Frosti vill nýja eigendastefnu sem takmarkar útrásarmöguleika Íslandsbanka

Fáfnir samsett
Auglýsing

Frosti Sig­ur­jóns­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþing­is, kallar eftir því að Íslands­banka verði sett ný eig­enda­stefna sem tak­marki mjög mögu­leika bank­ans til þess að fara í útrás til útlanda. Íslands­banki sé orð­inn alfarið rík­is­banki og gera verði við hann nýjan samn­ing um þetta sem fyrst. 

Frosti ræddi þetta í ljósi fjár­fest­inga bank­ans og íslenskra líf­eyr­is­sjóða í norskum olíu­iðn­aði, í fyr­ir­tækj­unum Fáfni Offs­hore og Havila. Eins og Kjarn­inn hefur greint frá lán­uðu Íslands­banki og Arion banki norska skipa­fyr­ir­tæk­inu Havila háar fjár­hæðir árin 2013 og 2014. Havila rambar nú á barmi gjald­þrots og er í við­ræðum við kröfu­hafa sína um end­ur­skipu­lagn­ingu á skuld­um. Sömu sögu er að segja um Fáfni Offs­hore, sem íslenskir líf­eyr­is­sjóðir og Íslands­banki og Lands­banki hafa fjár­fest veru­lega í. 

Frosti lýsti yfir áhyggjum sínum af þess­ari útrás. Það sé stefna þess­ara banka að fara í aðra útrás og fjár­festa erlend­is, meðal ann­ars á meðan öll þjóðin sé í höft­um. Þá sé ekki verið að dreifa áhætt­unni heldur þjappa henni sam­an, „inn í ein­hvern geira sem við höfum ekk­ert mikið vit á, norskan olíu­iðn­að.“ 

Auglýsing

Þá sagði hann eitt­hvað mikið í ólagi þegar íslenskir líf­eyr­is­sjóðir þjappi áhættu sinni inn í þennan geira. „Hvers vegna þurfa norskir fram­kvæmda­menn í norskum olíu­iðn­aði að leita til Íslands eftir fjár­magni? Er ekki eitt­hvað að? Eru ekki vext­irnir lægri í Nor­egi? Það er verið að taka áhættu, það er eitt­hvað í ólag­i.“ 

Auk þess sem hann kall­aði eftir því að gerður verði nýr samn­ingur við Íslands­banka og honum settar meiri skorður kall­aði hann eftir því að íslenskir líf­eyr­is­sjóðir komi fram og lýsi því hver þeirra stefna er varð­andi fjár­fest­ingar í útlönd­um. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None