Heilbrigðisráðherra segir undirskriftirnar styrkja málflutning sinn

Heilbrigðisráðherra segir undirskriftarsöfnunina Endurreisum heilbrigðiskerfið styrkja hann í stöðu sinni til að fjármagna heilbrigðisþjónustuna. Undirskriftasöfnunin sýni að þörf er á forgangsröðun hjá öllum. Um 68.000 hafa skrifað undir.

kristjan_thor_vidtal_frame_530.jpg
Auglýsing

Krist­ján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra seg­ist taka mark á und­ir­skriftum Kára Stef­áns­son­ar, rétt eins og hann taki mark á öðru sem kemur að efl­ingu heil­brigð­is­kerf­is­ins. Um 68.000 hafa skrifað undir und­ir­skrift­ar­söfn­un­ina End­ur­reisum heil­brigð­is­kerfið þegar þetta er skrif­að. 

„Þetta styrkir mig að sjálf­sögðu í þeirri vinnu sem mér ber að sinna til að leita leiða til að fjár­magna heil­brigð­is­þjón­ust­una,” segir Krist­ján Þór í sam­tali við Kjarn­ann. „Og söfn­unin und­ir­strikar þá alvöru sem er í umræð­unni um þennan mála­flokk.” 

Spurður hvort hann muni beita sér meira fyrir efl­ingu mála­flokks­ins í ljósi þess fjölda sem hefur sett nafn sitt við söfn­un­ina seg­ist hann munu gera það sem sama hætti og áður. 

Auglýsing

„Ég hef barist fyrir efl­ingu þessa mála­flokks eins og aðrir ráð­herr­ar,” segir hann. „Því það er ljóst að við eigum að gera betur þar.” 

Allir þurfi að for­gangs­raða

Krist­ján segir að þátt­taka almenn­ings og umræðan geri kröfu um for­gangs­röðun á alla sem koma að heil­brigð­is­kerf­inu, ekki bara stjórn­mála­menn.

„Sú staða er komin upp að það þarf að for­gangs­raða og velja á milli. Fólk verður að vera til­búið að gefa eftir á sínu sviði til að auka hlut ann­ar­s,” segir hann. „Þetta gerir bæði kröfu á stjórn­mála­menn og almenn­ing um að hugur fólks bein­ist á þessar braut­ir. Að heil­brigð­is­málin séu í for­gang­i.” 

Vantar um 1.800 til að kom­ast í fyrsta sæti

Und­ir­skrifta­söfnun Kára Stef­áns­son­ar, End­ur­reisum heil­brigð­is­kerfið, er orðin sú næst­stærsta í sög­unni. Stærsta und­ir­skrifta­söfn­unin til þessa er Hjartað í Vatns­mýr­inni, sem var til stuðn­ings þess að halda flug­vell­inum í Vatns­mýri. 69.809 manns skrif­uðu undir þá und­ir­skrifta­söfn­un. Fjöldi hjá Kára var um 68.000 þegar þetta er skrif­að. Það vantar því um 1.800 und­ir­skriftir til að sú kom­ist í fyrsta sæt­i. 

End­ur­reisum heil­brigð­is­kerfið snýst um að íslensk stjórn­völd verji 11 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu í rekstur heil­brigð­is­kerf­is­ins. Núver­andi hlut­fall er í kring um 8,7 pró­sent. 

Kári sagði við RÚV, þegar 60.000 und­ir­skriftum var náð, að hann haldi að það þurfi tölu­vert meira til að skjóta stjórn­völdum skelk í bringu. Hann hefur einnig átt, eins og frægt er orð­ið, í ítrek­uðum rit­deilum við Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra um mál­ið, og reyndar önnur mál líka.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None