Dagskrárstjórar segja ríkisstjórnina ógna ritstjórnarlegu sjálfstæði RÚV

rúv
Auglýsing

Stjórn­endur og ábyrgð­ar­menn dag­skrár Rík­is­út­varps­ins (RÚV) hafa ­sent stjórn RÚV yfir­lýs­ingu þar sem þeir lýsa áhyggjum sínum af „ákvörð­un ­rík­is­stjórnar Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar sem ógna rit­stjórn­ar­leg­u ­sjálf­stæði Rík­is­út­varps­ins.“  Und­ir­ ­yf­ir­lýs­ing­una rita Rakel Þor­bergs­dóttir frétta­stjóri, Þröstur Helga­son, ­dag­skrár­stjóri Rásar 1, Frank Hall, dag­skrár­stjóri Rásar 2, Skarp­héð­inn Guð­munds­son, dag­skrár­stjóri sjón­varps og Ingólfur Bjarni Sig­fús­son, vef- og nýmiðla­stjóri. Kjarn­inn hefur yfir­lýs­ing­una undir hönd­um. Hún var send síð­degis í dag á alla stjórn­ar­menn og vara­menn þeirra.

Ástæða yfir­lýs­ing­ar­innar er sú ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar að leggja RÚV til 175 millj­óna króna við­bót­ar­fram­lags sem skil­yrt er til notk­unar í kvik­mynda- og þátta­gerð. Þetta við­bót­ar­fram­lag átti að koma til móts við fjár­þörf RÚV í ljósi þess að rík­is­stjórnin vildi ekki draga til baka skerð­ingu á útvarps­gjald­inu um kom­andi ára­mót.

Í yfir­lýs­ing­unni segir að sú stefnu­mark­andi ákvörð­un ­rík­is­stjórn­ar­innar að lækka útvarps­gjaldið muni óhjá­kvæmi­lega leiða til­ ­mik­illar rösk­unar á dag­skrá allra miðla og draga úr getu RÚV til að standa undir lög­bundnu hlut­verki sínu. Það veki furðu í ljósi þess árang­urs sem náð­st hafi í rekstri, sem nú síð­ast var skilað halla­laus­um. „Við þetta bæt­ist ­for­dæma­laust inn­grip í rit­stjórn­ar­legt sjálf­stæði RÚV þar sem rík­is­stjórn­in hefur tekið sér beint dag­skrár­vald með fjár­fram­lagi sem bundið er til­teknu dag­skrár­fram­boð­i. Sú ákvörðun er í bága við þær grund­vall­ar­hug­myndir um fjöl­miðla- og tján­ing­ar­frelsi sem liggja almanna­þjón­ustu­miðlum til grund­vall­ar.“

Auglýsing

Dag­skrár­stjór­arnir segja það brýnt að áretta að allt frá því að Útvarps­ráð var lagt niður hafi hlut­verk stjórnar RÚV verið skýrt og að ekki sé ætl­ast til þess að hún skipti sér af dag­legum rekstri né ein­stökum dag­skrár­lið­u­m. „­Stjórnin er enda póli­tískt skipuð og afskipti af dag­skrá væru ósam­ræm­an­leg grund­vall­ar­sjón­ar­miðum um sjálf­stæði RÚV. Rit­stjórn­ar­leg ábyrgð liggur ein­ung­is hjá útvarps­stjóra sem ræður fag­stjórn­end­ur, dag­skrár­stjóra og frétta­stjóra, til­ ­starfa í sínu umboð­i.“

Í nið­ur­lagi yfir­lýs­ing­ar­innar segja dag­skrár­stjór­arnir að á­stæða sé til þess að minna á að RÚV sé í eigu íslensku þjóð­ar­inn­ar, ekki ­kjör­inna full­trúa. „Hlut­verk Rík­is­út­varps­ins er að vera sjálf­stæð­ur, óháð­ur­ vett­vangur gagn­rýnnar umfjöll­unar um sam­fé­lagið og vand­aðrar dag­skrár fyr­ir­ alla lands­menn. Var­ast ber að tak­marka mögu­leika og sjálf­stæði Rík­is­út­varps­ins til þess að sinna þessu hlut­verki með við­un­andi hætt­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None