Segir mikinn erlendan áhuga á Arion banka

Jóhannes Rúnar Jóhansson, sem situr í slitastjórn Kaupþings.
Jóhannes Rúnar Jóhansson, sem situr í slitastjórn Kaupþings.
Auglýsing

Til greina kemur að selja 87 pró­sent hlut slita­stjórnar Kaup­þings í Arion ­banka í hlut­um. Verð­hug­myndir slita­stjórn­ar­innar eru fjarri geng­inu 0,6-0,8 af ­bók­færðu eigin fé bank­ans, líkt og rætt hefur verið um að hægt yrði að selja ­ís­lenska banka á. Hún vill fá meira fyrir Arion banka. Mik­ill áhugi sé erlend­is frá á hlutafé í Arion banka, meðal ann­ars frá Bret­landi og Skand­in­av­íu. Sum­ir þeirra hafa skjal­fest þann áhuga sinn í vilja­yf­ir­lýs­ingum og komið til Íslands­ ­vegna áhuga síns. Þetta kemur fram í við­tali við Jóhann­es Rúnar Jóhanns­son, sem sæti á í slita­stjórn Kaup­þings, í Við­skipta­Mogg­anum í dag.

Ljóst er að mikil upp­stokkun er framundan í ís­lensku banka­kerfi. Rík­is­sjóður ætlar að selja 30 pró­sent hlut í Lands­bank­an­um á næsta ári og vilji er til þess að selja Íslands­banka, sem ríkið fær sem hluta af stöð­ug­leika­fram­lagi Glitn­is, í náinni fram­tíð. Í sam­komu­lagi slita­stjórn­ar ­Kaup­þings við stjórn­völd, sem gerir henni kleift að ljúka slitum á búi bank­ans, er gert ráð fyrir því að selja verði Arion banka innan þriggja ára.

Í við­tal­inu við Jóhannes Rúnar kemur hins veg­ar fram að slita­stjórnin er ekki að flýta sér að því að selja bank­ann. Hann seg­ir þær verð­hug­myndir sem hafi verið rædd­ar, að virði bank­ans sé 0,6-0,8 af ­bók­færðu eigin fé hans, séu að hans mati óraun­hæfar og að í bókum Kaup­þings sé verð­mið­inn allt ann­ar. Þó sé erfitt að finna rétta verð­mið­ann. „Sitt sýn­ist hverjum í því. Arion banki er hins vegar vel rek­inn banki, bæði á íslenskan mæli­kvarða og ekki síður alþjóð­leg­an. Hann er skip­aður hæfum stjórn­endum sem hafa vak­ið eft­ir­tekt og góðu starfs­fólki. Hann hefur skilað góðum árangri und­an­farin ár. Hagn­aður hefur verið við­un­andi, arð­semi eigin fjár stöðug og góð og það hef­ur verið vax­andi þró­un. Það eru ágætir vaxt­ar­mögu­leikar innan bank­ans, hann er ­leið­andi á mörgum sviðum banka­starf­semi og inn­an­húss eru margar góðar eign­ir. Hann er búinn að fara í gegnum end­ur­skipu­lagn­ingu og lána­bókin meðal ann­ar­s verið tekin í gegn. Þannig að grunn­ur­inn sem bank­inn stendur á er mjög traust­ur og það hefur auð­vitað áhrif á verð­ið.“

Auglýsing

Jóhannes Rúnar segir að slita­stjórnin hafi hitt flesta stærst­u fjár­fest­inga­banka Bret­lands, og víðar frá, vegna áhuga á hlutafé í Arion banka. „Allir þessir aðilar vilja kom­ast að verk­efn­inu og taka þátt í því og all­ir telja sig geta selt að minnsta kosti hluta bank­ans erlend­is. Þessir fundir hafa komið til að frum­kvæði þeirra og þeir hafa í mörgum til­vikum lagt í mjög mikla vinnu við að greina bank­ann og sölu­mögu­leik­ana.“

Gegn áformum líf­eyr­is­sjóða

Ljóst er að við­talið við Jóhannes Rúnar er ekki í takt við þær vænt­ingar sem stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa haft gagn­vart því að eign­ast Arion banka. Kjarn­inn greindi frá því 14. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn að líf­eyr­is­sjóðir lands­ins ætli sér að reyna að kaupa bank­ann. Þeir ætl­uðu hins vegar ekki að taka þátt í þeim kaup­enda­hópum sem fjár­mála­fyr­ir­tækin Virð­ing og Arct­ica Fin­ance höfðu verið að reyna að setja sam­an, þrátt fyrir mik­inn þrýst­ing á stærstu sjóði lands­ins um að gera það.

Stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LS­R), Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna og Gildi líf­eyr­is­sjóður ætl­uðu þess í stað sjálfir að leiða kaup­in. Öllum líf­eyr­is­sjóðum lands­ins hefur verið boðið að vera með og ef kaupin myndu ganga eftir ætl­uðu líf­eyr­is­sjóð­irnir að skrá Arion banka á markað strax á næsta ári. Tveir fundir voru haldnir með slita­stjórn­inni í nóv­em­ber en þeir voru hvor­ugir form­legir og ljóst var á þeim að sala á Arion banka til líf­eyr­is­sjóð­anna, á því verði sem þeir hafa í huga, var ekki for­gangs­mál hjá slita­stjórn­inni. Líf­eyr­is­sjóð­irnir telja að verð­mið­inn á Arion banka ætti að vera í kringum 100 millj­arðar króna, en eigið fé bank­ans var 175 millj­arðar króna í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins. Það þýðir að líf­eyr­is­sjóð­irnir eru að meta 87 pró­sent hlut Kaup­þings í Arion banka á 0,6-0,7 af bók­færðu eigin fé hans.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None