FÍB segir tryggingafélögin tæma bótasjóði viðskiptavina til að greiða út arð

Félag íslenskra bifreiðaeigenda sakar fjármálaeftirlitið um vanrækslu og hvetur fjármálaráðherra til að taka í taumana vegna arðgreiðslna.

tm-sidumuli24-dagur-stor.jpg
Auglýsing

FÍB, félag íslenskra bif­reiða­eig­enda, segir að trygg­inga­fé­lög stundi sjálftöku og grip­deildir úr sjóðum sem eru í raun í eigu við­skipta­vina þeirra. Félög­in, VÍS, TM og Sjó­vá, séu að fara að tæma bóta­sjóði til að greiða út 9,5 millj­arða króna arð á næstu dög­um. Þessir sjóðir séu til vegna þess að trygg­inga­fé­lögin hafi verið með upp­sprengd iðgjöld af ofá­ætl­uðum tjón­um. 

FÍB hefur sent áskorun á Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra að hlut­ast til um þessi mál, þar sem fjár­mála­eft­ir­litið er sakað um van­rækslu í mál­in­u. 

Auglýsing

„Stjórn­völd og almenn­ingur geta lítið gert til að hafa áhrif á græðgi eig­enda trygg­inga­fé­lag­anna annað en for­dæma þessa sjálftöku. Undir eðli­legum kring­um­stæðum væri hald­reipi í Fjár­mála­eft­ir­lit­inu. Svo er þó ekki. FME virð­ist ein­göngu hugsa um hag fjár­mála­fyr­ir­tækja og fjár­festa. Ljóst er að stjórn­völd þurfa að hrista upp í Fjár­mála­eft­ir­lit­inu með afger­andi hætti til að það átti sig á skyldum sínum við almenn­ing,“ segir í bréf­inu frá FÍB til Bjarna. 

Það sé óþol­andi að trygg­inga­fé­lögin fái að eigna sér fjár­muni sem þau hafi hirt af fólki með ofteknum iðgjöldum í skjóli fákeppni. Fjár­mála­eft­ir­litið hafi ríkar heim­ildir til að hlut­ast til um fjár­mál og rekstur trygg­inga­fé­laga, og geti skipað þeim að end­ur­greiða trygg­inga­tökum eign þeirra í bóta­sjóðnum eða nota fjár­mun­ina til að lækka iðgjöld næstu árin. Ef ekk­ert verði gert verði það hins vegar í annað skipti á einum ára­tug sem stofn­unin horfi aðgerða­laus á eig­endur trygg­inga­fé­laga tæma bóta­sjóði sem þeir eigi ekki. 

Í nýrri grein­ingu frá Capacent, sem Kjarn­inn greindi frá á dög­unum, kemur fram að næstu ár gætu verið krefj­andi fyrir trygg­ing­ar­fé­lög­in, þar sem ekki sé hægt að ganga að því vísu, að ávöxtun á eigna­mörk­uðum verði jafn góð og hún hefur verið að und­an­förnu. Verð­bréfa­mark­aðir séu oft aðeins á undan hag­sveifl­unni, eins og erlendar rann­sóknir sýni. Trygg­ing­ar­fé­lögin gæti þurft að búa sig undir erf­ið­ari rekstr­ar­skil­yrði en hafa verið fyrir hendi und­an­far­ið.

Til­lög­ur, sem bornar verða undir aðal­fundi þess­ara félaga gera í ein­hverjum til­fellum ráð fyrir arð­greiðslum tölu­vert umfram árlegan hagn­að. Mesta arð­greiðslan er fyr­ir­huguð hjá VÍS, um fimm millj­arðar króna, en hagn­að­ur­inn í fyrra var rúm­lega tveir millj­arð­ar. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None