Fimm ákærðir í stóra markaðsmisnotkunarmáli Glitnis

Lárus Welding, fyrrum forstjóri Glitnis, er einn hinna ákærðu
Lárus Welding, fyrrum forstjóri Glitnis, er einn hinna ákærðu
Auglýsing

Emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara hefur gefið út ákæru á hendur fimm mönnum í því sem hefur verið kallað stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál Glitn­is. Ákært er fyrir mark­aðs­mis­notkun og umboðs­svik. Málið verður þing­fest 15. apríl næst­kom­and­i. 

Á meðal mann­anna fimm eru Lárus Weld­ing, fyrrum for­stjóri Glitn­is, og Jóhannes Bald­urs­son, fyrrum fram­kvæmda­stjóri mark­aðsvið­skipta hjá bank­an­um. Lárus hlaut fimm ára dóm í Stím-­mál­inu svo­kall­aða í hér­aðs­dómi í des­em­ber og Jóhannes fékk tveggja ára dóm í því máli. Þeirri nið­ur­stöðu hefur verið áfrýjað til Hæsta­rétt­ar. Hinir þrír fyrrum starfs­menn Glitnis sem ákærðir eru í mál­inu eru Jónas Guð­munds­son, Val­garð Már Val­garðs­son og Pétur Jón­as­son.

Emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara, sem nú hefur runnið inn í emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara, hefur rann­sakað mark­aðs­mis­notkun gömlu bank­anna þriggja: Glitn­is, Kaup­þings og Lands­bank­ans, um margra ára skeið. Þegar hefur verið ákært, og dæmt í mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál­um Kaup­þings og Lands­bank­ans.

Auglýsing

Hjá Lands­bank­anum var Sig­ur­jón Þ. Árna­son, fyrrum banka­stjóri Lands­bank­ans, Ívar Guð­jóns­son, fyrrum for­stöðu­maður eigin fjár­fest­inga Lands­bank­ans, og Júl­íus S. Heið­ars­son, sem var sér­fræð­ingur í sömu deild, og Sindri Sveins­son, sem starf­aði við eigin fjár­fest­ingar hjá Lands­bank­an­um, allir dæmdir sekir um mark­aðs­mis­notkun í Hæsta­rétti í febr­úar síð­ast­liðn­um. Sig­ur­jón hlaut eins árs og sex mán­aða fang­els­is­dóm. Ívar var dæmdur í tveggja ára fang­elsi en Júl­íus og Sindri hlutu eins árs fang­els­is­dóma.

Menn­irnir fjórir voru ákærðir fyr­ir mark­aðs­mis­­­not­k­un á tíma­bil­inu 1. nóv­­em­ber 2007 til 3. októ­ber 2008. Sam­kvæmt ákæru áttu þeir að  hafa hand­­stýrt verð­mynd­un hluta­bréfa í Lands­­bank­an­um og með því blekkt „fjár­­­festa, kröf­u­hafa, stjórn­­völd og sam­­fé­lagið í heild.“

Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrrum for­stjóri Kaup­þings,  Sig­urður Ein­ars­son, fyrrum stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, Ingólfur Helga­son, fyrrum for­stjóri Kaup­þings á Íslandi, Einar Pálmi Sig­munds­son, Birnir Sær Björns­son, Pétur Krist­inn Guð­munds­son og Bjarki H. Diego voru allir dæmdir sekir í hér­aðs­dómi Reykja­víkur í fyrra­sumar í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings. Tveimur liðum ákæru á hendur Magn­úsi Guð­munds­syni var vísað frá en að öðru leyti var hann sýkn­aður af þeim sökum sem á hann voru born­ar. Björk Þór­ar­ins­dóttir var einnig sýknuð í mál­inu. Mál­inu var áfrýjað til Hæsta­rétt­ar.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None