Atvinnulausum með háskólamenntun hefur fjölgað um tæp 300 prósent á 10 árum

Aðfluttir Íslendingar umfram brottflutta hafa sjaldan eða aldrei verið jafn fáir og nú þegar ekki er kreppuástand á Íslandi. VR segir í nýrri skýrslu að földu atvinnuleysi gæti verið um að kenna.

Háskóli Íslands
Auglýsing

Brott­flutn­ingur frá land­inu er að aukast á sama tíma og aðflutn­ingur dregst sam­an. Þetta er óvenju­legt í ljósi þess að almennt atvinnu­leysi fer minnk­andi og hag­vöxtur eykst. Fjöldi þeirra sem eru með háskóla­menntun og eru án vinnu hefur þó auk­ist um 275 pró­sent á síð­ustu 10 árum, á meðan VR sendi frá sér skýrslu í morgun þar sem rýnt er í tölur um nettó aðflutn­ing hingað til lands og sjón­unum beint að því sem er kallað falið atvinnu­leysi.

Þegar sagan er skoðuð sést að fólk hefur flutt frá land­inu í meira mæli þegar illa árar í efna­hags­líf­inu. Þó hefur mun­ur­inn á aðfluttum og brott­fluttum aldrei verið meiri á tímum í íslensku efna­hags­lífi sem ekki telj­ast til kreppu­ára, en nú. 

„Mikið magn fjár­magns hefur flætt inn í íslenskt hag­kerfi sein­ustu mán­uði en því getur fylgt ofhitnun hag­kerf­is­ins. Velta á fast­eigna­mark­aði hefur auk­ist mikið sein­ustu árin og nálgast, að raun­virði, velt­una 2004. Skuldir heim­il­anna eru ekki að vaxa og því líkur á að stór hluti nýrra útlána banka­kerf­is­ins fari í upp­greiðslur lána Íbúða­lána­sjóðs,” segir í skýrslu VR.

Auglýsing

Fram kemur í skýrsl­unni að engar hald­bærar skýr­ingar hafi komið fram fyrir þess­ari þróun en hug­myndir eru um hvort ástæðan sé meðal ann­ars ein­hæf fjölgun starfa und­an­farin ár. Þá er bent á að ferða­þjón­ustan hafi vaxið mikið á þessu tíma­bili en það sé atvinnu­grein sem hafi litla þörf fyrir vinnu­afl með iðn-, tækni- eða háskóla­mennt­un. 

Þetta end­ur­spegl­ast í tölum Vinnu­mála­stofn­unar um menntun atvinnu­lausra, en á fyrstu 11 mán­uðum árs­ins 2005 var fjöldi atvinnu­lausra með háskóla­menntun 10,6 pró­sent af heild­ar­fjölda atvinnu­lausra. Á sama tíma 2015 var hlut­fallið 25,2 pró­sent. Fjöldi atvinnu­lausra með háskóla­menntun jókst um 272 pró­sent á tíma­bil­inu, en aðeins 9 pró­sent hjá þeim sem hafa lokið grunn­skóla­námi eða öðru sam­bæri­legu. Fyrir þá sem lokið hafa iðn­námi hefur fjöld­inn auk­ist um 84 pró­sent á sama tíma­bili.

„Ef lítið fram­boð verður af verð­mætum störfum á Íslandi á næstu árum er það mikið áhyggju­efni og gæti stuðlað að frek­ari brott­flutn­ingi þrátt fyrir gott ástand í efna­hags­líf­in­u,” segir í skýrslu VR.

Í tölum sem ASÍ sendi frá sér í síð­ustu viku, og Kjarn­inn greindi frá, kemur fram að brott­fluttir íslenskir rík­is­borg­arar hafi verið 0,29 pró­sent umfram aðflutta sem hlut­fall af mann­fjölda frá byrjun árs 2014 og út sept­em­ber­mánuð 2015. Það er ekki ósvipað hlut­fall og brott­flutn­ingur var á fyrri tíma­bilum þar sem margir fluttu af landi brott. Stjórn­völd hafa sett fram gagnýni á þessa fram­setn­ingu og sagt að það virð­ist sem svo að afmark­aður en hávær hópur fólks eigi erfitt með að sætta sig við að hlut­fall brott­fluttra Íslend­ingar sé í raun lágt, séu tölur Hag­stof­unnar skoð­að­ar.

Í grein­ingu ASÍ kom einnig fram að ein mögu­leg skýr­ing á land­flótt­anum væru aðstæður á vinnu­mark­aði, það er að það vanti störf fyrir vel menntað fólk.

Í skýrslu VR er kafli sem ber heitið Falið atvinnu­leysi, þar sem fjallað er um að tölur Hag­stof­unnar um atvinnu­leysi segi ekki alltaf alla sög­una um hver staðan raun­veru­lega er. Þeir sem eru í hluta­starfi en vilja vinna fullt starf telj­ast til að mynda ekki atvinnu­laus­ir, þó að þeir séu ekki að vinna eins mikið og þeir vilja. Einnig er fólk sem er utan vinnu­mark­aðar en getur ekki hafið störf innan tveggja vikna auk þeirra sem eru ekki að leita en eru til­búnir að vinna ef starf stendur þeim til boða. Ein­stak­lingar í síð­ar­nefndu tveimur hóp­unum telj­ast ekki atvinnu­lausir en þá má flokka sem mögu­legt vinnu­afl þrátt fyrir að vera ekki tekið með sem vinnu­afl í form­legu skil­grein­ing­unni, segir í skýrsl­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None