Borgun: „Frábiðja“ sér að vera gerðir að blórabögglum í málinu

VISA Borgun
Auglýsing

Í yfir­lýs­ingu frá Borg­un, kemur fram að stjórn Borg­unar geri alvar­legar athuga­semdir við fram­göngu Stein­þórs Páls­son­ar, banka­stjóra Lands­bank­ans, í fjöl­miðl­um. Yfir­lýs­ingin var send út, eftir að Stein­þór var í við­tali í Kast­ljósi RÚV. Segir í yfir­lýs­ing­unni að Stein­þór hafi „ít­rekað farið með dylgjur og óbeinar ásak­anir um óheið­ar­leika og illan ásetn­ing stjórn­enda Borg­un­ar“ sem stand­ist enga skoð­un. 

Stein­þór sagð­ist í við­tal­inu við Kast­ljós í kvöld, ekki ætla að hætta vegna máls­ins, og að Lands­bank­inn væri að kanna hvort kæra ætti stjórn­endur Borg­unar vegna máls­ins.



Vísar stjórnin í þessu til við­skipta með 31,2 pró­sent hlut í Borg­un, sem seldur var bak við luktar dyr til val­innar fjár­festa, meðal ann­ars stjórn­enda Borg­un­ar, undir lok árs 2014. Hlut­ur­inn var seldur á 2,2 millj­arða króna og heild­ar­virði félags­ins var metið á um sjö millj­arða. Í dag er það talið allt að 26 millj­arða króna virði.

Yfir­lýs­ingin er orð­rétt þessi:

Auglýsing

„1. Stjórn­endur og aðrir starfs­menn Borg­unar keypt­u 6,24% hlut í félag­inu af Lands­bank­an­um. Tveim­ur ­mán­uðum áður en til­kynnt var um sölu Visa Europe og hagnað Borg­un­ar, seldu þessir sömu stjórn­endur Borg­unar rúman helm­ing af þeim hlut, án nokk­urs fyr­ir­vara um sölu Visa Europe. Allt tal um blekk­ingar verður alger­lega frá­leitt í þessu ljósi.

2. ­Stein­þór Páls­son er orð­inn marg­saga um hvort og hvernig Lands­bank­inn kynnti sér mögu­legan val­rétt Visa Inc. Eins hvers vegna bank­inn gerði fyr­ir­vara í við­skiptum með eign sína í Valitor en ekki í Borg­un. Stað­reyndin er sú að Lands­bank­inn hafði mun betri aðgang að upp­lýs­ingum um þennan val­rétt en Borg­un. Það er ótrú­legt að Lands­bank­inn, eftir að hafa að eigin sögn kynnt sér gögn um val­rétt­inn vel,  hafi samt kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Borg­un, einn allra leyf­is­hafa,  hefði ekki rétt til greiðslna, kæmi til sölu Visa Europe.

3. Við sölu á hlut Lands­bank­ans í Borgun árið 2014 höfðu full­trúar Lands­bank­ans  aðgang að öllum upp­lýs­ingum sem máli skiptu, að und­an­skilum upp­lýs­ingum um sam­keppn­is­að­ila sína.

4. Alvar­legar ásak­anir banka­stjór­ans um ­mein­t lög­brot ann­arra í þessu máli má sjálf­sagt skoða í ljósi þeirrar erf­iðu stöðu sem Lands­bank­inn er kom­inn í. Stjórn­endur Borg­un­ar frá­biðja sér með öllu að vera gerðir að blóra­bögglum í þessu máli.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None