Ríkissjóður má eiga 20 prósent hlut í Lýsingu

Lýsing
Auglýsing

Fjár­mála­eft­ir­litið komst að þeirri nið­ur­stöðu í gær að Rík­is­sjóður Íslands sé heim­ilt að eiga 20 pró­sent virkan eign­ar­hlut í fjár­mögn­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Lýs­ingu hf. í gegnum óbeina hlut­deild. Eign­ar­hlut­ur­inn fellur í skaut íslenska rík­is­ins vegna þess að slitabú Kaup­þings mun fram­selja 17,58 pró­sent hlut sinn í Klakka ehf., eig­anda Lýs­ing­ar, til Seðla­banka Íslands eða félags í hans eigu sem hluta af því stöð­ug­leika­fram­lagi sem búið innir af hendi. Seðla­bank­inn, eða félag hans, mun fara með þann eign­ar­hlut Rík­is­sjóðs. Frá þessu er greint á heima­síðu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

Rík­is­sjóður og vog­un­ar­sjóður saman í eig­enda­hópi

Í hlut­hafa­hópi Klakka, sem hét áður Exista, mun Rík­is­sjóður Íslands finna fyrir aðila sem áður hef­ur, að minnsta kosti í stjórn­mála­legum til­gangi, verið mál­aður upp sem einn helsti and­stæð­ingur íslensks efna­hags­lífs: vog­un­ar­sjóð­inn Burlington Loan Mana­gement. 

Burlington, sem er fjár­magn­aður og stýrt af banda­ríska sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu Dav­id­son Kempner, keypti í jan­úar 31,8 pró­sent hlut Arion banka í Klakka. Fyrir átti Burlington 13,2 pró­sent hlut í félag­inu og því nemur eign­ar­hlutur þess nú um 45 pró­sent. Kaupin voru gerð í nafni BLM Fjár­fest­inga ehf., íslensks dótt­ur­fé­lags Burlington. Sjóð­ur­inn er stærsti erlendi kröfu­hafi íslensks atvinnu­lífs.

Auglýsing

Klakki er, líkt og áður seg­ir, móð­ur­fé­lag fjár­mögn­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Lýs­ing­ar, sem sér­hæfir sig í að fjár­magna atvinnu­tæki, atvinnu­hús­næði og bif­reiðar fyrir fyr­ir­tæki og ein­stak­linga.

Stöð­ug­leika­fram­lög metin á 384,3 millj­arða

Ríkið mun fá 384,3 millj­arða króna í stöð­ug­leika­fram­lög frá slita­búum föllnu bank­anna. Langstærsti hlut­inn er 288,2 millj­arða fram­lag vegna við­skipta­bank­anna, þar af tæp­lega 185 millj­arðar króna hlutafé í Íslands­banka. 84 millj­arðar koma til vegna veð­skulda­bréfs vegna Arion banka og 19,5 millj­arðar vegna afkomu­skipta­samn­ings vegna sölu Arion banka, en það er bók­fært verð. Auk þess fær­ast ýmsar eignir yfir til Rík­is­sjóðs, meðal ann­ars eign­ar­hlutur slita­bús Glitnis í Lyfju og fimmt­ungs­hlutur slita­bús Kaup­þings í Klakka.

Heild­ar­fjár­hæð end­ur­heimta kröfu­hafanna, bæði inn­lendra og erlendra, af inn­lendum eignum slita­bú­anna er 497 millj­arðar króna. Þar af er gert ráð fyrir að 131 millj­arði króna verði skipt í erlendan gjald­eyr­i. 

Það sem eftir stend­ur, 375 millj­arðar króna, skipt­ast í gjald­eyr­is­inn­lán, aðrar inn­lendar gjald­eyr­is­eignir og skulda­bréf Lands­bank­ans til slita­bús gamla Lands­bank­ans. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None