Eyrir Invest og meðfjárfestar selja hlut sinn í Stork á tæpa 100 milljarða króna

Árni Oddur Þórðarson, einn stærsti eigandi Eyris Invest og forstjóri Marel.
Árni Oddur Þórðarson, einn stærsti eigandi Eyris Invest og forstjóri Marel.
Auglýsing

Eyrir Invest, Arle Capi­tal Partners og með­fjár­festar þeirra hafa gengið frá sölu á hol­lenska félag­inu Stork til banda­rísku iðn­að­ar­sam­steypunnar Fluor Cor­poration, eins stærsta verk­taka­fyr­ir­tækis í heimi, fyrir 695 millj­ónir evra, eða rúm­lega 98 millj­arða króna. Áætlað er að salan verði að fullu frá­gengin að fullu á fyrri helm­ingi næsta árs að höfðu sam­ráði og  upp­lýs­inga­gjöf til hags­muna­sam­taka starfs­manna og verka­lýðs­fé­laga í Hollandi og veittum heim­ild­um frá sam­keppn­is­yf­ir­völd­um.

Stærstu eig­endur Eyris Invest, sem átti 17 pró­sent hlut í Stork fyrir við­skipt­in, eru feðgarnir Þórður Magn­ús­son (20 pró­sent) og Árni Oddur Þorð­ar­son (17 pró­sent). Auk þeirra á rík­is­bank­inn Lands­bank­inn 11 pró­sent hlut og Líf­eyr­is­sjóður Verzl­un­ar­manna tíu pró­sent. Eyrir á einnig 29 pró­sent hlut í Mar­el, en virði þess hlutar hefur hækkað mikið und­an­farin miss­eri. Auk þess á fjár­fest­inga­fé­lagið Eyri Sprota sem fjár­festa í sprota­fyr­ir­tækjum og styður þau til vaxt­ar. Eyrir Sprotar er starf­rækt í sam­starfi við Arion banka.

Eyrir keypti Stock B.V. ásamt með­fjár­festum sínum árið 2007. Þá rak sam­steypan m.a. Fokker Technologies, Stork Tecn­ical Services og Stork Food Systems en kaup Mar­el hf. á því síð­ast­nefnda voru meg­in­á­stæða fyrir aðkomu Eyris Invest að verk­efn­inu.

Auglýsing

Fyrr á þessu ári var Fokker Technologies selt og með söl­unni sem nú hefur samist um lýkur aðkomu Eyris að Stork. Í frétta­til­kynn­ingu frá Eyri vegna við­skipt­anna seg­ir: Heild­ar­verð­mæti við­skipt­anna end­ur­speglar góðan rekstur Stork en jafn­framt aðstæður á mark­aði og nýlega lækkun á marg­föld­ur­um ­sam­an­burð­ar­fé­laga. Salan mun auka fjár­hags­legan sveigj­an­leika Eyr­is. Það ­stefnir í gott ár fyrir Eyri en á árinu hefur félagið lokið tveimur verk­efn­um og gengi Marel hefur hækkað mik­ið."

Kaup­and­inn, Fluor Cor­poration er í 136 sæti á lista FORTUNE yfir 500 stærstu félög heims, ­starfs­menn eru 40.000 í öllum heims­álfum og tekjur félags­ins á árinu 2014 námu 21,5 millj­örðum banda­ríkja­dala.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None