Íslamska ríkið lýsir yfir ábyrgð á árásunum í París

París
Auglýsing

Íslamska ríkið (IS­IS) hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu á frönsku þar sem sam­tökin lýsa yfir ábyrgð á árás­unum í París í gær­kvöldi. Þar segir að átta „bræð­ur" með sprengju­belti og byssur hafi ráð­ist á skot­mörk í hjarta Par­ísar í gær. Skot­mörkin hafi verið valin sér­stak­lega í aðdrag­anda árásanna „Stade de France á meðan að lands­leikur gegn Þýska­landi stóð yfir sem hinn heimski (e. imbeci­le) Francois Hollande horfði á; Bataclan that sem hund­ruð skurð­goða­dýrk­enda hafi safn­ast saman í sið­spilltri veislu auk ann­arra skot­marka í tíunda, ell­efta og tólfta hverf­is". The Guar­dian greinir frá. 

Í yfir­lýs­ing­unni segir einnig að Frakk­land sé lyk­il­skot­mark sam­tak­anna. Landið hafi dirfst að móðga spá­mann­inn Múhameð, gortað sig af því að hafa barist gegn Islam í Fraklandi og notað flug­vélar sínar til að ráð­ast á múslima í Íslamska rík­inu (e. Calip­hate) hafi ekki hjálpað Frökkum á nokkur hátt á „illa þefj­andi strætum Par­ís­ar". Árás­irnar séu ein­ungis byrj­unin á „stormi".

Ráð­ist var á Par­ís, höf­uð­borg Frakk­lands, í gær­kvöldi. Talið er að árás­ar­menn­irnir hafi verið átta og eru þeir allir látn­ir, sjö þeirra með því að sprenga sjálfa sig í loft upp. Vit­orðs­menn ganga þó enn laus­ir. Árá­sa­menn­irnir drápu að minnsta kosti 128 manns og særðu um 200 í við­bót, þar af um 100 alvar­lega. Ráð­ist var á fólkið með hríð­skota­byssum og sprengjum við þjóð­ar­leik­vang Frakka, á börum, veit­inga­stöðum og í tón­leika­sal í Par­ís. Allir stað­irnir áttu það sam­eig­in­legt að vera staðir þar sem fólk fer til að skemmta sér. Til að horfa á fót­bolta, drekka, borða, hlusta á tón­list. Og sam­kvæmt fregnum flestra miðla heims var árás­unum ekki beint gegn neinum sér­stökum ein­stak­ling­um. Árás­ar­menn­irnir voru að reyna að myrða sem flesta.

Auglýsing

Árás­irn­ar, sem virð­ast þaul­skipu­lagð­ar, áttu sér stað á sex mis­mun­andi stöðum víðs­vegar um Par­ís, sam­kvæmt The Guar­di­an.Tvær sjálfs­morðsárásir voru gerðar á Stade de France,  þjóð­ar­leik­vang Frakka í norð­ur­hluta borg­ar­inn­ar, á meðan að lands­lið Frakka lék æfinga­leik við Þýska­land. Fleiri sprengjur sprungu við leik­vang­inn.

Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um atburði gær­dags­ins í frétta­skýr­ingu í morg­un.





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None