Fyrsta húsnæðisfrumvarpið lagt fram á Alþingi

eyglo-har--ardottir.jpg
Auglýsing

Eygló Harð­ar­dótt­ir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, hefur lagt fram frum­varp um hús­næð­is­sam­vinnu­fé­lög á Alþingi. Frum­varpið var sam­þykkt úr rík­is­stjórn síð­ast­lið­inn föstu­dag. Frum­varpið er fyrsta frum­varpið af fjórum stórum hús­næð­is­mála­frum­vörpum sem ýmist voru lögð fram á síð­ustu dögum þings­ins í sumar eða stóð til að leggja fram en var ekki gert. 

Matth­ías Ims­land, aðstoð­ar­maður Eygló­ar, segir í sam­tali við Kjarn­ann að enn standi til að öll hús­næð­is­mála­frum­vörpin verði lögð fram á þingi fyrir jól. Samt hefur ekk­ert hinna frum­varpanna verið afgreitt úr rík­is­stjórn. Aðeins eru átta þing­funda­dagar eftir af haust­þing­inu sam­kvæmt starfs­á­ætlun þings­ins og öll þing­mál eiga að hafa verið lögð fram fyrir lok þessa mán­að­ar, eða næsta mánu­dag í síð­asta lagi. Fyr­ir­séð er að mik­ill tími þessa daga mun fara í umræður um fjár­laga­frum­varp­ið, eins og alltaf. 

Ljóst er þó að starfs­á­ætlun þings­ins mun riðl­ast vegna þess að afgreiðsla fjár­laga verður seinna á ferð­inni en áætlað var. Samkvæmt starfs­á­ætlun Alþingis átti að hefja aðra umræðu um fjár­lögin á morg­un, og þriðja umræða átti að hefj­ast viku seinna, eða þann 3. des­em­ber. Nú er orðið ljóst að þetta mun riðlast, þar sem að fjár­laga­nefnd hóf umfjöllun sína um fjár­lögin ekki fyrr en á mánu­dag. Ástæðan er sú að rík­is­stjórnin afgreiddi ekki sínar til­lögur fyrir aðra umræðu fjár­laga fyrr en á föstu­dags­eft­ir­mið­dag. 

Auglýsing

Þing­menn hafa gagn­rýnt skort á þing­málum frá rík­is­stjórn­inni, og eins og fram kom í frétta­skýr­ingu Kjarn­ans fyrr í vik­unni höfðu aldrei verið komin fram eins fá stjórn­ar­frum­vörp á þess­ari öld og á núver­andi haust­þingi. Síðan þá hafa tvö stjórn­ar­frum­vörp verið lögð fram. 

Vand­ræði í hús­næð­is­málum

Eygló hafði talað um það síð­ast­lið­inn vetur að hús­næð­is­málin yrði að klára á því þingi og að jafn­vel ætti að halda sum­ar­þing til þess að klára þau. Jafn­vel þótt þingið hafi starfað langt fram á sumar komust mál­in, sem hún náði að leggja fram, ekki úr nefnd.

Í þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar voru boðuð fjögur frum­vörp um hús­næð­is­mál á liðnum vetri. Það voru frum­varp til laga um hús­næð­is­bæt­ur, um hús­næð­is­sam­vinnu­fé­lög, um breyt­ingu á húsa­leigu­lögum og um hús­næð­is­mál, en hið síð­ast­nefnda fjallar um stofn­styrki til félags­legs leigu­hús­næð­is. Öll frum­vörpin voru boðuð aftur í þing­mála­skrá þessa árs. 

Eygló og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra deildu opin­ber­lega vegna sumra af frum­vörp­un­um, sem fjár­mála­ráðu­neytið gagn­rýndi harð­lega í umsögnum sín­um. 

Þann 28. maí kynnti rík­is­stjórnin svo sínar aðgerðir til að liðka fyr­ir gerð kjara­samn­inga. Þar á meðal var yfir­lýs­ing rík­is­stjórn­ar­innar um hús­næð­is­mál. Þar var meðal ann­ars að finna lof­orð um stofn­styrki til upp­bygg­ingar félags­legs leigu­í­búða­kerfis og nýtt hús­næð­is­bóta­kerfi. Í yfir­lýs­ing­unni kemur fram að frum­varpið um hús­næð­is­bætur ætti að að koma fyrir vor­þing í ár og önnur frum­vörp á haust­þingi, þau ætti að afgreiða fyrir ára­mót. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None