Prentútgáfu the Independent hætt í lok mars

Independent
Auglýsing

Evgeny Lebedev, eig­andi og útgef­andi breska dag­blaðs­ins the Inden­pendent, hefur til­kynnt að prentun og útgáfu blaðs­ins, og helg­ar­blaðs­ins Independent on Sunday, verði hætt á næst­unni. Síð­asta ein­takið af the Independent mun koma út 26. mars næst­kom­andi.  Þar ­með lýkur 30 ára sögu blaðs­ins. 

Sam­kvæmt frétt the Guar­dian um málið segir Lebedev að breyt­ing­arnar séu liður í því að færa áherslur the Independent frá prenti til­ staf­rænnar miðl­un­ar. Prent­miðlar séu í hnignun en staf­ræn miðlun í miklum vexti. Frétta­vef­síða the Independent, sem verður rekin áfram, er nú ­með 58 millj­ónir mán­að­ar­lega not­endur og sam­kvæmt Lebedev skilar hún hagn­að­i. Hann reiknar með því að tekjur hennar muni vaxa um 50 pró­sent á þessu ári. „Dag­blaða­iðn­að­ur­inn er að breyt­ast og sú breyt­ing er drifin áfram af les­end­um. Þeir eru að sýna okkur að fram­tíðin sé staf­ræn. Með þess­ari ákvörðun þá varð­veitum við Independent vöru­merkið og hún gerir okkur kleift að fjár­festa áfram í hágæða ­rit­stjórn­ar­efni sem laðar sífellt fleiri les­endur að vef­síð­unum okk­ar.“

Á næst­unni verða umsvif the Independent á vef­inu aukin mikið til­ að reyna að gera Independent.co.uk að alþjóð­legu staf­rænu frétta­vöru­merki. Auk þess verður sett í loftið áskrift­ar-app. Ekki  hefur verið til­greint hversu margir þeirra 150 starfs­manna sem starfa á prent­miðlum Independent missa vinn­una.

Auglýsing

Lebedev hefur fjár­fest gríð­ar­lega í breskum fjöl­miðlum á und­an­förnum árum. Frá því í sept­em­ber 2014 hefur hann keypt miðla fyrir um 100 millj­ónir punda, um 18,5 millj­örðum króna. Þar af fóru um 65 millj­ónir punda, um tólf millj­örðum króna, í að kaupa the Independent og tengda miðla. 

Lebedev sendi starfs­fólki sínu bréf vegna breyt­ing­anna. Það má lesa hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None