Burlington kaupir stóran hlut í Lýsingu - Á nú tæpan helming

Lýsing
Auglýsing

Vog­un­ar­sjóð­ur­inn Burlington Loan Mana­gement, sem er fjár­magn­aður og stýrt af banda­ríska sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu Dav­id­son Kempner,hefur keypt 31,8 pró­sent hlut Arion banka í Klakka, sem áður hét Exista. Fyrir átti Burlington 13,2 pró­sent hlut í félag­inu og því nemur eign­ar­hlutur þess nú um 45 pró­sent. Kaupin voru gerð í nafni BLM Fjár­fest­inga ehf., íslensks dótt­ur­fé­lags Burlington. Sjóð­ur­inn er stærsti erlendi kröfu­hafi íslensks atvinnu­lífs.

Klakki er móð­ur­fé­lag fjár­mögn­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Lýs­ing­ar, sem sér­hæfir sig í að fjár­magna atvinnu­tæki, atvinnu­hús­næði og bif­reiðar fyrir fyr­ir­tæki og ein­stak­linga. Frá þessu er greint í DV í dag.

Þar er rætt við Magnús Schev­ing Thor­steins­son, sem er skráður eini stjórn­ar­maður BLM Fjár­fest­inga, en hann er einnig for­stjóri Klakka og stjórn­ar­for­maður Lýs­ing­ar. Hann stað­festi kaupin en vildi ekki tjá sig um hvert kaup­verðið væri. Arion banki, sem seldi hlut­inn til BLM Fjár­fest­inga, vildi ekki tjá sig um sölu­verðið og sagði það trún­að­ar­mál. Í DV kemur fram að Fjár­mála­eft­ir­litið hefur metið Burlington Loan Mana­gement, auk tengdra aðila, hæft til að fara með allt að 50 pró­sent virkan eign­ar­hlut með óbeinni hlut­deild í Lýs­ingu.

Auglýsing

Stærsti kröfu­hafi íslenska banka­kerf­is­ins

Burlington á gríð­ar­lega mikið af eignum á Íslandi. Þær hefur hann sankað að sér í gegnum árin. Á árinu 2013 jók sjóð­ur­inn til að mynda eignir sínar á Íslandi um 70 pró­sent og í lok þess árs voru 18 pró­sent af fjár­fest­inga­eignum hans á Íslandi. Í lok árs 2014 voru íslensku eign­irnar tíu pró­sent af fjár­fes­inga­eignum hans, en sjóð­ur­inn jók mjög umsvif sín á því ári.

Stærsta ein­staka eign hans eru kröfur í þrotabú Glitn­is, en Burlington er stærsti kröfu­hafi bús­ins. Nafn­virði krafna Burlington í bú bank­ans, sam­kvæmt nýj­ustu upp­lýs­ingum Kjarn­ans um umfang þeirra, er að minnsta kosti vel á þriðja hund­rað millj­arð króna. Burlington mun fá rúm­lega 30 pró­sent af nafn­virði þeirra krafna í kjöl­far þess nauða­samn­ingur Glitnis var stað­festur af dóm­stólum í des­em­ber. Greiðslur til kröfu­hafa munu hefj­ast þegar stöð­ug­leika­fram­lög hafa verið afhent rík­inu, en það ger­ist að öllum lík­indum ekki fyrr í fyrsta lagi seinna í þessum mán­uði.  

Sjóð­ur­inn er einnig einn stærsti kröfu­hafi slita­bús Kaup­þings. Í nóv­em­ber 2012 átti hann kröfur í búið að nafn­virði 109 millj­arðar króna. Til við­bótar hefur Burlington átt fullt af öðrum eignum hér­lend­is. Sjóð­ur­inn á umtals­verðar kröfu í bú Lands­bank­ans, er á meðal eig­anda ALMC (áður Straumur fjár­fest­inga­banki), átti beint 13,4 pró­sent hlut í Klakka (sem seldi stóran hlut í VÍS í fyrra og á allt hlutafé í Lýs­ingu) og keypti 26 millj­arða króna skuldir Lýs­ingar skömmu fyrir ára­mót 2013. Nú hefur hlutur Burlington í Klakka hækkað í 45 pró­sent. Auk þess hefur sjóð­ur­inn verið að kaupa hluti í Bakka­vör í Bret­landi af miklum móð á und­an­förnum árum, en þær eignir eru skráðar sem breskar þótt aðrir stórir eig­endur séu að mestu íslenskir og rætur fyr­ir­tæk­is­ins liggi hér­lend­is.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None