Spil sem inniheldur fróðleik um íslenska varpfugla

fuglafár
Auglýsing

Birgitta Stein­gríms­dótt­ir, meist­ara­nemi í umhverf­is- og auð­linda­fræði, og Heið­dís Inga Hilm­ars­dótt­ir, vöru­hönn­un­ar­nemi, hafa verið vin­konur frá unga aldri. Þær náðu að sam­eina áhuga­mál sín þegar þær unnu saman að gerð fjöl­skyldu­spils­ins Fugla­fárs sem inni­heldur fróð­leik um íslenska varp­fugla. Um þessar mundir standa þær fyrir hóp­fjár­mögnun á spil­inu á Karol­ina Fund þar sem áhuga­sömum gefst tæki­færi á að næla sér í spilið í for­sölu. Fjár­mögn­unin hefur að þeirra sögn gengið vonum framar en þær náðu mark­miði sínu eftir aðeins tvær vik­ur. Ekk­ert lát er á eft­ir­spurn eftir Fugla­fári og benda þær stöllur á að enn eru 2 vikur eftir af for­söl­unni. Kjarn­inn hitti Birgittu og Heið­dísi og tók þær tali.

Hvaðan kemur hug­myndin að spil­inu?

„Við getum ekki státað okkur af því að hafa verið miklir fuglanördar hér áður fyrr. Vorið 2015 þegar við fórum að huga að sum­ar­vinnu lang­aði okkur að leiða saman hesta okkar og gera eitt­hvað skemmti­legt sam­an. Á þessum tíma var ég að læra líf­fræð­i ­upp í HÍ og Heið­dís vöru­hönnun í LHÍ. Við áttum nokkra „brain­storm„ fundi þar sem ansi margar lélegar hug­myndir fædd­ust þangað til hug­myndin að spil­inu dúkk­aði upp. Við vorum báðar sam­mála um að þetta væri eitt­hvað sem okkur lang­aði að taka lengra og nú, einu og hálfu ári síð­ar, er spilið farið í fram­leiðslu og er settur dagur í byrjun des­em­ber. 

Auglýsing

Höfundar spilsins Fuglafárs með...fuglum.Ástæðan fyrir því að okkur lang­aði að gera fugla­spil er afar ein­föld - við vissum ekki neitt um fugla og grun­aði að fleiri væru í sömu spor­um. Við vildum kveikja áhuga land­ans á fugl­unum okkar og sömu­leiðis for­vitni til að vita meira. Því varð spil fyrir val­inu en þau hafa þann eig­in­leika að gera við­fangs­efnið bæði skemmti­legt og fræð­andi í senn.“

Hvernig spilar maður það?

„Við vildum ekki gera hefð­bundið spurn­inga- eða ten­inga­spil og sömu­leiðis fannst okkur mik­il­vægt að leik­menn þyrftu ekki að vita neitt um fugla til að geta tekið þátt í spil­inu. Þannig koma allir jafnir inn í spilið sem reynir fremur á her­kænsku og klók­indi leik­manna. Fugla­fár er tví­þætt spil og inni­heldur 30 íslenska varp­fugla. Spilið er fyrir 7 ára og eldri og geta leik­menn verið 2-4. Leik­irnir tveir sem hægt er að spila í Fugla­fári eru Gettu hver fugl­inn er og Fuglatromp og eru þeir byggðir á hinum sívin­sælu spil­um Guess Who og Top Trumps.“

Út á hvað gengur spil­ið?

„Fugla­fár hefur það að mark­miði að kveikja áhuga á íslensku fugl­un­um. Leik­menn læra að þekkja nöfn og útlit fugl­anna auk þess sem ýmis skemmti­legur fugla­fróð­leikur leyn­ist í spil­inu. Fugla­fár skapar kjör­inn vett­vang fyrir fjöl­skyldur og vini til að sam­ein­ast í leik og skapa góðar minn­ingar - og von­andi smit­ast af fugla­bakt­er­í­unni í leið­inn­i!“

Verk­efnið er að finna hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk
None