Segja stjórnendur Borgunar ekki svara spurningum um hvað þeir vissu

stein..t.jpg
Auglýsing

Lands­bank­inn segir að stjórn­endur Borg­unar hafi ekki upp­lýst ­sig um að fyr­ir­tækið ætti rétt til greiðslna vegna val­réttar í tengslum við ­sam­runa Visa Inc. og Visa Europe ef hann yrði virkj­að­ur. Þær greiðslur mun­u lík­ast til hlaupa á millj­örðum króna og spila stóra rullu í því að heild­ar­virð­i ­Borg­un­ar, sem var metið á um sjö millj­arða króna þegar Lands­bank­inn seldi 31,2 ­pró­sent hlut sinn í fyr­ir­tæk­inu í nóv­em­ber 2014, er nú talið vera allt að 26 millj­arðar króna.

Lands­bank­inn vill fá að vita hvort að stjórn­endur Borg­unar hafi vitað um mögu­legan rétt til greiðslna þegar bank­inn seldi þeim, og með­fjár­festum þeirra, hlut sinn í fyr­ir­tæk­inu á 2,2 millj­arða króna fyrir rúmu ári síð­an. Stjórn­endur Borg­unar hafi í raun ekki svarað þeim spurn­ing­um ­sem Lands­bank­inn hafi leitað svara hjá þeim um í þeim yfir­lýs­ingum sem þeir hafi sent frá sér. Því hefur Lands­bank­inn, sem er ­nán­ast að öllu leyti í rík­i­s­eigu, farið fram á að stjórn­endur Borg­unar geri það í síð­asta lagi í dag. 

Auglýsing

Spurn­ing­arnar eru lagðar fram í bréfi sem sent var á for­stjóra og stjórn­ar­for­mann Borg­unar á föstu­dag. Það má lesa hér. Stein­þór Páls­son, banka­stjóri Lands­bank­ans, er skrif­aður fyrir bréf­inu.

Gæti farið í lög­fræði­legan feril

Um liðna helgi var greint frá því að Lands­bank­inn hefði sent bréf til Borg­unar þar sem far­ið var fram á það við stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins að þeir svari því hvaða ­upp­lýs­ingar hafi legið fyrir hjá fyr­ir­tæk­inu eða stjórn­endum þess um hvað það ætti rétt á að fá í sinn hlut ef Visa Inc. myndi kaupa Visa Europe, áður en Lands­bank­inn seldi þeim og með­fjár­festum þeirra hlut sinn í fyr­ir­tæk­inu. Auk þess hefur Lands­bank­inn farið fram á að vita hversu stór hluti hennar verð­i rak­inn til rekstr­ar­sögu fyr­ir­tæk­is­ins áður en Lands­bank­inn seldi 31,2 pró­sent hlut sinn. .

Lands­bank­inn gaf stjórn­endum Borg­unar frest þangað til á þriðju­dag til að svara spurn­ing­um ­bank­ans. Stein­þór Páls­son, banka­stjóri Lands­bank­ans, sagði í sam­tali við RÚV um helg­ina að hann tryði því að menn hefðu starfað af heil­indum í sölu­ferl­in­u.„Það er það sem maður trú­ir, en við viljum sann­reyna það með þess­ari beiðni okk­ar til þeirra. En í öllum þessum sam­tölum okkar við Visa Europe, við Borg­un, við Va­litor og Arion banka líka, þá kom þetta aldrei upp að það væri hægt að ætl­a að þarna væru verð­mæti á ferð­inn­i.“

Ef það komi í ljós að upp­lýs­ingum hafi verið haldið frá Lands­bank­anum í sölu­ferl­inu á hlut hans í Borgun muni bank­inn ­leita réttar síns.„Þá er málið mjög alvar­legt, þá fer þetta bara í lög­fræði­legan fer­il. Þá munum við gæta okkar hags­muna með þeim aðferðum sem hægt er,“ segir Stein­þór í sam­tali við frétta­stofu RÚV.

Sögðu bank­ann hafa haft aðgang að öllum gögnum

Stjórn­endur Borg­unar sendu frá sér yfir­lýs­ingu vegna ­spurn­inga Lands­bank­ans í gær. Þar segir að Lands­bank­inn hafi haft aðgang að öllum gögnum í tengslum við sölu á hlut bank­ans í fyr­ir­tæk­inu í nóv­em­ber 2014. Útbúið hafi verið sér­stakt gagna­her­bergi þar sem Lands­bank­inn og aðrir aðilar máls höfðu fullan aðgang að ítar­legum upp­lýs­ing­um um Borgun og rekstur félags­ins. „Þar lágu fyrir upp­lýs­ingar um aðild og eign­ar­hlut Borg­unar í Visa Europe sem og ­upp­lýs­ingar um val­rétt­ar­á­kvæði milli Visa Inc. og VISA Europe.“ Þetta kem­ur fram í yfir­lýs­ingu sem Borgun hefur sent frá sér.

Þar segir einnig að Borg­un hafi aldrei búið aldrei yfir upp­lýs­ingum um hvort, hvenær né á hvaða verði Visa E­urope yrði selt, fyrr en salan var gerð opin­ber þann 2. nóv­em­ber 2015. Vænt hlut­deild Borg­unar í sölu­and­virði á VISA Europe hafi ekki orðið ljós fyrr en 21. des­em­ber sama ár. „­Fyrir þann tíma hafði Borgun engar for­sendur til­ þess að meta eign­ar­hlut sinn í Visa Europe á annan hátt en gert var.“

Borgun seg­ist enn fremur að fyr­ir­tækið muni veita Lands­bank­an­um allar þær upp­lýs­ingar sem hann óski eftir sem teng­ist sölu­ferli hlut­ar Lands­bank­ans í Borgun vegna fyr­ir­spurna Banka­sýslu rík­is­ins og ann­arra op­in­berra aðila.

Þurfa að svara í dag

Í til­kynn­ingu sem Lands­bank­inn birti í gær­kvöldi á heima­síðu sinni segir að við sölu á hlut sínum í Borgun hafði Lands­bank­inn enga vit­neskju um að Borgun ætt­i ­yf­ir­höfuð rétt til greiðslna vegna val­réttar í tengslum við sam­runa Visa Inc. og Visa Europe, kæmi til þess að hann yrði virkj­að­ur.

Bank­inn segir að í yfir­lýs­ing­u ­Borg­unar sem send hafi verið fjöl­miðlum í gær hafi spurn­ingum Lands­bank­ans um ­málið ekki verið svar­að. „Þar kemur ekki fram hvort Borgun eða stjórn­endur þess hafi vitað að fyr­ir­tækið ætti rétt til greiðslna vegna val­rétt­ar­ins. Engin svör hafa borist beint til Lands­bank­ans en bank­inn væntir þess að þau ber­ist[...]­þriðju­dag­inn 9. febr­ú­ar, líkt og óskað var eft­ir.“

Svör Borg­unar við fyr­ir­spurn Lands­bank­ans verða meðal ann­ars notuð til að svara þeim spurn­ingum sem Banka­sýsla rík­is­ins hefur beint til bank­ans vegna Borg­un­ar­máls­ins. Lands­bank­inn til­tekur í bréfi sínu til Borg­unar að svörin verði mögu­lega gerð opin­ber.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None