Andstaða við sölu áfengis í matvöruverslunum eykst

Skutuvogur_bjorrymi-1.jpg
Auglýsing

62 pró­sent þeirra sem taka afstöðu eru and­víg því að bjór og létt­vín veðri selt í mat­vöru­versl­un­um. 38 pró­sent eru fylgj­andi því að áfengi verði selt í slíkum búð­um. Þegar öll svör eru skoðuð kemur í ljós að 35 pró­sent þeirra sem voru spurðir eru fylgj­andi sölu á bjór og létt­vini í mat­vöru­versl­unum en 56 pró­sent segj­ast vera á móti því. 9 pró­sent segj­ast óákveðin í mál­in­u. 

Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Frétta­blað­ið, Vísir og Stöð 2 hafa gert. Nið­ur­stöð­urnar voru birtar í Frétta­blað­inu í morgun. And­staðan við sölu á áfengi í mat­vöru­versl­unum er meiri á meðal Íslend­inga eldri en fimm­tugt og á meðal kvenna. Frétta­blaðið lagði sömu spurn­ingar fyrir lands­menn í könnun sem fram­kvæmd var í mars 2015. Þá voru 45 pró­sent þeirra sem tóku afstöðu fylgj­andi sölu í mat­vöru­versl­unum en 55 pró­sent á móti því. And­staðan hefur því auk­ist umtals­vert. 

Í dag er ÁTVR, stofnun í eigu rík­is­ins með ein­okun á sölu áfeng­is. Hún fer fram í heild­sölu og í gegnum 50 versl­anir ÁTVR sem reknar eru út um allt land. ÁTVR hefur stór­aukið þjón­ustu sína á und­an­förnum ára­tug­um. Seint á níunda ára­tugnum voru versl­anir ÁTVR 13 tals­ins og opn­un­ar­tími tak­mark­að­ur. Nú eru margar versl­anir ÁTVR opnar til allt að klukkan 20 á ákveðnum dögum og til klukkan 18 á laug­ar­dög­um. Auk þess hefur vör­fram­boð auk­ist mikið og ÁTVR selur nú hátt í þrjú þús­und vöru­teg­und­ir.

Auglýsing

Alþingi ræðir um þessar mundir frum­varp Vil­hjálms Árna­son­ar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, um afnám einka­sölu rík­is­ins á áfengi. Vil­hjálmur segir við Frétta­blaðið að nið­ur­staðan komi sér ekki á óvart í ljós þess hvernig spurn­ingin hafi verið orð­uð. Frum­varpið sé ekki miðað að því að áfengi verði ein­ungis selt í mat­vöru­versl­un­um, líkt og spurn­ing Frétta­blaðs­ins/­Vís­is/­Stöðvar 2 gefi til kynna. 

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem settar eru fram í Frétta­blað­inu fór könn­unin þannig fram að hringt var í 1.158 manns þar til náð­ist í 801 sam­kvæmt lag­skiptu úrtaki dag­ana 26. og 27. jan­ú­ar. Svar­hlut­fallið var 69,2 pró­sent. Þátt­tak­endur voru valdir með slembi­úr­taki úr þjóð­skrá. Svar­endur skipt­ust jafnt eftir kyni og hlut­falls­lega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Finnst þér að það eigi að heim­ila sölu á bjór og létt­víni í mat­vöru­versl­un­um? Alls tóku 90 pró­sent þeirra sem náð­ist í afstöðu til spurn­ing­ar­inn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None