Innlögnum vegna lyfseðilsskyldra lyfja fækkar samhliða lögleiðingu kannabisefna

Dánartíðni vegna verkjalyfja úr flokki ópíóða hefur fjórfaldast í Bandaríkjunum á 20 árum. Þar sem kannabis er löglegt fækkar innlögnum vegna misnotkunar slíkra efna.

Kannabisplanta.
Kannabisplanta.
Auglýsing

Í grein sem birt­ist nýverið í tíma­rit­inu Drug and Alcohol Dependence kemur fram að í þeim fylkjum Banda­ríkj­anna þar sem kanna­bis­efni hafa verið lög­leidd fækkar sjúkra­húsinn­lögnum vegna mis­notk­unar á lyf­seð­ils­skyldum verkja­lyfj­um. Lög­leið­ingin virð­ist aftur á móti ekki auka inn­lagnir vegna notk­unar kanna­bis­efna.

Notkun lyf­seð­ils­skyldra verkja­lyfja úr flokkið ópíóíða er mikið vanda­mál víða um heim og hefur dán­ar­tíðni vegna notk­unar þeirra í það minnsta fjór­fald­ast í Banda­ríkj­unum á síð­ustu tutt­ugu árum.

Afar skiptar skoð­anir eru á lög­mæti þess að lög­leiða kanna­bis efni en víða í Banda­ríkj­unum hafa þau verið lög­leidd til notk­unar í lækn­is­fræði­legum til­gangi, til dæmis til að bæta líða þeirra sem þjást af krabba­meini. Rann­sóknir á notk­una kanna­bis­efna hafa sýnt að þrátt fyrir það að kanna­bis efni séu síður en svo skað­laus þeim sem þau nota að stað­aldri eða hefja notkun efn­anna snemma á lífs­leið­inni eru áhrifin minni­háttar hjá þeim sem nota kanna­bis­efni stöku sinn­um.

Auglýsing

Í úrvinnslu rann­sókn­ar­innar voru gögn um útskriftir frá spít­ölum á árunum 1997 til 2014 skoðuð í 27 fylkjum Banda­ríkj­anna. Þegar útskriftir vegna ópíóða fíkn­ar, mis­notk­unar eða ofskömmt­unar voru skoðuð sér­stak­lega kom í ljós að í þeim fylkjum þar sem notkun kanna­bis­efna hafði verið lög­leidd í lækn­inga­skyni féll tíðni inn­lagna vegna mis­notk­unar ópíóíða um 23% og ofskömmt­unar um 11%.

Í öllum fylkjum fjölg­aði inn­lögnum tengdum notkun á bæði kanna­bis­efnum og lyf­seð­ils­skyldum verkja­lyfjum um 300% á tíma­bil­inu. Engar vís­bend­ingar fund­ust um að lög­leið­ing kanna­bis­efna leiddi til fjölg­unar á inn­lögnum vegna notk­unar efn­anna.

Höf­undur grein­ar­inn­ar, Yuyan Shi, bendir á að ekki sé hægt að full­yrða að lög­leið­ingin kanna­bis­efna sé í raun það sem er að valda fækkun inn­lagna vegna notk­unar lyf­seð­ils­skyldra verkja­lyfja. Þó séu sterkar vís­bend­ingar um að það sé hlið­ar­verkun lög­leið­ing­ar­inn­ar. Shi mælir ekki með því að lög­leið­ing kanna­bis­efna sé notuð í þeim til­gangi að draga úr notkun lyf­seð­ils­skyldra verkja­lyfja að svo stöddu en bendir á mik­il­vægi þess að rann­saka tengslin þar á milli frek­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk
None