Flestir þingmenn VG sýna Katrínu skilning

Kjarninn spurði alla þingmenn VG álits um mögulegt forsetaframboð formannsins, Katrínar Jakobsdóttur. Flestir flokksmenn segjast sýna henni fullan skilning en eftirsjá verði af henni af Alþingi ef hún ákveði að taka slaginn.

Katrín Jakobsdóttir ætlar að nýta næstu daga til að ákveða hvort hún bjóði sig fram til forseta.
Katrín Jakobsdóttir ætlar að nýta næstu daga til að ákveða hvort hún bjóði sig fram til forseta.
Auglýsing

Katrín Jak­obs­dóttir hefur verið orðuð við for­seta­emb­ættið annað veifið und­an­farið ár. Hún hefur ítrekað mælst sem lang­vin­sæl­asti stjórn­mála­mað­ur­inn á Alþingi, með mest traust og mest per­sónu­fylgi. Flokk­ur­inn henn­ar, Vinstri græn, virð­ist þó ekki ná að nýta sér vin­sældir Katrínar til að afla sér fylgis og hefur hald­ist með í kring um tíu pró­senta fylgi í skoð­ana­könn­unum frá síð­ustu kosn­ing­um. 

Katrín hefur ekki viljað svara hvort hún ætli að bjóða sig fram til for­seta Íslands. Stundin birti for­síðu­við­tal við hana í gær þar sem fram kom að hún væri að hugsa málið alvar­lega. Þá var líka birt skoð­ana­könnun blaðs­ins sem leiddi í ljós að lang­flestir virð­ist treysta henni til að sinna emb­ætt­in­u. 

For­mað­ur­inn lét sam­flokks­menn sína vita á mið­viku­dag af skoð­ana­könnun Stund­ar­innar. Kjarn­inn sló á þráð­inn til þing­manna VG og vara­for­manns­ins og spurði þau álits um mögu­legt for­seta­fram­boð for­manns­ins. 

Auglýsing

Spurt var: Hvaða skoðun hefur þú á mögu­legu for­seta­fram­boði Katrínar Jak­obs­dótt­ur? 

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dótt­ir: „Þetta er auð­vitað alfarið hennar ákvörð­un. En það verður vissu­lega mikil eft­ir­sjá af henni ef hún ákveður að fara út póli­tík, ver­andi sá stjórn­mála­maður sem hún er og hvað hún getur gert. En það kemur alltaf maður í manns stað og Katrín á að gera nákvæm­lega það sem hana langar til að ger­a.”

Björn Valur Gísla­son (vara­for­maður og utan þings): „Ég held að fólk af hennar kali­beri gæti end­ur­heimt for­seta­emb­ættið eftir það sem undan er geng­ið. Katrín getur gert hvað sem hún vill. Hvað sem hún gerir og hvað sem hún tekur sér fyrir hendur mun fara henni vel. Hún nýtur míns stuðn­ings í hverju sem hún tekur sér fyrir hend­ur. En auð­vitað verður mikil eft­ir­sjá af henni af Alþingi ef hún tekur þessa ákvörð­un.” 

Lilja Raf­ney Magn­ús­dótt­ir: „Ef hún ákveður að gera þetta mun ég sakna hennar gíf­ur­lega, en ég mundi virða val henn­ar. Hún á fyrst og fremst að svara þessu sjálf frá innstu hjartarótum og taka ákvörðun út frá því - ekki vænt­an­legum hags­munum flokks­ins. Hún á að vera frjáls en ekki skuld­bundin flokkn­um.”

Stein­grímur J. Sig­fús­son: „Ég tjái mig ekk­ert um það fyrr en ég hef heyrt í Katrínu eða nið­ur­staða hennar liggur fyr­ir. Ég ætla ekk­ert að trufla hana í því sem hún er að hug­leiða þessa dag­ana.” 

Stein­unn Þóra Árna­dótt­ir: „Ég styð hana í því sem hún ger­ir. Auð­vitað eft­ir­sjá af henni af þingi, hún er svo öfl­ugur stjórn­mála­mað­ur. En hún yrði líka rosa­lega flottur for­set­i.” 

Svan­dís Svav­ars­dóttir (þing­flokks­for­mað­ur­): „Hún á að ákveða þetta alveg sjálf og mér finnst ekki tíma­bært að kommenta á þetta.” 

Ögmundur Jón­as­son: „Ekk­ert komment.”

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None