Hagnaður Arion banka nam tæplega 50 milljörðum í fyrra

Á hverjum degi ársins í fyrra hagnaðist Arion banki að meðaltali um 137 milljónir króna, samkvæmt uppgjöri bankans fyrir árið í heild. Sala eigna hafði mikil áhrif á efnahag bankans.

Arion.banki_..Sm_.ra.tib_..jpg
Auglýsing

Hagn­aður Arion banka á árinu 2015 nam 49,7 millj­örðum rkóna, sam­an­borið við 28,7 millj­arða árið 2014. Það er lang­sam­lega besta afkoma bank­ans frá stofnun hans, haustið 2008, en hagn­aður nemur tæp­lega 137 millj­ónum á hverjum degi.



Í frétta­til­kynn­ingu frá Arion banka segir að upp­gjörið lit­ist meðal ann­ars af stórum úrlausn­ar­mál­um. „Af­koma Arion banka á árinu 2015 ber þess merki að til lykta voru leidd nokkur umfangs­mikil úrlausn­ar­mál sem vörð­uðu mikla hags­muni fyrir bank­ann. Fyrst og fremst er um að ræða sölu bank­ans á hlutum í fimm félög­um: Reitum fast­eigna­fé­lagi hf., Eik fast­eigna­fé­lagi hf., Sím­anum hf., alþjóð­lega drykkj­ar­fram­leið­and­anum Refresco Ger­ber og Bakka­vor Group Ltd. Öll voru félögin skráð í kaup­höll hér á landi eða erlend­is, nema eign­ar­hlut­ur­inn í Bakka­vor Group sem var seldur í kjöl­far sölu­ferlis í umsjón Barclays bank­ans. Þannig nam hagn­aður Arion banka á árinu 2015 49,7 millj­örðum króna eftir skatta sam­an­borið við 28,7 millj­arða króna á árinu 2014. Arð­semi eigin fjár var 28,1% sam­an­borið við 18,6% árið 2014,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Hagn­aður af reglu­legri starf­semi nam 16,8 millj­örðum króna sam­an­borið við 12,7 millj­arða árið 2014, eins og sjá má í árs­reikn­ingi bank­ans.

Heild­ar­eignir námu í árs­lok 2015 rúm­lega þús­und millj­örðum króna sam­an­borið við 933,7 millj­arða króna í árs­lok 2014 og eigið fé hlut­hafa bank­ans nam 192,8 millj­örðum króna í árs­lok og hafði hækkað um 20 pró­sent milli ára.

Auglýsing

Hagn­aður á fjórða árs­fjórð­ungi nam 24,3 millj­örðum króna og eykst veru­lega milli ára. Ástæð­una má fyrst og fremst rekja til virð­is­hækk­un­ar­innar á eign­ar­hluta í Bakka­vor Group Ltd. 

Umtals­verðar virð­is­breyt­ingar urðu á lána­bók bank­ans á árinu. Nið­ur­færslur tengj­ast að mestu lánum til erlendra félaga í þjón­ustu tengdri olíu­leit og lánum sem bank­inn yfir­tók frá AFL – spari­sjóði á árinu, segir til­kynn­ingu. Er þar meðal ann­ars vitnað sér­stak­lega til lána til norska félags­ins Havila Shipp­ing ASA, sem nú þegar hefur fært niður skipa­flota sinn um 21 millj­arð króna. Ekki kemur nákvæm­lega fram hversu mikið útlánatapið er vegna þessa.

Hækk­anir tengj­ast að mestu upp­greiðslu lána, bæði ein­stak­linga í tengslum við leið­rétt­ingu rík­is­stjórn­ar­innar og fyr­ir­tækja í tengslum við end­ur­skipu­lagn­ingu og sölu.

Eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans í lok árs­ins 2015 var 24,2 pró­sent en var 26,3 pró­sent í árs­lok 2014. Lækk­unin er einkum til­komin vegna arð­greiðslu að fjár­hæð 12,8 millj­arðar króna og fyr­ir­fram­greiðslu á víkj­andi lánum frá rík­inu að fjár­hæð 20 millj­arðar króna. 



Íslenska ríkið á 13 pró­sent hlut í Arion banka, en kröfu­hafar Kaup­þings afgang­inn. Bank­inn er í sölu­ferli.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None