Steinþór ætlar ekki að hætta

FME kannar söluna á Borgun og stjórnendur Landsbankans skoða hvort að kæra eigi stjórnendur vegna hennar. Þá kemur til greina að rifta sölunni.

Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans.
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans.
Auglýsing

Stein­þór Páls­son, banka­stjóri Lands­bank­ans, hefur ekki íhugað að ­segja af sér vegna sölu bank­ans á hlut sínum í Borg­un. Hann segir að það sé til­ ­skoð­unar að kæra stjórn­endur Borg­un­ar, sem keyptu hlut­inn, vegna söl­unnar og að Fjár­mála­eft­ir­litið sé einnig að fara yfir mál­ið. Þá sé einnig til skoð­unar að rifta söl­unni á hlutnum ef það sé mögu­legt. Stein­þór segir að honum þyki það ­sér­stakt að stjórn­endur Borg­unar hafi ekki upp­lýst hann og Lands­banka­fólk um hvers virði val­réttur fyr­ir­tæk­is­ins vegna kaupa Visa Inc. á Visa Europe gæt­i verið þegar stjórn­end­urnir kynntu stöðu Borg­unar fyrir Lands­bank­anum þeg­ar ­salan fór fram. Þetta kom fram í við­tali við Stein­þór í Kast­ljósi kvölds­ins.

Þegar Lands­bank­inn seldi 31,2 pró­sent hlut sinn í Borgun í lok nóv­em­ber 2014 var heild­ar­virði fyr­ir­tæk­is­ins metið á um sjö millj­arða króna. Ný­legt mat á fyr­ir­tæk­inu sýnir að virði þess sé allt að 26 millj­arðar króna og ­ljóst að Borgun mun fá millj­arða króna vegna kaupa Visa Inc. á Visa Europe.

Blekk­ing er stórt orð

Stein­þór var spurður að því hvort hann liti svo á að stjórn­end­ur ­Borg­un­ar, sem settu saman hóp­inn sem keypti hlut Lands­bank­ans í fyr­ir­tæk­in­u, hefðu blekkt bank­ann í sölu­ferl­inu. Hann sagði það sterkt orð en að það hefð­i verið eðli­legt ef Lands­bank­anum hefði verið gerð grein fyrir þeirri mögu­leg­u virð­is­aukn­ingu sem fælist í val­rétti Borg­unar þegar staða fyr­ir­tæk­is­ins var kynnt fyrir stjórn­endum bank­ans. Það hafi hins vegar ekki verið gert.

Auglýsing

Stein­þór sagði að Lands­bank­inn hefði leitað til Visa Europe eftir upp­lýs­ingum um málið en fengið tak­mark­aðar upp­lýs­ing­ar. Ekk­ert í þeim hafi bent til þess að Borgun ætti rétt á neinum greiðslum vegna val­rétt­ar­ins.

Helgi Selj­an, umsjón­ar­maður Kast­ljóss, spurði þá Stein­þór hvort Lands­banka­menn hefðu ekki spurt stjórn­endur Borg­unar beint um val­rétt­inn þeg­ar á sölu­ferl­inu stóð. Stein­þór sagði að það hefði verið gert beint og að ekk­ert í kynn­ingum stjórn­enda Borg­unar hefði bent til þess að fyr­ir­tækið gæti feng­ið nokkuð út úr þessu. „Við vorum grand­ar­laus,“ sagði Stein­þór.

Helgi benti þá á að upp­lýs­ing­arnar sem Lands­bank­inn byggði á þegar hlutur hans í Borgun var seldur hafi allar komið frá aðil­unum sem voru að ­kaupa hlut­inn af bank­an­um. Hann spurði Stein­þór af hverju óháðir aðilar hafi ekki verið fengnir til að taka út virði fyr­ir­tæk­is­ins. Stein­þór svar­aði því til­ að slíkir aðilar hefðu ein­ungis getað fengið upp­lýs­ingar hjá sömu aðil­u­m, ­stjórn­endum og stjórn Borg­un­ar.

Ekki íhugað að hætta

Ljóst er að traust almenn­ings og stjórn­mála­manna í garð Lands­bank­ans hefur beðið mikla hnekki vegna Borg­un­ar­máls­ins. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, skrif­aði bréf til stjórnar Banka­sýslu rík­is­ins í síð­ustu viku. Þar stóð m.a.: Það er mat ráð­herra að umræða und­an­far­inna vikna vegna sölu Lands­bank­ans á hlut sínum í Borgun sé til þess fallin að skaða bank­ann.  Því sé nauð­syn­legt áður en lengra er haldið í því ferli að hvað­eina er máli skiptir og varðar sölu Lands­bank­ans á Borgun verði upp­lýst og málið afgreitt með þeim hætti að traust til bank­ans og stjórn­enda hans verði trygg­t."

Stein­þór sagð­ist ­sam­mála því sem Bjarni sagði í bréf­inu og að það tap á trausti sem átt hafi sér stað sé mjög alvar­leg staða. Hann sagð­ist hins vegar ekki hafa íhugað að hætta störfum og kall­aði eftir því að fólk horfði á heild­ar­mynd­ina, ekki afmarkað til­vik eins og söl­una á Borg­un. Undir hans stjórn­ hefði Lands­bank­inn farið frá því að starfa á skil­yrtu starfs­leyfi og að vera í mögu­lega miklum vand­ræðum vegna geng­is­lána­end­ur­greiðslna í að vera með yfir 250 millj­arða króna í eigið fé þrátt fyrir að vera búinn að greiða umtals­verð­an arð. Á þessu ferða­lagi hafi bank­inn selt hluta­bréf með um 50 millj­arða hagn­að­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None