Borgun fær 6,5 milljarða vegna sölu Visa Europe

Kredit kort Borgun
Auglýsing

Borgun býst við því að fá 33,9 millj­ónir evra, um 4,8 millj­arða króna, í pen­ingum þeg­ar Visa Inc. greiðir fyrir Visa Europe. Auk þess fær Borg­un, líkt og aðr­ir ­leyf­is­hafar innan Visa Europe, afhent for­gangs­hluta­bréf í Visa Inc. að verð­mæt­i 11,6 millj­ónir evra, eða um 1,7 millj­arðar króna. Auk þess mun Visa Inc. greiða ­leyf­is­höfum afkomu­tengda greiðslu árið 2020 sem mun taka mið af afkomu ­starf­semi Visa í Evr­ópu á næstu fjórum árum, en hlut­deild ­Borg­unar af þeirri fjár­hæð mun ráð­ast af við­skiptaum­svifum Borg­unar sem hlut­fall af heild­ar­við­skiptaum­svifum allra selj­enda hluta­bréf­anna á þessum 4 árum.

Því er ljóst að Borgun mun fá um 6,5 millj­arða króna auk afkomu­tengdar greiðslu árið 2020 vegna sölu Visa Europe. Þetta kem­ur fram í svörum stjórn­enda Borg­unar við spurn­ingum Lands­bank­ans sem send voru tiæ ­Stein­þórs Páls­son­ar, banka­stjóra hans, í dag.

Lands­bank­inn sagð­ist ekki hafa verið upp­lýstur

Lands­bank­inn birti frétt á vef sínum í gær þar sem segir að stjórn­endur Borg­unar hafi ekki upp­lýst sig um að fyr­ir­tækið ætti rétt til greiðslna vegna val­réttar í tengslum við sam­runa Visa Inc. og Visa Europe ef hann yrði virkj­að­ur. 

Auglýsing

Lands­bank­inn sendi bréf á stjórn­endur Borg­unar á föstu­dag þar sem hann fór fram á að fá að vita hvort að stjórn­endur Borg­unar hafi vitað um mögu­legan rétt til greiðslna þegar bank­inn seldi þeim, og með­fjár­festum þeirra, hlut sinn í fyr­ir­tæk­inu á 2,2 millj­arða króna fyrir rúmu ári síð­an. Stjórn­endur Borg­unar hafi í raun ekki svarað þeim spurn­ingum sem Lands­bank­inn hafi leitað svara hjá þeim um í þeim yfir­lýs­ingum sem þeir hafi sent frá sér. Því hefur Lands­bank­inn, sem er nán­ast að öllu leyti í rík­i­s­eigu, farið fram á að stjórn­endur Borg­unar myndi gera það í síð­asta lagi í dag. 

Tveir kynn­ing­ar­fundir

Í svar­bréfi Hauks Odds­son­ar, for­stjóra Borg­un­ar, og Erlendar Magn­ús­son­ar, stjórn­ar­for­manns fyr­ir­tæk­is­ins, sem sent var í dag segir að á tveim­ur kynn­ing­ar­fundum með full­trúum Lands­bank­ans á árinu 2014 hafi starf­semi Borg­unar verið kynnt. Meðal ann­ars voru starfs­leyfi Borg­unar kynnt, þ.m.t. aðild að Visa Europe. Borgun hafði enga ástæðu, hvorki þá né síð­ar, til að ætla að Lands­bank­inn væri granda­laus um val­rétt­inn enda hann tengdur Visa starfs­leyfi Borg­un­ar. Sam­kvæmt því sem bank­inn hefur sjálfur upp­lýst Alþingi um, var fjallað um val­rétt­ar­samn­ing á milli Visa Inc. og Visa Europe á banka­ráðs­fundi þann 7. mars 2013. Svo sem fram hefur komið opin­ber­lega mat Borgun ekki eign­ar­hlut sinn í Visa Europe sem veru­leg verð­mæti, enda ekki haft ástæðu til ann­ars fyrr en nú, meðal ann­ars þar sem verð­mæti hans er alfarið háð mögu­legri nýt­ingu þriðja aðila og sá nýt­ing­ar­réttur var til 99 ára. Borgun bjó aldrei yfir upp­lýs­ingum um hvort, hvenær né á hvaða verði Visa Europe yrði mögu­lega selt, fyrr en salan var gerð opin­ber þann 2. nóv­em­ber 2015. Vænt hlut­deild Borg­unar í sölu­and­virði á Visa Europe varð síðan ekki ljós fyrr en með bréfi Visa Europe þann 21. des­em­ber sama ár."

