Fangelsismálastjóri: Rangar fullyrðingar - Notkun á orðinu mannréttindabrot algjört virðingarleysi

Fangelsi---Kv--abryggju.jpg
Auglýsing

Páll Win­kel, for­stjóri Fang­els­is­mála­stofn­un­ar, segir notkun Ingi­bjargar Krist­jáns­dótt­ur, eig­in­konu Ólafs Ólafs­son­ar, fanga á Kvía­bryggju, á hug­tak­inu „mann­rétt­inda­brot“ vera í „besta falli skiln­ings­leysi og algert virð­ing­ar­leysi við fólk sem raun­veru­lega hefur orðið fyrir mann­rétt­inda­brotum af hálfu yfir­valda hér á land sem ann­ars stað­ar.“

Ingi­björg Krist­jáns­dótt­ir, eig­in­kona Ólafs Ólafs­son­ar, segir Pál Win­kel, for­stjóra Fang­els­is­mála­stofn­un­ar, brjóta á rétt­indum fanga eins og eig­in­manns henn­ar. Hún sakar hann einnig um að tjá sig opin­ber­lega um einka­mál útrás­ar­vík­inga og banka­manna sem sitja í fang­els­inu að Kvía­bryggju og fara með ósann­indi um þá. Þetta segir hún í aðsendri grein í Frétta­blað­inu í gær. 

Ólafur Ólafsson.

Auglýsing

„Fram­ganga Páls er sér­lega ósmekk­leg í ljósi þess að hann veit manna best að frels­is­svipt­ingin ein og sér er mönnum nógu erfið þó mann­rétt­indi þeirra séu ekki brotin sam­hliða“ segir Ingi­björg. Þetta hafi verið gert á kostnað skjól­stæð­inga Páls, „fanga sem eiga sér fáa málsvara í þjóð­fé­lagi hat­urs og hefnigirni, fanga sem Páll veit að er óheim­ilt að tjá sig í fjöl­miðl­um. Fang­arnir eru því varn­ar­lausir gegn aðför for­stjóra Fang­els­is­mála­stofn­un­ar.“



Páll segir full­yrð­ingar Ingi­bjarg­ar, um hin ýmsu mál sem snúa að fang­els­is­mála­yf­ir­völdum og honum sjálf­um, vera rang­ar.

„Ég hélt fyrst þegar ég las þessa grein að um grín væri að ræða. Kon­an, sem kveðst maki refsi­fanga, sakar mig um ýmis brot eins og gengur og sakar mig m.a. ann­ars um nafn­grein­ingu ónafn­greindra fanga. Ég er vanur athuga­semdum frá Afstöðu, félagi fanga, þar sem ég þarf oft að svara fyrir ummæli og gjörðir mín­ar. Það er góður og eðli­legur sam­skipta­máti minn við full­trúa fanga. Sam­skipti mín við Afstöðu eru góð þrátt fyrir að við séum, eðli máls sam­kvæmt, ekki sam­mála um alla hluti. Ef ég ætti að svara öllum aðstand­endum fanga, hverjum um sig, gerði ég ekki annað enda skipta þeir hund­ruð­um. Ég get því ekki eytt miklum tíma í svona athuga­semdir aðstand­enda eða almanna­tengsla­fyr­ir­tækja. Mér finnst þó rétt að svara einu atriði bréfs­ins efn­is­lega. Notkun kon­unnar á hug­tak­inu „mann­rétt­inda­brot“ er í besta falli skiln­ings­leysi og algert virð­ing­ar­leysi við fólk sem raun­veru­lega hefur orðið fyrir mann­rétt­inda­brotum af hálfu yfir­valda hér á landi sem ann­ars stað­ar. Að öðru leyti ekki er annað um skrifin að segja en að full­yrð­ingar makans eru rang­ar,“ sagði Páll í sam­tali við Kjarn­ann.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None