Bandaríski herinn vill auka viðveru á Íslandi á ný

NAS_Keflavik_aerial_of_hangars_1982.jpg
Auglýsing

Banda­ríski her­inn mun hafa tíma­bundna aðstöðu á Kefla­vík­ur­flug­velli ef áætl­anir hans fyrir næsta ár ganga eft­ir. Þetta kemur fram á frétta­síð­unni Stars and Stripes, sem er gefin út á vegum hers­ins, en það var RÚV sem greindi frá mál­inu fyrst íslenskra miðla. Ætl­unin er að fylgj­ast með rúss­neskum kaf­bátum í Norð­ur­-Atl­ants­hafi. 

Banda­ríski her­inn hefur sam­kvæmt frétt­unum óskað eftir fjár­magni á fjár­á­ætlun varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins á næsta ári til þess að upp­færa flug­skýli í Kefla­vík til þess að hægt sé að hýsa þar P-8 Pos­eidon flug­vél­ar, en þær hafa komið í stað P-3 Orion vél­anna sem voru stað­settar í her­stöð­inni í Kefla­vík þegar her­inn var þar. Slíkar vélar eru reglu­lega sendar til Kefla­víkur í eft­ir­lits­flugi, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá sjó­hern­um.

Utan­rík­is­ráðu­neytið sendi frá sér til­kynn­ingu vegna frétt­anna þar sem kemur fram að engar við­ræður eigi sér stað á milli Íslands og Banda­ríkj­anna um var­an­lega stað­setn­ingu banda­rísks liðsafla á Íslandi. „Hins vegar er ljóst að umhverfi örygg­is­mála í Evr­ópu hefur breyst mikið á umliðnum árum og, í því ljósi, eins og utan­rík­is­ráðu­neytið hefur áður greint frá, hafa eðli­lega átt sér stað sam­töl um mögu­lega aukin umsvif Banda­ríkj­anna og ann­arra ríkja Atl­ants­hafs­banda­lags­ins á norð­an­verðu Atl­ants­hafi og Íslandi í sam­ræmi við sam­eig­in­legar varn­ar­skuld­bind­ing­ar,“ segir í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­in­u. 

Auglýsing

Sem stendur hefur her­inn aðeins áhuga á því að senda eft­ir­lits­vél í stuttan tíma í senn, en með tím­anum gæti það orðið var­an­leg eft­ir­lits­stöð hers­ins.

Banda­ríska sendi­ráðið á Íslandi stað­festi ekki þessar fréttir en sagði við RÚV í kvöld að stöðugar við­ræður hefðu átt sér stað um flug­stöð­ina í Kefla­vík. Greint var frá því snemma í haust að aðstoð­ar­varn­ar­mála­ráð­herr­ann Bob Work hefði skoðað her­stöð­ina í Kefla­vík í heim­sókn sinni hingað til lands.

Í við­tali við Kjarn­ann í haust sagði Benja­min Ziff, aðstoð­arutan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, að ekki væri tíma­bært að tala um opnun her­stöðvar á Íslandi. „Ég veit að hingað hafa komið emb­ætt­is­menn til að skoða þennan mögu­leika. Staða Íslands í Norð­ur­-Atl­ants­hafi, og sú stað­reynd að inn­við­irnir eru til 
staðar og þeim hefur verið vel við haldið af Íslend­ingum frá 2006,
 þegar við fórum frá Kefla­vík, sýna að ef þörf krefur er Ísland í góðri
 stöðu til að taka þátt á breið­ari hátt í aðgerðum Nató, en þess­ar
 ákvarð­anir hafa ekki verið tekn­ar.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None