Lögreglan á Íslandi má leggja hald á fjármuni útlendinga

Frumvarp hefur verið harðlega gagnrýnt í Danmörku, en heimildir eru þegar til staðar á Íslandi.

Lögreglan
Auglýsing

Lög­reglan á Íslandi hefur heim­ildir til þess að leggja hald á fjár­muni útlend­inga til þess að greiða fyrir kröfu vegna kostn­aðar við brott­för og gæslu, sam­kvæmt lögum um útlend­inga á Íslandi. Sam­kvæmt frum­varpi að nýjum útlend­inga­lögum verður þessu ekki breytt og heim­ilt verður að krefja hæl­is­leit­endur um end­ur­greiðslu á kostn­að­i. 

Þessar heim­ildir svipa til þeirra sem nú er lagt til að lög­reglan í Dan­mörku fái, til þess að fá kostnað við komu hæl­is­leit­enda end­ur­greiddan frá þeim. Frum­varp þess efnis hefur vakið mikla reiði og umræðu í Dan­mörku, en gert er ráð fyrir að lög­reglan megi leita í far­angri útlend­inga til að kanna hvort verð­mæti finn­ist þar. Frum­varpið var lagt fram fyrr í des­em­ber og gert er ráð fyrir því að það taki gildi sem lög í febr­úar næst­kom­andi. Leita má að verð­mætum til að mæta kostn­aði en stjórn­völd segja að lögin nái aðeins til afar verð­mætra eigna. Eins og fram kemur í umfjöllun mbl.is af mál­inu hefur verið vísað til eigna­upp­töku nas­ista í seinni heim­styrj­öld­inni í gagn­rýni á lög­in. 

Íslensk útlend­inga­lög gera ráð fyrir því að krefja eigi útlend­ing um end­ur­greiðslu kostn­aðar af rétt­ar­að­stoð að hluta til eða að öllu leyti ef hann hefur ráð á því. Jafn­framt gera lögin ráð fyrir því að útlend­ingur eigi að greiða kostnað af brott­för sinni og kostnað sem hlýs af því ef lög­regla þarf að fylgja við­kom­andi ein­stak­ling úr land­inu. Gera má fjár­nám vegna þess­arar kröfu og hún getur líka verið grund­völlur frá­vís­unar frá land­inu ef útleni­dingur kemur aftur til lands­ins síð­ar. 

Auglýsing

Auk þess sem lög­reglan hefur heim­ildir til þess að leggja hald á fjár­muni fólks má leggja hald á far­seðla sem finnst í fórum útlend­ings. Lög­mað­ur­inn Árni Helga­son bendir á þessa heim­ild í lög­unum á Face­book-­síðu sinni, en segir jafn­framt að hann viti ekki til þess að þessum ákvæðum hafi verið beitt. Heim­ildin er hins vegar til stað­ar. 

Þessar heim­ildir verða áfram til staðar ef frum­varp til nýrra útlend­inga­laga verður að veru­leika, en frum­varpið var samið af þverpóli­tískri nefnd og skilað inn til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins fyrir skemmstu. Ekki er fjallað sér­stak­lega um þessi ákvæði í grein­ar­gerðum með frum­varp­in­u. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None