Zúistar fá ekki að stofna félag og fresta greiðslum

Trúfélagið Zúistar á Íslandi fá ekki að skrá rekstrarfélag hjá Ríkisskattstjóra. Ekki verður tekið á móti greiðslum til trúfélagsins á meðan málið er í biðstöðu. Félagið stefnir að því að endurgreiða skráðum félögum félagsgjöld á seinni hluta ársins.

zúistar
Auglýsing

Zúistar á Íslandi hafa látið fresta greiðslum til félags­ins tíma­bundið þar sem þeir fá ekki að skrá rekstr­ar­fé­lag hjá rík­is­skatt­stjóra. For­svars­menn félags­ins stefna á að byrja á að end­ur­greiða fyrstu sókn­ar­gjöldin á seinni hluta árs­ins, en útreikn­ingar á upp­hæð end­ur­greiðsl­unnar þegar tekið hefur verið til­lit til vaxta, umsýslu­kostn­aðar og fleira verður á hendi end­ur­skoð­anda. 

„Við höfum fundað með end­ur­skoð­and­anum og hann telur að end­ur­greiðslan verði ekki mikið mál frá þeim séð. Við höfum hins­vegar rekið okkur á það að ekki eru allir eins sam­vinnu­þýðir því við lenntum í vand­ræðum með að fá skráð rekstr­ar­fé­lag hjá Rík­is­skatt­stjóra,” segir í svari Zúista við skrif­legri fyr­ir­spurn Kjarn­ans. „Þar strandar málið því í augna­blik­inu á meðan við leysum úr því og í milli­tíð­inni höfum við látið fresta greiðslum til félags­ins.”

Í svar­inu segir að þegar það verði leyst verði gengið end­an­lega frá samn­ingum við end­ur­skoð­and­ann og í kjöl­farið verður send til­kynn­ing þar sem fyr­ir­komu­lag end­ur­greiðsl­unnar verður kynnt. 

Auglýsing

Hol­ger Páll Sæmunds­son, sem situr í stjórn Zúista, seg­ist vera gríð­ar­lega ánægður með við­tök­urnar sem félagið hefur feng­ið. 

Þegar við fórum af stað töldum við okkur vera að berj­ast fyrir mik­il­vægu mál­efni sem gæti höfðað til ákveð­ins hóps í sam­fé­lag­inu. Sam­kvæmt skrán­ingu þjóð­skrár þá höfðu um ára­mótin tæp­lega 3200 manns skráð sig í Zuism eða um 1% þjóð­ar­inn­ar. Það er óhætt að segja að skrán­ingin hafi farið langt fram úr björt­ustu von­um," segir hann. „Við vinnum nú í því að ganga frá end­an­legu fyr­ir­komu­lagi end­ur­greiðsl­unn­ar. Það hefur tekið lengri tíma en til stóð en við von­umst til að geta sent frá okkur til­kynn­ingu um fyr­ir­komu­lagið mjög fljót­lega. Við stefnum að því að fyrsta end­ur­greiðsla fari fram í haust."

Tæp­lega 3.200 manns gengu í trú­fé­lagið á síð­asta fjórð­ungi árs­ins 2015. Þaðan komu rúm­lega þús­und ein­stak­lingar frá þjóð­kirkj­unn­i. 

Zúistar komu fram á sjón­ar­sviðið seinni hluta síð­asta árs með það höf­uð­mark­mið að hið opin­bera felli úr gildi öll lög sem veita trú- og líff­skoð­un­ar­fé­lögum for­rétt­indi eða fjár­styrki umfram önnur félög. Þá end­ur­greiðir félagið öllum skráðum með­limum árlegan styrk sem það fær frá rík­inu. Alls gengu 3.176 ein­stak­lingar í félagið á síð­asta fjórð­ungi árs­ins, en Þjóð­skrá hefur ekki birt nýrri tölur síðan þá. Þar af komu 1.056 úr þjóð­kirkj­unni og 1.652 sem voru áður utan trú­fé­laga. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None