Sigmundur Davíð um búvörusamninga: „Málið er frá"

Sigmundur Davíð
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra seg­ist ánægður með nið­ur­stöður nýrra búvöru­samn­inga. Í sam­tali við Morg­un­blaðið í dag segir hann: „Það er búið að und­ir­­rita þessa samn­inga og málið er frá­.“ 

Nýir búvöru­samn­ingar gera það að verkum að útgjöld rík­is­ins vegna greiðslna til land­bún­aðar aukast um 900 millj­ónir á næsta ári. Heild­ar­út­gjöld rík­is­ins vegna samn­ing­ins á næta ári verða þrettán millj­arðar króna. Hækk­unin verður þó ekki eins mikil á kom­andi árum og á að vera að með­al­tali um 700 millj­ónir á ári. Sig­urður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Sindri Sig­ur­geirs­son, for­maður Bænda­sam­tak­anna, und­ir­rit­uðu samn­ing­ana á föstu­dag. Þeir eru til tíu ára.  

Þótt for­sæt­is­ráð­herra segi málið frá á Alþingi enn eftir að sam­þykkja nýja búvöru­samn­inga. Þegar hefur gætt umtals­verðrar óánægju með samn­ing­inn innan ann­ars stjórn­ar­flokks­ins, Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Ragn­heiður Rík­harðs­dótt­ir, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er til að mynda alfarið á móti hon­um. Hún seg­ist aldrei munu sam­þykkja málið á Alþingi. Í stöðu­færslu sem Ragn­heiður setti á Face­book síðu sína á föstu­dag, þar sem hún deilir frétt um und­ir­ritun samn­ing­anna, segir hún: „Eru menn ekki að grínast, aldrei með mínu sam­þykki á Alþingi Íslend­inga.”  

Auglýsing

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir, rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins, tók undir með Ragn­heiði í Viku­lok­unum á Rás 1 á laug­ar­dag. „Mér líst mjög illa á þessa samn­inga. Það er gjör­sam­lega ótækt að ætla að bæta svona í rík­is­styrki til land­bún­að­ar­ins. Þetta er ekki rétta leiðin til að bæta kjör bænda eða ann­að, sagði hún. „Land­bún­aður á ekki að vera jafn mikið rík­is­styrktur og hann er í dag, hvað þá að bæta næstum því millj­arði við. Það er út í hött. Ég vona að þetta verði ekki sam­þykkt á þing­in­u.”  

Vil­hjálmur Bjarna­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur einnig sagt að hann geti ekki stutt samn­ing­anna eins og þeir séu. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None