4 ára rusl í einni krukku

Allt rusl sem Lauren Singer hefur þurft að kasta frá sér síðastliðin fjögur ár kemst fyrir í einni lítilli krukku.

Lauren Singer og allt ruslið sem hún hefur ekki getað losað sig við á umhverfisvænan hátt síðustu fjögur ár.
Lauren Singer og allt ruslið sem hún hefur ekki getað losað sig við á umhverfisvænan hátt síðustu fjögur ár.
Auglýsing

Lauren Sin­ger ákvað fyrir rúm­lega fjórum árum að hefja ruslausan lífs­stíl og koma öllu því rusli sem hún gat ekki losað sig við á umhverf­is­vænan hátt í krukku. Hún heldur úti vef­síð­unni Trash is for toss­ers þar sem hún gefur fólki inn­sýn í rusl­laust líf sitt, svarar spurn­ingum og ráð­leggur fólki sem vill taka þetta skref. Hún lifir eftir lífs­speki sem hún kallar „zero waste“ þar sem allt sem hún notar er end­ur­nýtt á ein­hvern hátt.

Nema það sem hefur farið í krukk­una.

Í upp­hafi árs ákvað hún að róta aðeins í krukk­unni sinni og telja upp þá hluti sem hafa fallið til og hún hefur ekki fundið nyt fyr­ir. Allt í krukk­unni er úr plasti sem ekki er hægt að end­ur­vinna í end­ur­vinnslu­stöðvum í New York í Banda­ríkj­unum þar sem hún býr.



Sin­ger hefur það að mark­miði að allt sem lendir í fórum hennar ver­iði að vera end­ur­vinn­an­legt á ein­hvern hátt. Þeir hlutir sem hafa lent í krukk­unni eiga það hins vegar sam­eig­in­legt að vera eitt­hvað sem hún hefur feng­ið, þrátt fyrir að hafa beðið um ann­að.

Allt annað sem hún hefur eign­ast eða notað síð­ustu fjögur ár hefur ekki farið á rusla­haug­ana. „Allt sem ég nota rotnar og verður að mold, hægt að end­ur­nýta óend­an­lega eða end­ur­vinn­an­legt að fullu,“ segir Sin­ger.

Auglýsing

Lærði umhverf­is­fræði

Lauren Singer býr í New York.Sin­ger nam umhverf­is­fræði í háskóla og hefur alltaf haft áhuga á nátt­úr­unni og nátt­úru­vernd. Hún segir að tvö augna­blik í lífi hennar hafi ráðið því að hún ákvað að breyta um lífs­stíl þar sem ekk­ert ætti að fara til spillis:

„Það fyrsta var á útskrift­ar­ár­inu mínu í skól­anum þegar kenn­ar­inn minn lagði áherslu á mik­il­vægi þess að lifa eftir eigin lífs­gild­um,“ segir hún á vef sín­um. „Það fékk mig til þess að hugsa um mitt eigið vist­spor.“

„Seinna augna­blikið var þegar sam­nem­andi minn kom með nesti í skól­ann alla daga; inn­bundið í plast­poka og vatn í nýrri plast­flösku. Ég fylgd­ist með þessu og hugs­aði við eigum að vera fram­tíð þess­arar plánetu og hér erum við með ruslið okkar að rusla allt til.

Sin­ger seg­ist síðar hafa heyrt af fjöl­skyldu í Kali­forníu sem lifði rusl­lausu lífi. „Þá ákvað ég fyrir alvöru að ég ætti ekki aðeins að segj­ast elska umhverf­ið, heldur lifa eftir þeirri stað­reynd.“

Hægt er að lesa nánar um það hverju Lauren Sin­ger hefur skipt út á heim­ili sínu til þess að forð­ast óþarfa úrgang á vefnum hennar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk
None