Afar há gildi PCB efna í háhyrningnum Lulu vekja óhug

PCB efni eru svokölluð þrávirk lífræn efni. Þau voru mikið notuð í framleiðslu upp úr fjórða áratug síðustu aldar og voru losuð út í hafið með frárennsli frá verksmiðjum. Í dag hefur notkun efnanna verið bönnuð en áhrifanna gætir enn.

killer whale
Auglýsing

Háhyrn­ingar eru sjald­gæf sjón við strendur Bret­lands og telja í raun aðeins átta dýr. Þar til í byrjun jan­úar voru háhyrn­ing­arnir níu en snemma í mán­uð­inum rak kýr­in Lulu á land eftir að hafa flækst í veið­ar­færum. Nú hefur ýtar­leg rann­sókn á hræi Lulu leitt í ljós að óhemju há gildi af PCB efnum höfðu safn­ast upp í lík­ama henn­ar. 

Í skýrslu um rann­sókn­ina á Lulu kom í ljós að í spiki hennar var að finna 957 millígrömm af PCB efnum fyrir hvert kíló af spiki. Þetta er marg­falt yfir mörkum eitr­un­ar­á­hrifa auk þess að vera hæstu gildi sem mælst hafa í sjáv­ar­spen­dýri fram að þessu.

PCB efn­i eru svokölluð þrá­virk líf­ræn efni. Þau voru mikið notuð í fram­leiðslu upp úr fjórða ára­tug síð­ustu aldar og voru losuð út í hafið með frá­rennsli frá verk­smiðj­um. Í dag hefur notkun efn­anna verið bönnuð en áhrif­anna gætir enn. 

Auglýsing

Efnin brotna hægt niður í umhverf­inu og safn­ast því fyrir í fæðu­keðj­unni. Því ofar sem komið er í fæðu­keðj­una því meira magn finnst og hafa eldri dýr almennt meira af upp­söfn­uð­um PCB efnum en þau sem yngri eru. Sé mikið af upp­söfn­uðu PCB í lík­ama dýra geta efnin haft nei­kvæð áhrif á heilsu dýrs­ins og geta til dæmis aukið líkur á krabba­meini og haft áhrif á frjó­semi.

Eftir rann­sóknir á Lulu kom í ljós að þrátt fyrir að vera 20 ára og hafa átt að vera á hápunkti frjó­semi sinnar hafði hún aldrei borið kálf. Þetta þykir benda til þess að eitr­un­ar­á­hrif PCB efn­anna hafi valdið ófrjó­semi hjá háhyrn­ingn­um. 

Ekki hefur fæðst káflur hjá bresku háhyrn­ing­unum á síð­ustu 23 árum og veldur þessi nið­ur­staða vís­inda­mönnum því miklum áhyggj­um. Þeir telja að það kunni að vera að allur hóp­ur­inn sé ófrjór sem gæti þýtt enda­lok stofns­ins á svæð­inu.

Fréttin birt­ist líka á Hvat­inn.­is.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk
None