Sigmundur Davíð bætir Matthíasi Imsland við sem aðstoðarmanni

sigmundur davíð
Auglýsing
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra  hefur ráðið Matth­ías Pál Ims­land sem aðstoð­ar­mann sinn. Matt­ías hefur starfað sem aðstoð­ar­maður Eyglóar Harð­ar­dóttur félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra það sem af er þessu kjör­tíma­bili. Sam­kvæmt til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu verða verk­efni Matth­í­asar meðal ann­ars á sviði stefnu­mörk­unar og sam­ræm­ingar til að styðja við for­gangs­verk­efni rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Þar segir einnig að Sig­mundur Davíð hafi haft einn aðstoð­ar­mann, Jóhannes Þór Skúla­son, síðan að Ásmundur Einar Daða­son, þing­maður og þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, lét af starfi aðstoð­ar­manns á árinu 2015. Nú verði þeir aftur tveir.Matthías Páll Imsland.

Matth­ías er 41 árs. Hann var kosn­inga­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar 2013. Á póli­tískum vett­vangi hefur Matthísas verið for­maður Félags ungra Fram­sókn­ar­manna í Reykja­vík, for­maður kjör­dæma­sam­bands­ins í Reykja­vík, í stjórn Sam­bands ungra Fram­sókn­ar­manna, í mið­stjórn Fram­sókn­ar­flokks­ins og í lands­stjórn flokks­ins. Hann lauk stúd­ents­prófi frá Mennta­skól­anum að Laug­ar­vatni, BA-­prófi frá Háskóla Íslands í stjórn­mála­fræði og síðar MS-­prófi frá Háskól­anum í Lundi í Sví­þjóð. Þá hefur hann stundað nám í við­skipta­fræði við Háskóla Íslands og stjórn­un­ar­nám við North Park Uni­versity í Chicago í Banda­ríkj­un­um. Áður vann hann sem ráð­gjafi fyrir erlend fyr­ir­tæki á sviði fram­taks­fjár­fest­inga. Þar áður var Matth­ías fram­kvæmda­stjóri rekstr­ar­sviðs flug­fé­lags­ins WOW-air og fyrir stofnun þess var hann for­stjóri Iceland Express. Matth­ías starf­aði um tíma í opin­berri stjórn­sýslu, fyrst sem sviðs­stjóri fræðslu-, félags- og menn­ing­ar­sviðs á Blöndu­ósi og síðar í iðn­að­ar- og við­skipta­ráðu­neyt­inu. Að loknu námi starf­aði hann hjá Sím­anum við ýmis stjórn­un­ar­störf. 

Auglýsing

Með fjöl­marga ráð­gjafa

Auk aðstoð­ar­manna sinna hefur Sig­mundur haft fjöl­marga ráð­gjafa á sínum snærum innan for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins. Þannig hefur Sig­urður Már Jóns­son, fyrrum rit­stjóri Við­skipta­blaðs­ins, starfað sem upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar með aðsetur í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu frá því í sept­em­ber 2013. Bene­dikt Árna­son hefur starfað sem sér­legur efna­hags­ráð­gjafi for­sæt­is­ráð­herra frá 27. ágúst 2013. Þann 1. sept­em­ber 2014 var Lilja Alfreðs­dótt­ir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri á skrif­stofu banka­stjóra og alþjóða­sam­skipta í Seðla­banka Íslands, ráðin í tíma­bundna verk­efna­stjórn sem tengd­ist vinnu ráðu­neyt­is­ins við losun fjár­magns­hafta. Hún snéri aftur til starfa í Seðla­bank­anum um miðjan des­em­ber síð­ast­lið­inn. 

Hrannar Pét­urs­son, fyrrum upp­lýs­inga­full­trúi Voda­fo­ne, var ráð­inn til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins í lok árs 2014 til að móta stefnu Stjórn­ar­ráðs­ins í upp­lýs­inga- og sam­skipta­mál­um. Hann starf­aði þar í tæpt ár en er nú að íhuga for­seta­fram­boð. Í mars 2014 var Mar­grét Gísla­dóttir ráðin sem sér­stakur ráð­gjafi í for­sæt­is­ráðu­neyt­ið, en hún hafði áður verið aðstoð­ar­maður Gunn­ars Braga Sveins­sonar utan­rík­is­ráð­herra. Hún hætti störfum í jan­úar 2015 og starfar nú í einka­geir­an­um.

Auk þess var, líkt og áður sagði, alþing­is­mann­inn Ásmund Einar Daða­son aðstoð­ar­maður Sig­mundar Dav­íðs í um tvö ár sam­hliða þing­mennsku, og varð þar með fyrsti þing­maður þjóð­ar­innar til að vera ráð­inn aðstoð­ar­maður ráð­herra.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None