starfið heitir Lisa Shannon og hægt að senda henni með því að smella hér.

Hvaða tæki­færi sérðu í starf­semi sem þess­ari?

Allir okkar þátt­tak­endur tala um hversu mik­inn inn­blástur þau fengu og hversu hvetj­andi áhrif það hafði að vera á Íslandi með fólki í svip­uðum spor­um. Aftur á móti er kostn­að­ar­samt að halda við­burði sem þessa og margir rit­höf­und­ar, ef ekki flest­ir, hafa ekki mikið auka­lega milli hand­anna sem myndi gera þeim kleift að taka þátt í við­burðum sem þess­um. Við erum stöðugt að reyna að halda niðri kostn­aði og opna við­burð­ina fyrir eins marga og mögu­legt er. Að hafa þessi verð­laun er ein af þeim leið­um. Andri Snær Magna­son, sem tal­aði á ráð­stefn­unni árið 2015, sagði að hún væri „mik­ill hval­reki fyrir íslenska bók­menn­ingu“ og að ráð­stefna sem þessi hjálp­aði til við að byggja upp traust tengsl milli þjóð­fé­laga. Gott dæmi um það er þegar Gerður Kristný, sem tal­aði einnig á ráð­stefn­unni 2015, fékk í kjöl­farið boð um að mæta á bók­mennta­há­tíð á Möltu. En ein af þátt­tak­endum Iceland Writers Retr­eat var skipu­leggj­andi þeirrar hátíð­ar. 

Á okkar eigin hóg­væra hátt, von­umst við til að auka þekk­ingu íslenskra bók­mennta úti í heimi, þar sem þær eiga skilið víð­feðma við­ur­kenn­ingu.

Verk­efnið er að finna á vef Karol­ina fund, eða með því að smella hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk
None