Ennþá pattstaða í Straumsvík - Kapp við tímann

Mikið hefur verið fundað að undanförnu, í þeirri von að samningar geti náðst í kjaradeilu starfsmanna í álveri Rio Tinto í Straumsvík.

rannveig.rist-.jpg
Auglýsing

Nú er reynt til þrautar að ná samn­ingum í kjara­deilu starfs­manna í álveri Rio Tinto Alcan í Straums­vík og fyr­ir­tæk­is­ins. Þrátt fyrir stíf funda­höld að und­an­förnu hafa samn­ingar ekki náðst en verk­fall hefst 2. des­em­ber ef ekki tekst að ná samn­ing­um.

Eins og fram hefur kom­ið, þá hafa stjórn­endur Rio Tinto Alcan til­kynnt bæj­ar­yf­ir­völdum í Hafn­ar­firði um að mögu­lega gæti álverið lokað var­an­lega ef til verk­falls kemur með til­heyr­andi fram­leiðslu­stoppi í álver­in­u. 

Það gæti reynst afar kostn­að­ar­samt fyrir fyr­ir­tæk­ið, þar sem móð­ur­fé­lags­á­byrgð er á umsömdum raf­orku­kaupum fyr­ir­tæk­is­ins, sam­kvæmt umfjöllun Við­skipta­blaðs­ins, en samn­ingur við Lands­virkjun gildir út árið 2036.

Auglýsing

Rio Tinto hefur gengið í gegnum mikið hag­ræð­ing­ar­ferli á heims­vísu í álf­ram­leiðslu sinni, vegna erf­iðra ytri aðstæðna. Frá árinu 2009 hefur fyr­ir­tækið lokað fjórum álverum og selt eign­ar­hluti í fjórum til við­bót­ar. 

Ál

Guð­mundur Ragn­ars­son, for­maður félags vél­stjóra og málm­tækni­manna (VM), hefur gagn­rýnt afstöðu Rio Tinto harð­lega, og meðal ann­ars sagt að fyr­ir­tækið sé alræmt á heims­vísu sem „alþjóð­legur auð­hringur“ sem svíf­ist einskis í hags­muna­bar­áttu sinn­i. „Um hvað snýst deilan í ÍSAL í raun? Hún snýst um alþjóða­væð­ingu auð­hringa sem beita öllum ráðum til að sjúga eins og þeir geta út úr þeim hag­kerfum sem þeir starfa í, með því að greiða lág laun, helst enga skatta né aðrar skyld­ur,“ skrifar Guð­mundur í pistli á vef VM.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None