Mesta kaupmáttaraukning í tæp 20 ár í pípunum

Verðbólga hefur haldist fyrir neðan 2,5 prósentverðbólgumarkmið, og útlit er fyrir að það haldist þannig næstu mánuði. Lágt olíuverð heldur aftur af verðbólgunni.

Arion.banki_..Sm_.ra.tib_..jpg
Auglýsing

Verð­bólga hefur hald­ist und­ir­ 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði Seðla­banka Íslands und­an­farin miss­eri og er útlit ­fyrir að sú þróun haldi áfram á næstu miss­erum, að því er segir í umfjöll­un ­grein­ing­ar­deildar Arion banka um verð­bólgu­horfur hér á landi. Jafn­framt seg­ir að útlit sé fyrir mestu kaup­mátt­ar­aukn­ingu í langan tíma, og leita þarf aft­ur til árs­ins 1998, þegar miklir upp­gangs­tímar voru í efna­hags­líf­inu, til að finna við­líka sam­an­burð. 

Ársverð­bólga mælist nú 2,1 pró­sent. Vísi­tala neyslu­verðs lækk­aði um 0,58% milli mán­aða í jan­ú­ar. „Þegar horft er fram­hjá búvöru, græn­meti, bens­íni og ýmsum inn­fluttum vörum mælist kjarna­verð­bólga 1 nú 2,5%. Áfram er útlit fyr­ir­ litla verð­bólgu næstu miss­eri, þrátt fyrir miklar launa­hækk­an­ir, og í kjöl­far­ið má vænta meiri kaup­mátt­ar­aukn­ingar en sést hefur í ára­tugi eða síðan 1998,“ ­segir í umfjöllun grein­ing­ar­deild­ar­inn­ar.



Helstu und­ir­liðir sem lækk­uðu voru föt og skór (-0,57% áhrif á VNV) og hús­gögn og heim­il­is­bún­aður (-0,30% áhrif á VNV). Á móti hækk­aði hús­næð­islið­ur­inn (+0,22% áhrif á VNV) og mat­ar­k­arfan (+0,08% áhrif á VNV). Helst kom á óvart að flug­far­gjöld til útlanda hækk­uðu þvert á flestar spár (+0,04% áhrif á VNV).

Hækk­unin á hús­næð­isliðnum var ­meiri en spár höfðu gert ráð fyr­ir, þar sem fast­eigna­verð hækk­aði meira en spár ­gerðu ráð fyrir og þá höfðu gjald­skrár­hækk­anir hjá Orku­veitu Reykja­víkur einnig á­hrif til hækk­un­ar.

Auglýsing

Frá ára­mótum hafa verð­bólgu­horf­ur batnað tölu­vert, sam­kvæmt spá grein­ing­ar­deildar Arion banka, og er gert ráð ­fyrir að verð­bólga á þessu ári verði að með­al­tali 2,2 pró­sent. Til sam­an­burð­ar­ ­gerði hag­vaxt­ar­spá bank­ans frá því októ­ber ráð fyrir fjögur pró­sent verð­bólg­u og aðrar spár, meðal ann­ars hjá Seðl­banka Íslands, gerðu ráð fyrir svip­að­ar­i verð­bólgu.

Það sem helst hefur haldið verð­bólg­u í skefjum er stöðugra gengi krón­unnar gagn­vart erlendum myntum og þá hefur verð á Norð­ursjáv­ar­olíu lækkað um tólf pró­sent frá ára­mót­um, í tæp­lega 34 ­Banda­ríkja­dali á tunn­una. Alþjóða­bank­inn hefur upp­fært sína spá og gerir nú ráð ­fyrir að með­al­tals­verð á olí­unni verði 37 dalir á tunn­una í stað 51 dals í fyrri spá. „Gera má ráð fyrir að lækkun hrá­ol­íu­verðs haldi áfram að skila sér­ út í verð­lag á næstu mán­uð­u­m,“ segir í umfjöllun grein­ing­ar­deildar Arion banka.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None