Gangverk selur hugbúnaðarleyfi að Sling í Bandaríkjunum fyrir 325 milljónir króna

Sling.
Auglýsing

Gang­verk hefur gert samn­ing um sölu leyfa að Sl­ing hug­bún­að­inum fyrir 325 millj­ónir króna. Samn­ing­ur­inn felur í sér að Sling verður hluti af vöru­fram­boði fyrir við­skipta­vini þeirra sem samn­ing­ur­inn var gerður við, en við­skipta­vin­irnir eru flestir veit­inga­staðir og versl­anir í Banda­ríkj­un­um. Ekki fæst upp­gefið að svo stöddu við hvernig var samið, en við­skiptin hafa gengið í gegn nú þeg­ar.

Helgi Her­manns­son, fram­kvæmda­stjóri Gang­verks, segir sölu­samn­ing­inn við­ur­kenn­ingu á góðu þró­un­ar­starfi starfs­manna Gang­verks og þörf­inni á skil­virkum far­síma­lausnum fyrir innri sam­skipti fyr­ir­tækja þar sem starfs­menn vinna á vökt­um. Fyr­ir­tækið hefur verið með við­skipta­þróun í New York frá því í fyrra, og unnið að sölu- og þró­un­ar­starfi þar í sam­vinnu við við­skipta­vini.

Sling hug­bún­að­ur­inn er hann­aður og þró­aður af Gang­verki. Fyr­ir­tækið er leið­andi hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæki í Reykja­vík í snjall­síma­lausn­um. Ásamt því að þróa Sling þjón­ustar Gang­verk líka við­skipta­vini félags­ins með hug­bún­að­ar­þróun eins og t.d. CBS Media, Sot­he­by's, Sím­ann, RÚV, 365 og Öss­ur.

Auglýsing

Sling hugbúnaðurinn hefur notið vaxandi vinsælda í Bandaríkjunum.

Gang­verk hóf að þróa Sling í lok árs 2014 og setti lausn­ina á markað í Júlí 2015. Þegar nota nokkur hund­ruð fyr­ir­tæki Sling í Banda­ríkj­un­um, ­mest veit­inga­staðir og versl­anir þar á meðal Subway, Fri­days og Dom­in­os veit­inga­stað­ir, Holi­day Inn Hot­el, Rite Aid apó­tek ofl.  Á Íslandi nota ­mörg fyr­ir­tæki Sling t.d. Gló, Kaffi­tár og 66N.

Sling er ­sam­skipta- og vakta­kerfi fyrir fyr­ir­tæki þar sem starfs­menn vinna á vöktum og nýt­ist vel t.d. fyrir versl­an­ir, veit­inga­staði, spít­ala, hótel ofl.  Afar auð­velt er fyrir fyr­ir­tæki að byrja að nota lausn­ina.  Þau stofna reikn­ing á www.­getsl­ing.com og ­bjóða starfs­mönnum sínum inn í kerf­ið, þannig verður til innra net hvers fyr­ir­tæk­is.

Sling er byggt í kringum fjóra megin hluta; vakta­kerfi, skila­boða­kerf­i, frétta­veitu og verk­efna­lista kerf­i.  Sling er í stöðugri þróun og mun­u ýmsar spenn­andi við­bætur koma út á næst­unni.

Gang­verk fékk 500 þús­und Banda­ríkja­dala sprota­fjár­fest­ingu, eða sem nemur um 70 millj­ónum miðað við núver­andi gengi, frá Nýsköp­un­ar­sjóði og ­Banda­rískum fjár­festum í lok árs 2014.  Félagið hefur líka not­ið skatta­af­sláttar stjórn­valda vegna nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja og styrks frá­ Rannís. „Sam­an­lagt hefur þetta hjálpað félag­inu að ná árangri og gerir því kleift að fjölga starfs­mönnum á Ísland­i,“ segir Helgi, en starfs­menn Gang­verks eru nú þrettán tals­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None