Seðlabankinn braut jafnréttislög

Bankinn réði konu og karl á sama svið og á sama tíma. Þau höfðu sömu menntun og svipaða reynslu en laun konunnar voru frá upphafi lægri en karlsins.

sedlabankinn.jpg
Auglýsing

Seðla­banki Íslands braut gegn jafn­rétt­islögum og þarf að greiða konu, sem kærði bank­ann, 250 þús­und krónur í máls­kostnað sam­kvæmt úrskurði kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála

Konan var ráðin inn til bank­ans í maí 2014 sem sér­fræð­ingur í und­an­þágu­deild gjald­eyr­is­eft­ir­lits bank­ans og á sama tíma var ráð­inn inn karl í sam­bæri­lega stöðu sem sér­fræð­ingur í rann­sókn­ar­deild gjald­eyr­is­eft­ir­lits bank­ans. Konan og karl­inn luku meist­ara­námi í lög­fræði með árs milli­bili og höfðu bæði aflað sér mál­flutn­ings­rétt­inda. Kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála bendir á í sínum úrskurði að þau séu nán­ast á sama aldri og hafi verið svipað lengi á vinnu­mark­aði eftir útskrift. Nákvæm­lega sömu hæfn­is­kröfur voru einnig gerðar í aug­lýs­ingu fyrir störfin tvö og við ráðn­ingu var þeim báðum raðað í sama launa­flokk­inn og sama þrepið innan þess flokks.

Nið­ur­staða Seðla­bank­ans við ákvörðun launa var hins vegar að konan fékk 17 pró­senta álag ofan á kjara­samn­ings­launin en karl­inn fékk 32,4 pró­senta álag ofan á sín laun. 

Auglýsing

Kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála segir Seðla­bank­anum ekki hafa tek­ist að sýna fram á að launa­mun­ur­inn milli kon­unnar og karls­ins hafi komið til vegna nokk­urs ann­ars en kyn­ferðis þeirra. 

Seðla­bank­inn hélt því fram í mál­inu að öll laun starfs­manna í gjald­eyr­is­eft­ir­liti séu ákveðin með sama hætti, óháð því hvort um sé að ræða konur eða karla. Hlut­fall álags­ins sem um ræðir er ákvarðað með til­liti til mál­efna­legra sjón­ar­miða, segir Seðla­bank­inn, eins og mennt­un­ar, þekk­ingar og reynslu af þeim við­fangs­efnum sem við­kom­andi er að fara að takast á hend­ur. Við þessa ákvörðun fari fram hug­lægt mat­sem grund­vall­ist á upp­lýs­ingum úr umsókn, fer­il­skrá og starfsvið­tali. 

Seðla­bank­inn segir að karl­inn hafi verið tal­inn búa yfir víð­tæk­ari þekk­ingu og starfs­reynslu á þeim sviðum sem skiptu máli, og þess vegna hafi honum verið ákvarðað hærra álag. Hann hafi getað án sér­stakrar aðlög­unar og til­sagnar hafið rann­sókn á flóknum mál­u­m. 

Kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála bendir á að þetta þýði að ákvörðun um álag var tekin áður en báðir ein­stak­lingar hófu störf hjá bank­an­um. Þekk­ing þeirra var ekki prófuð en matið sem var fram­kvæmt byggð­ist helst á því sem þau sögðu í ráðn­ing­ar­við­töl­um. „Það getur vart talist mál­efna­legt í þessum efnum að leggja til grund­vallar ólíkar upp­lýs­ingar sem fram koma í ráðn­ing­ar­við­töl­um“ segir nefnd­in. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None