Ólína vill flýta formannskosningu: „Öllu haldið í lömunarástandi"

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingar, vill flýta landsfundi flokksins um hálft ár og þar með formannskosningu. Hún segir ríkja lömunarástand innan Samfylkingarinnar og staða flokksins í ítrekuðum skoðanakönnunum sé óboðleg.

Ólína Þorvarðadóttir, þingmaður Samfylkingar
Ólína Þorvarðadóttir, þingmaður Samfylkingar
Auglýsing

Það á að flýta lands­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar um hálft ár og þar með for­manns­kjöri. Þetta er mat Ólínu Kjer­úlf Þor­varð­ar­dótt­ur, þing­manns Sam­fylk­ing­ar. Ástæðan er slakt fylgi flokks­ins í skoð­ana­könn­unum und­an­farin miss­er­i. 

Vísir greinir frá mál­inu. Í sam­tali við Kjarn­ann segir Ólína að staða flokks­ins sé orðin það slök að ekki verði unað við hana leng­ur.

Veikt for­manns­um­boð flokknum til trafala

„Við erum flokkur sem lítur á sig sem burð­ar­afl í íslenskri póli­tík. Það verður að kom­ast ein­hver hreyf­ing á innan flokks­ins og það verður að skerpa betur á því gagn­vart almenn­ingi fyrir hvað Sam­fylk­ingin stend­ur,” segir hún. „Það kann að vera að for­ystu­kreppa flokks­ins hafi áhrif þarna og sú stað­reynd að for­mað­ur­inn hefur veikt umboð eftir síð­asta lands­fund. Það er aug­ljós­lega flokknum til trafala.”

Auglýsing

Árni Páll Árna­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, vann for­manns­kosn­ingu á síð­asta lands­fundi með einu atkvæði þegar Sig­ríður Ingi­björg Inga­dóttir bauð sig fram á móti honum með afar skömmum fyr­ir­vara.

Ólína segir að ásamt for­manns­kjöri hafi flokk­ur­inn gott af þeirri mál­efna­vinnu sem fylgi lands­fundi. Hann er á dag­skrá í nóv­em­ber en hún vill flýta honum um hálft ár og halda hann í maí.

„Það eru kosn­ingar vorið 2017 og það er allt of knappur tími fyrir flokk­inn að standa í for­manns­kosn­ing­um, sem geta verið erf­ið­ar, og eiga svo á nokkrum mán­uðum að kynna sig fyrir kosn­ing­ar,” segir hún.

Sam­fylk­ingin hefur verið að mæl­ast með sögu­lega lágt fylgi í skoð­ana­könn­unum und­an­far­ið. Í Gallup­könnun sem birt var í gær mæld­ist hún með 9,2 pró­sent, hjá MMR sem birt var 20. jan­úar var fylgið 10,4 pró­sent og svo 9,9 pró­sent í skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins og Stöðvar 2 sem birt var 28. jan­ú­ar.

Margir hæfir í for­mann­inn

Ólína segir að van­traust á hefð­bundnum stjórn­mála­flokkum sé ríkj­andi í könn­unum nú, sem og innri vandi ein­stakra flokka eins og Sam­fylk­ing­ar.

„Flokk­ur­inn hefur átt í vand­ræðum og mál­flutn­ingur veikst, þó að það hafi sjaldan verið meiri þörf fyrir jafn­að­ar­stefnu og nú,” segir hún.

Hún seg­ist ekki vera að horfa til neinna sér­stakra ein­stak­linga varð­andi for­manns­kjör­ið. Spurð hvort hún geti hugsað sér að leiða flokkin sjálf segir hún:

„Ég tel ekki tíma­bært að hug­leiða það núna. En allir sem gefa kost á sér til for­ystu­starfa í stjórn­mál­um, í þingi og sveit­ar­stjórn­um, hljóta að vera til­búnir til að taka að sér þau störf sem þeim er trúað fyr­ir," segir hún. „En á meðan öllu er haldið í löm­unar­á­standi eins og staðan er núna, þá kemur það fólk ekki fram. Fólk verður að fá tæki­færi til þess án þess að það kosti leið­indi. Í Sam­fylk­ing­unni eru margir vel til þess fallnir að leiða flokk­inn.”

Frum­varp Sig­ríðar og Helga hressandi

Sig­ríður Ingi­björg Inga­dóttir og Helgi Hjörvar þing­flokks­for­maður lögðu fram frum­varp í síð­asta mán­uði um afnám verð­trygg­ing­ar. Frum­varpið hlaut ekki hljóm­grunn meðal flokks­ins. Ólína segir að ekki sé hægt að gera þá kröfu að allir eigi að vera sam­mála.

„Þess vegna fannst mér frum­varp Helga og Sig­ríðar hressi­legt inn­leg inn í stjórn­mála­um­ræð­una og það sem flokk­ur­inn stendur fyr­ir, þó að ég hafi ekk­ert endi­lega verið sam­mála því. Það er ekk­ert að því að þing­menn hafi sér­stöðu í ein­staka mál­u­m,” segir hún. „Við eigum að vera óhrædd við að vera ekki alltaf öll eins - svo fram­ar­lega sem við stöndum öll sam­eig­in­lega um þunga­miðj­una sem er jafn­að­ar­stefn­an.”

Bjart­sýn á að lands­fundi verði flýtt

Til að flokk­ur­inn nái aftur vopnum sínum fyrir næstu kosn­ingar segir Ólína að nauð­syn­legt sé að halda rétt á spil­unum og það megi ekki drag­ast lengur að gera eitt­hvað í mál­un­um. Hún seg­ist hafa fengið góðan hljóm­grunn vegna til­lög­unnar um að flýta lands­fundi. Fram­kvæmda­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar lagði fram sömu til­lögu síð­asta sumar en það náði aldrei lengra. Ólína er bjart­sýn á að annað verði uppi á ten­ingnum nú og segir mik­il­vægt að ná góðri sam­stöðu um það. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None