Þrí­skiptar greiðslur

Í erindi Lands­bankas var einnig óskað upp­lýs­inga um hvaða fjár­hæð muni koma í hlut Borg­unar vegna val­rétt­ar­samn­ings Visa Inc. og hversu stór hluti hennar verði rak­inn til rekstr­ar­sögu Borg­unar fram til þess tíma er við­skipti þau, sem erindi Lands­bank­ans er sprottið af, áttu sér stað. Í svari Borg­unar segir að sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingum frá Visa Europe verði greiðsla fyrir hlut­inn þri­skipt: 

  1. a)  Við fulln­ustu sölu verður innt af hendi ein­greiðsla í pen­ing­um. Vænt hlut­deild Borg­unar af þess­ari greiðslu verður €33,9 millj­ón­ir, en end­an­leg fjár­hæð ræðst af mögu­leg­um áfrýj­unum leyf­is­hafa um hlut­deild þeirra.

  2. b)  Við fulln­ustu sölu fær Borg­un, líkt og aðrir leyf­is­haf­ar, afhent for­gangs­hluta­bréf í Visa Inc. For­gangs­hluta­bréf þessi verða ekki skráð á verð­bréfa­mark­að, sem mun tak­marka mögu­leg við­skipti með þau. Gert er ráð fyrir að Visa Inc. hafi frest fram til árs­ins 2028 til að breyta for­gangs­hluta­bréf­unum að fullu í almenn hluta­bréf í Visa Inc., sem skráð eru í Kaup­höll­inni í New York. Skil­málar söl­unnar heim­ila Visa Inc. jafn­framt að skerða breytirétt þess­ara for­gangs­hluta­bréfa vegna skil­greindra atvika. Visa Inc. mun ein­hliða meta í fyrsta sinn á árinu 2020 hvort heim­ilt verði að breyta hluta þess­ara for­gangs­hluta­bréfa í almenn hluta­bréf. Þegar kaup Visa Inc. á Visa Europe voru til­kynnt í nóv­em­ber síð­ast­liðnum voru forgangs­hluta­bréf þau sem koma í hlut Borg­unar metin af Visa Inc. á €11,6 millj­ón­ir, mið­að við að þeim væri að fullu umbreytt í almenn hluta­bréf í Visa Inc. á þeim degi.

  3. c)  Á árinu 2020 mun Visa Inc. greiða leyf­is­höfum afkomu­tengda greiðslu, sem mun taka mið af afkomu af starf­semi Visa í Evr­ópu á næstu 4 árum, en hlut­deild Borg­unar af þeirri fjár­hæð mun ráð­ast af við­skiptaum­svifum Borg­unar sem hlut­fall af heild­ar­við­skiptaum­svifum allra selj­enda hluta­bréf­anna á þessum 4 árum.

Munu bók­færa hlut sinn í Visa Europe á 5,5 millj­arða

Vænt­ingar standa til þess að hægt verði að fulln­usta kaup Visa Inc. á Visa Europe á öðrum árs­fjórð­ungi í ár. Stjórn­endur Borg­unar segja að samt sem áður verði veru­leg óvissa um end­an­legt verð­mæti þeirra for­gangs­hluta­bréfa sem falli fyr­ir­tæk­inu í skaut. Fyrir utan tak­mark­að­an sölu­mögu­leika eig­enda þeirra, þá verður verð­mæti for­gangs­hluta­bréf­anna háð almennri mark­aðs­þróun banda­ríska hluta­bréfa­mark­að­ar­ins, verð­þróun hluta­bréfa Visa Inc. og geng­is­þróun Banda­ríkja­doll­ars á móti öðrum gjald­miðlum í rúman ára­tug, svo og end­an­legu hlut­falli breytirétt­ar­ins. Þá er afar mikil óvissa um hvort eitt­hvað og þá hve mikið muni koma í hlut Borg­unar vegna afkomu­tengdra greiðslna fyrir hluta­bréfið á árinu 2020."



Vegna ofan­greindra óvissu­þátta varð­andi tvo af þremur greiðslu­hlut­um, mun Borgun færa upp mat sitt á eign­ar­hlut sínum í Visa Europe í lok árs 2015 um 38,6 millj­ónir evra, eða um 5,5 millj­arða króna. Stjórn­end­urnir til­taka einni að megin­hluta hagn­að­ar­hlut­deildar Borg­unar megi rekja til rekstr­ar­sögu Borg­unar síð­ustu 18 mán­uð­ina fyrir sölu Visa Europe. Rúmir fjórtán mán­uðir eru síðan að Lands­bank­inn seldi hlut sinn í Borg­un.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttir
None