Björk er fimmtug í dag

Frægasti Íslendingurinn og ein áhrifamesta manneskja heims þakkar fyrir sig með náttúruvernd

Björk Guðmundsdóttir
Auglýsing

Björk Guð­munds­dóttir er fimm­tug í dag, 21. nóv­em­ber. Hún er ekki ein­göngu fræg­asti Íslend­ing­ur­inn heldur er hún líka talin einn 100 áhrifa­mestu ein­stak­linga heims­ins, að mati TIME mag­azine. Tíma­ritið valdi hana á list­ann fyrr á árinu, og setti í hóp íkona. Þar eru líka Frans páfi, söng­konan Taylor Swift, rit­höf­und­ur­inn Haruki Muraka­mi, Malala Yousafzai og Ruth Bader Gins­burg, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari í Banda­ríkj­un­um.

Í fjöl­miðlum víða um heim er þess­ara tíma­móta get­ið. Í dönsku blöð­unum Politi­ken og Berl­inske tiderne var fjallað um afmælið í gær. Í Sví­þjóð er einnig fjallað um hana, Dag­ens Nyheter tekur saman fimm mynd­bönd með henni og sænska rík­is­út­varpið greinir frá því að í óperu­hús­inu í Umeä verða í kvöld haldnir sin­fón­íu­tón­leikar henni til heið­ur­s. 

Auglýsing

El Mundo á Spáni óskar Björk til­ ham­ingju með dag­inn og skrifar grein um feril hennar, sem einnig er gert í Para­méter í SlóvakíuTón­list­ar­tíma­ritið NME heldur upp á afmæli Bjarkar með yfir­grips­miklu myndagall­eríi og sögum af ferli hennar og Dou­blej segir Björk vera í dag eins og alltaf „al­gjör­lega ein­staka“. 

Finnst Ísland fjár­sjóður 21. ald­ar­innar

Björk hefur látið mikið til sín taka í nátt­úru­vernd á und­an­förnum árum. Fyrr í þessum mán­uði hélt hún blaða­manna­fund ásamt Andra Snæ Magna­syni rit­höf­undi, þar sem heims­byggðin var beðin um hjálp við að stemma stigu við stór­iðju­stefnu stjórn­valda hér á landi.

Í fyrra vakti hún líka mikla athygli þegar hún og Dar­ren Aronof­sky kvik­mynda­leik­stjóri stóðu meðal ann­arra fyrir tón­list­ar­legum stór­við­burði til að krefj­ast þess að aft­ur­köllun nátt­úru­vernd­ar­laga yrði dregin til baka. Fé var safnað fyrir Nátt­úru­vernd­ar­samök Íslands og Land­vernd. 

Björk kom í einka­við­tal við Kjarn­ann í tengslum við þessa tón­leika. Grípum niður í við­talið: „Við viljum virkja þjóð­ina í fjár­söfnun svo að sam­tökin geti starfað af fullum styrk og sem full­trúar okkar og nátt­úr­unn­ar. Svo þau geti ráðið sér lög­menn, prentað plaköt og verið með alvöru skot­færi til að fylgja þessu máli alla leið.“ 

Hún sagð­ist von­ast til þess að rík­is­stjórnin hlust­aði á þjóð­ina sína. „Ég er fyrst og fremst tón­list­ar­kona sem hefur nærst mikið af nátt­úr­unni. Svo hef ég verið að þakka fyrir mig með því að reyna að vernda hana. Þar get ég ekki verið hlut­laus. En ég hef aldrei kosið stjórn­mála­flokk og hef vandað mig í að dreifa orkunni minni ekki of mikið í aðrar átt­ir. Ég vil ekki missa fók­us­inn á nátt­úru­vernd.“ 

Björk sagði fólk í kringum hana telja Íslend­inga heppna. „Fólki í borgum erlendis finnst það vera búið að eyði­leggja jörð­ina. Það er fullt af sekt­ar­kennd. Fólk er lamað af sekt­ar­kennd og veit ekki hvar það á að byrja. Og það dáist að okkur fyrir að hafa haldið land­inu okkar „ósnert­u“. Því finnst það vera fjár­sjóður tutt­ug­ustu og fyrstu ald­ar­inn­ar. Því finnst við vera mjög hepp­in.“ 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk
None