Biskup segir óeðlilegt ef næsti forseti verði utan þjóðkirkjunnar

Biskup Íslands telur óeðlilegt ef næsti forseti landsins tilheyrir ekki þjóðkirkjunni. Hún byggir það á ákvæðum í stjórnarskrá sem hún vill ekki breyta og vonast eftir því að næsti forseti verði kristinnar trúar.

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, ganga til Dómkirkjunnar.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, ganga til Dómkirkjunnar.
Auglýsing

Agnes M. Sig­urð­ar­dótt­ir, biskup Íslands, telur óeðli­legt ef næsti for­seti lands­ins verði ekki krist­innar trúar og skráður utan þjóð­kirkj­unn­ar. Í sam­tali við Kjarn­ann segir hún byggja skoðun sína á ákvæðum í stjórn­ar­skrá um að rík­is­valdið skuli styðja og vernda þjóð­kirkj­una og litið sé á for­set­ann sem vernd­ara henn­ar.

„Það er óeðli­legt að hann verði utan þjóð­kirkj­unnar á meðan við búum við þetta sama skipu­lag," segir hún.

Agnes seg­ist þó munu virða vilja þjóð­ar­innar ef það kemur til þess að breyta þessum ákvæðum í stjórn­ar­skrá.

Auglýsing

„Er það ekki þannig að meiri­hlut­inn ræð­ur­?," segir hún. „Ef það er vilji þjóð­ar­innar að breyta ákvæð­inu, þá virði ég það. Þó að ég mundi vilja halda þessu óbreytt­u."

En hvaða áhrif hefði það á sam­starf emb­ætt­anna tveggja, for­set­ans og bisk­ups, ef sá fyrr­nefndi stæði utan þjóð­kirkj­unn­ar?

„Ég veit ekki hvort það mundi bein­línis hafa áhrif á kirkj­una, en vænt­an­lega margar hefðir sem hafa skap­ast í kring um sam­skipt­in," segir Agn­es, og nefnir vígslu for­seta sem dæmi, sem fer fram við hátíð­lega athöfn í Dóm­kirkj­unni.

„Ég mundi halda að for­seti sem væri ekki í þjóð­kirkj­unni hefði lít­inn áhuga á slíkri athöfn," segir hún og bætir við að eðli­lega von­ast hún eftir því að næsti for­seti verði krist­innar trú­ar, eins og verið hef­ur.

Agnes var sömu skoð­unar í aðdrag­anda síð­ustu for­seta­kosn­inga árið 2012.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None