Sjálfstæðismenn segja stöðuna á rekstri Reykjavíkurborgar vera „skelfilega“

ráðhús reykjavík
Auglýsing

Aðal­sjóður Reykja­vík­ur­borgar mun skila tapi upp á 18,2 millj­arða króna á árinu 2015 sam­kvæmt útkomu­spá og rekstur A-hluta henn­ar, sem ­sam­anstendur af aðal­sjóði, eigna­sjóði og bíla­stæða­stjóði, verður rek­inn með­ 13,4 millj­arða króna tapi. Fjár­hags­á­ætlun fyrir árið 2015 gerði ráð fyrir að halli á aðal­sjóði yrði um fimm millj­arðar króna. Því skeikar rúmum 15 millj­örðum krónum á áætlun sem sam­þykkt var í fyrra og útkomu­spánni sem lögð var fram í borg­ar­stjórn í dag. Odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir stöð­una vera skelfi­lega.

Í fjár­hags­á­ætlun borg­ar­innar fyrir næsta ár kemur hins veg­ar fram að reka eigi A-hluta með 567 millj­óna króna afgangi á árinu 2016. Sam­stæða Reykja­vík­ur­borg­ar, A- og B-hlut­i, á að vera rekin með 8,1 millj­arða króna afgangi á næsta ári.

Segja slæman ­rekstur koma niður á þjón­ustu

Borg­ar­stjórn­ar­flokk­ur ­Sjálf­stæð­is­flokks, sem er í minni­hluta í borg­ar­stjórn, sendi frá sér­ til­kynn­ingu vegna fjár­hags­á­ætl­un­ar­innar í dag. Þar segir að í áætlun árs­ins 2016 sé gert ráð fyrir hag­ræð­ingu á mála­flokkum grunn­þjón­ust­unnar upp á 1,8 millj­arða króna. „Stærstu þættir grunn­þjón­ustu borg­ar­innar eru skóla- og vel­ferð­ar­kerf­ið. Það er því  miður að þessi slæmi rekstur mun koma niður á þjón­ustu gagn­vart ­borg­ar­bú­um“.

Auglýsing

Hall­dór Hall­dórs­son, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík­, ­segir í til­kynn­ingu að staðan á rekstri borg­ar­innar sé „skelfi­leg“. Ef borgin væri fyr­ir­tæki í þeirri stöðu sem útgöngu­spá fyrir árið 2015 og fjár­hags­á­ætlun árs­ins 2016 lýsa þá væri hlut­hafa­fundur boð­aður í skyndi og ­skipt um stjórn­endur“, sagði Hall­dór í umræðum um áætl­un­ina í borg­ar­stjórn í dag.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None