Sigmundur Davíð vill þjóðaratkvæðagreiðslu um verðtryggingu

9951316234-eb1a344909-z.jpg
Auglýsing
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra seg­ist sjá fyrir sér að hægt sé að setja verð­trygg­ingu í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Sú atkvæða­greiða yrði að minnsta kosti ráð­gef­andi. Þetta kom fram í þætt­inum Eyj­unni, sem sýndur er á Stöð 2 og er stýrt af Birni Inga Hrafns­syn­i. 

Þar ræddi for­sæt­is­ráð­herra þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur og sagð­ist hlynntur því að þjóðin fengi oftar að segja skoðun sína í slík­um. „­Tökum dæmi af stóru og umdeildu máli eins og verð­trygg­ing­unni. Þar hafa menn tek­ist á árum saman og ekki náð að leiða það til lykta í rök­ræðu. Rík­is­stjórnin er með ákveðin áform í því efni sem hún vinnur að. Við finnum fyrir mót­þróa á ýmsum stöðum og höldum áfram að reyna að ýta þessu áfram og breyta og bæta fjár­mála­kerf­ið. [...] Þetta er mál sem maður sæi fyrir sér að væri hægt að setja í að minnsta kosti ráð­gef­andi þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu þannig að stjórn­völd hefðu þá þjóð­ina á bak­við sig í því að fylgja þessu eft­ir."­Sig­mundur Davíð sagð­ist sann­færður um að hann fengi stuðn­ing þjóð­ar­innar við afstöðu sína gagn­vart verð­trygg­ingu, en hann hefur ítrekað talað fyrir afnámi henn­ar.

Auglýsing

Átti að mynda rík­is­stjórn um afnám verð­trygg­ingar

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn ræddi mikið um afnám verð­trygg­ing­ar­innar í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga. Í pistli fyrir kosn­ing­arn­ar, sem nefnd­ist Fram­sókn­ar­stjórn eða verð­trygg­ing­ar­stjórn, sagði Sig­mundur Davíð meðal ann­ars að staðan væri ekki flókin og ljóst væri að annað hvort yrði rík­is­stjórn mynduð um skulda­leið­rétt­ingu, afnám verð­trygg­ingar og heil­brigð­ara fjár­mála­kerfi, eða rík­is­stjórn þeirra sem væru gegn þessum mál­u­m. 

Í stefnu­skrá Fram­sókn­ar­flokks­ins fyrir síð­ustu kosn­ingar var þessi stefna einnig tíund­uð. Þar sagði að flokk­ur­inn ætl­aði sér að afnema verð­trygg­ingu á neyt­enda­lán­um. Undir þeim lið sem fjall­aði um þá aðgerð sagði m.a.: „Fyrsta skrefið verði að setja þak á hækkun verð­trygg­ingar neyt­enda­lána". Slíkt þak hefur ekki verið sett það sem af er kjör­tíma­bil­inu.

Í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórnar Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks var þess vegna fjallað nokkuð mikið um verð­trygg­ingu. Þar kom meðal ann­ars fram að leið­rétta ætti verð­tryggð lán sem hefðu orðið fyrir verð­bólgu­skoti og að sam­hliða þeirri skulda­leið­rétt­ingu ætti að „breyta sem flestum verð­tryggðum lánum í óverð­tryggð“. Ekk­ert var hins vegar skjal­fest þar um afnám verð­trygg­ing­ar.

For­sæt­is­ráðu­neytið skip­aði þó starfs­hóp til að und­ir­búa afnám verð­trygg­ingar skömmu eftir að rík­is­stjórnin tók til starfa. Hann komst að þeirri nið­ur­stöðu árið 2014 að það ætti ekki að afnema verð­trygg­ingu.

Bjarni segir að verð­trygg­ing verði alls ekki afnumin

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hefur sagt opin­ber­lega að það standi alls ekki til að afnema verð­trygg­ingu. Þó hefur verið unnið að frum­varpi um breyt­ingar á verð­tryggðum lánum í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Þær breyt­ingar áttu að þrengja að 40 ára jafn­greiðslu­lánum og fara með þau niður í 25 ár. Það frum­varp hefur ekki verið á þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­inn­ar.

Stjórn­ar­and­staðan kall­aði ítrekað eftir því á haust­þing­inu að Sig­mundur Davíð myndi ræða afnám verð­trygg­ingar við hana á Alþingi. Við því vildi for­sæt­is­ráð­herra ekki verða. Hann lítur svo á að afnám verð­trygg­ing­ar­innar sé á borði Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None