Bjarni Ben: „Alvarleg“ staða komin upp vegna Borgunar-málsins

Bjarni Benediktsson
Auglýsing

Fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son, hefur sent bréf til stjórnar Banka­sýslu rík­is­ins, stílað á Lárus Blön­dal for­mann stjórn­ar, vegna umræðu um sölu Lands­bank­ans á hlut hans í greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Borg­un. Lands­bank­inn seldi eins og kunn­ugt er 31,2 pró­sent hlut í Borgun í lok­uðu ferli til val­inna fjár­festa, og hefur sú sala dregið dilk á eftir sér, og leitt til umræðu um hvernig hið rík­ið, sem er eig­andi 98 pró­sent hluta­fjár Lands­bank­ans, eigi að haga málum þegar kemur að sölu rík­is­eigna. 



Í bréf­inu segir Bjarni að komin sé upp „al­var­leg“ staða þar sem Lands­bank­inn sé stærsta fjár­mála­fyr­ir­tæki lands­ins og verð­mætasta félag íslenska rík­is­ins. Nauð­syn­legt sé að hafa eig­enda­stefnu í gildi sem byggi á gagn­sæi og traustum ferlum, þegar kemur að eigna­sölu.



Bréfið í heild sinni er eft­ir­far­andi:

Eins og kunn­ugt er hefur á opin­berum vett­vangi farið fram umræða um sölu Lands­bank­ans á hlut hans í greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Borg­un. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum og gögnum sem vísað hefur verið til í þeirri umræðu má ætla að það verð sem bank­inn fékk fyrir eign­ar­hlut sinn hafi verið mun lægra en eðli­legt getur talist. Jafn­framt hefur verið gagn­rýnt að við sölu­með­ferð bank­ans á hlutnum hafi ekki verið gætt að sjón­ar­miðum um gagn­sæi og jafn­ræði. Er sú staða sem upp er komin alvar­leg, en Lands­bank­inn er í senn stærsta fjár­mála­fyr­ir­tæki lands­ins og verð­mætasta félag íslenska rík­is­ins.

Banka­sýsla rík­is­ins „fer með eign­ar­hluti rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækj­um, í sam­ræmi við lög, góða stjórn­sýslu- og við­skipta­hætti og eig­enda­stefnu rík­is­ins á hverjum tíma“, eins og fram kemur í lögum um hana.  Stofn­un­inni var komið á fót til að ríkið væri trú­verð­ugur eig­andi fjár­mála­fyr­ir­tækja og að tryggt væri að ekki yrðu höfð póli­tísk afskipti af rekstri slíkra fyr­ir­tækja.

Auglýsing

Þótt aðkoma fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra að dag­legum mál­efnum ein­stakra fjár­mála­fyr­ir­tækja í rík­i­s­eigu sé veru­lega tak­mörkuð að lög­um, er honum ætlað að setja félög­unum eig­enda­stefnu þar sem gerð er grein fyrir almennri stefnu­mörkun eig­anda. Í sam­ræmi við það hefur fjár­mála­fyr­ir­tækjum í eigu rík­is­ins verið sett sér­stök eig­enda­stefna sem gildir um öll þau félög sem Banka­sýslan fer með eign­ar­hlut í.  Kjarni stefn­unnar byggir á að umrædd fjár­mála­fyr­ir­tæki séu rekin með fag­legum og gagn­sæjum hætti þannig að almennt ríki traust á stjórn og starf­sem­i. Í eig­enda­stefn­unni er sér­stak­lega áskilið að  fjár­mála­fyr­ir­tæki skuli koma sér upp innri verk­ferlum um lyk­il­þætti í starf­semi sinni, þ.m.t. sölu eigna og að mik­il­vægt sé að slíkir ferlar séu skil­virkir og gagn­sæ­i. 

Að und­an­förnu hefur staðið yfir í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu end­ur­skoðun á eig­enda­stefnu rík­is­ins fyrir fjár­mála­fyr­ir­tæki og er þar m.a. gert ráð fyrir að hert verði á kröfum við sölu á eignum þeirra fjár­mála­fyr­ir­tækja sem stefnan nær til. Má í því sam­bandi vísa til þess að Alþingi hefur með lögum um opin­ber fjár­mál lög­fest meg­in­reglur um sölu eigna rík­is­ins þar sem segir að gæta skuli að jafn­ræði, gagn­sæi, hlut­lægni og hag­kvæmni við sölu eigna rík­is­ins, auk þess sem líta skuli til sam­keppn­is­sjón­ar­miða.

Banka­sýsla rík­is­ins birti þann 8. jan­úar sl. stöðu­skýrslu varð­andi fyr­ir­hug­aða sölu­með­ferð á Lands­bank­anum í sam­ræmi við heim­ild í fjár­lög­um.  Í skýrsl­unni kemur fram að Banka­sýslan stefni að því að setja fram til­lögu til ráð­herra á fyrsta fjórð­ungi þessa árs um sölu á allt að 28,2% hlut í Lands­bank­an­um. Ákvörðun um næstu skref varð­andi sölu eign­ar­hluta í Lands­bank­anum verður fyrst tekin að fengnum til­lögum Banka­sýsl­unn­ar, en ljóst er að sú ákvörðun mun velta á fjöl­mörgum atriðum og mati á því hvernig heild­ar­hags­munum rík­is­ins er best fyrir kom­ið. Það er mat ráð­herra að umræða und­an­far­inna vikna vegna sölu Lands­bank­ans á hlut sínum í Borgun sé til þess fallin að skaða bank­ann.  Því sé nauð­syn­legt áður en lengra er haldið í því ferli að hvað­eina er máli skiptir og varðar sölu Lands­bank­ans á Borgun verði upp­lýst og málið afgreitt með þeim hætti að traust til bank­ans og stjórn­enda hans verði tryggt. Efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis er sent afrit af bréfi þessu, sbr. 3. mgr. 2. gr. laga nr. 88/2009 um Banka­sýslu rík­is­ins, með síð­ari breyt­ing­um.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None