Varaformaður Samfylkingar hættir á þingi

Katrín Júlíusdóttir ætlar ekki að sækjast eftir endurkjöri á Alþingi í næstu kosningum. Hún ætlar líka að hætta sem varaformaður flokksins á næsta landsfundi.

Katrín Júlíusdóttir
Auglýsing

Katrín Júl­í­us­dótt­ir, vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, ætlar að hætta á þingi eftir næstu Alþing­is­kosn­ing­ar. Hún greinir frá þessu í bréfi sem hún sendi til sam­flokks­manna sinna. Katrín ætlar ekki að gefa kost á sér áfram í for­ystu­störf fyrir flokk­inn á næsta lands­fundi Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, sem hald­inn verður í byrjun júní 2016. 

Í bréf­inu seg­ist Katrín þakk­lát fyrir það traust sem henni hafi verið sýnt und­an­farið og að margir hafi skorað á hana til að sækj­ast eftir frekara for­ystu­hlut­verki innan flokks­ins. Hún segir ákvörðun sína að hætta vera per­sónu­legs eðl­is. 

Auglýsing

Katrín hefur verið þing­maður fyrir Sam­fylk­ing­una frá árinu 2003. Hún gegndi emb­ætti iðn­að­ar­ráð­herra árin 2009 til 2012 og var fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra 2012 til 2013. Hún hefur verið vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar frá 2013.

Bréf Katrínar í heild sinn­i: 

Kæru félag­ar,

spenn­andi og krefj­andi tímar eru framundan hjá okkur sós­í­alde­mókrötum á Íslandi. Stærsta verk­efnið er að mynda sam­henta sveit sem tryggir sterka rödd jöfn­uð­ar, rétt­læt­is, gagn­sæis og frelsis í póli­tískri umræðu og aðgerð­um.

Í yfir 20 ár hefur hreyf­ing jafn­að­ar­manna treyst mér fyrir ólíkum verk­efn­um, þar af hafið þið falið mér það mik­il­væga verk­efni að sitja á Alþingi Íslend­inga sl. 13 ár. Þar hef ég á hverjum degi lagt mig fram um að gera mitt allra besta í mörgum ólíkum hlut­verk­um; í störfum nefnda, í for­ystu iðn­að­ar­nefnd­ar, í for­ystu EFTA/EES þing­manna­nefnd­ar­innar ásamt því að gegna emb­ætti iðn­að­ar­ráð­herra og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Um leið og ég þakka ykkur fyrir þetta traust sem þið hafið sýnt mér, finnst mér mik­il­vægt að deila með ykkur ákvörðun sem ég hef tek­ið.

Mörg ykkar hafið skorað á mig und­an­farið að sækj­ast eftir frekara for­ystu­hlut­verki í okkar hreyf­ingu nú á þessu vori og fyrir það traust og þá vin­áttu sem þið sýnið mér er ég afar þakk­lát. Ég hef hins­vegar tekið þá ákvörðun að sækj­ast ekki eftir end­ur­kjöri í næstu alþing­is­kosn­ingum og þar af leið­andi mun ég ekki bjóða fram krafta mína til frek­ari for­ystu­starfa fyrir Sam­fylk­ing­una. Ákvörðun mín um að þetta verði mitt síð­asta kjör­tíma­bil sem ykkar full­trúi á þingi er per­sónu­leg, ég finn að nú er rétti tím­inn til að snúa mér að öðru. Á sama tíma og ég mun sakna sam­starfs­ins við ykkur þá er ég líka spennt fyrir fram­tíðar­æv­in­týr­um. Ég er lánsöm. Á fal­lega fjöl­skyldu, elska lífið og ætla að halda áfram að grípa ný og spenn­andi tæki­færi með báðum hönd­um.

Ný flott kyn­slóð stjórn­mála­manna á öllum aldri bankar nú á dyrn­ar. Þeim eigum við að fagna og treysta til að bera kyndil hug­sjóna okkar inn í nýja tíma. Vil ég jafn­framt nota þetta tæki­færi til að hvetja ungt fólk til að láta til sín taka í stjórn­málum og móta þannig fram­tíð­ina við hlið reynslu­bolt­anna. 

Þetta er ekki kveðju­bréf - það kemur þegar ég læt af störf­um:) 

Látum kom­andi miss­eri ein­kenn­ast af gerjun og kraum­andi umræðu um hug­myndir og fram­tíð­ar­lausnir á verk­efn­unum sem við blasa.

Hlakka til að taka þátt í því með ykk­ur!

Ykk­ar,

Katrín

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None